Fara í efni

Bæjarráð

311. fundur
8. október 2012 kl. 08:30 - 11:00
í Molanum
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2013 - Hafnarstjórn
Málsnúmer 1208061
Þennan lið fundarins sátu framkvæmdastjóri hafnanna og formaður hafnarstjórnar.  Farið yfir forsendur gjaldskrár hafnanna og fjárhags- og fjárfestingaráætlunar 2013. 
2.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
Málsnúmer 1208011
Þennan lið fundarins sátu fræðslu- og mannvirkjastjóri. Farið yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun 2013 í málaflokkum fræðslu- og æskulýðs- og íþróttamála og eigna-, skipulags- og umhverfismálum.
3.
Kaup Fjarðabyggðar á ríkisjörðinni Grænanesi í Norðfirði
Málsnúmer 1008013
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að kaupsamningi og afsali vegna kaupa Fjarðabyggðar á 1,86 hektara af landspildunni "Eyjan 1" - landnúmer 220532, sem skipt hefur verið út úr upprunajörðinni Grænanesi - landnúmer 158153. Kostnaði kr. 520.000 verður mætt af liðnum 21-69-   Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.
4.
Þátttaka í Útilegukortinu sumarið 2013
Málsnúmer 1209185
Framlögð tillaga um þátttöku í Útilegukortinu sumarið 2013. Bæjarráð samþykkir þátttöku í kortinu fyrir sitt leyti en vísar endanlegri ákvörðun til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og málinu til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd.
5.
Áhrif á landsbyggðina af breytingum á hlutverki Reykjavíkurflugvellar
Málsnúmer 1202077
Lögð fram til kynningar skýrsla KPMG frá 25.september 2012 um áhrif breytinga á hlutverki Reykjavíkurflugvallar á landsbyggðina.
6.
Beiðni um lagfæringar á umferðaöryggismálum við Nesskóla
Málsnúmer 1210050
Bréf foreldrafélags Nesskóla frá 18.september er varðar umferðaröryggi við skólann. Bæjarráð tekur undir efni bréfsins og vísar því til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til frekari umræðu og afgreiðslu í nefndinni. 
7.
Sameingarmál fimm lífeyrissjóða
Málsnúmer 1210054
Minnisblað Jón G. Kristjánssonar um sameiningu fimm lífeyrissjóða í eina deild innan LSS en Lífeyrissjóður Neskaupstaðar er einn sjóðanna. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti áframhaldandi vinnu við sameiningu sjóðanna og felur bæjarritara að vinna að málinu áfram.
8.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2012
Málsnúmer 1209031
Framlögð gögn frá ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
9.
Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1106064
Framlagt minnisblað móttökufulltrúa nýrra íbúa um íbúaþróun síðustu mánaða lagt fram til kynningar.
10.
Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Málsnúmer 1209087
Bæjarstjóri fór stuttlega yfir efni stofnfundar samtakanna sem haldinn var nýlega.  Lagt fram lokaeintak af samþykkt samtakanna.
11.
Umsögn um frumvarp til laga um kosningar til Alþingis (aðstoð við atkvæðagreiðslu)180.mál
Málsnúmer 1209189
Lagt fram til kynningar en bæjarráð gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.
12.
Ársreikningur 2011 - Samtök svf.á köldum svæðum
Málsnúmer 1210062
Ársreikningur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum lagður fram til kynningar. Á ársfundi samtakanna sem haldinn var 28.september sl. voru m.a. umræður um orkumál og framtíðarstefnu samtakanna.
13.
Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012
Málsnúmer 1201252
Fundargerðir stjórnar SSA frá 15.september og 2.október lagðar fram til kynningar
14.
Fundur með þingmönnum Norðausturkjördæmis 2012
Málsnúmer 0910074
Formaður fór yfir efni fundar bæjarfulltrúanna Jens Garðars Helgasonar, Eydísar Ásbjörnsdóttur og Guðmundar Þorgrímssonar, sem haldinn var 1.október sl., með sjö þingmönnum Norðausturkjördæmis.
15.
Fundur með fjárlaganefnd 2012
Málsnúmer 1206110
Forstöðumanni stjórnsýslu falið að finna heppilegan fundartíma með fjárlaganefnd í gegnum fjarfundabúnað.
16.
Álit samkeppniseftirlitsins nr.1/2012
Málsnúmer 1209172
Bréf Samkeppniseftirlitsins frá 25.september þar sem vakin er athygli á fyrsta áliti stofnunarinnar á árinu 2012; "Gæta skal að samkeppnissjónarmiðum við útleigu og sölu húsnæðis á vegum hins opinbera" Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
17.
Fyrirspurn um málstefnu sveitarfélaga skv.130gr.sveitarstjórnarlaga
Málsnúmer 1209165
Bréf innanríkisráðuneytisins frá 21.september þar sem spurst er fyrir um hvort sveitarfélög hafi tekið upp málstefnu skv. 130. gr.  nýrra sveitarstjórnarlaga. Ný sveitarstjórnarlög fela í sér fjölmörg ný verkefni fyrir sveitarfélögin, s.d. fjármálareglur, siðareglur, nýjar samþykktir, endurskoðun samninga um samstarfsverkefni, o.fl.   Málstefna hefur ekki fengið sérstakan forgang hjá Fjarðabyggð, umfram öll þau verkefni sem lögin fela í sér, en líkt og önnur verkefni sem vinna þarf í tengslum við hin nýju lög, verður stefnan unnin á næstu misserum. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að svara ráðuneyti.
18.
Breytingar á nefndarskipan framsóknarflokks á kjörtímabilinu 2010-2014
Málsnúmer 1210066
Hákon Guðröðarson tekur sæti sem varamaður framsóknarflokks í atvinnu- og menningarnefnd í stað Daníels Arasonar sem fluttur er úr sveitarfélaginu.
19.
Breytingar á nefndarskipan sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu 2010-2014
Málsnúmer 1204061
Ragnheiður Ingibjörg Elmarsdóttir tekur sæti sem varamaður sjálfstæðisflokks í félagsmálanefnd.
20.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Málsnúmer 1201123
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 34 frá 24.september lögð fram.
21.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Málsnúmer 1201124
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 26 frá 25. september lögð fram. 
22.
Hafnarstjórn - 104
Málsnúmer 1209015F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 104 frá 2.október lögð fram.
23.
Fræðslu- og frístundanefnd - 29
Málsnúmer 1209014F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 29 frá 3.október lögð fram. 
Bæjarráð ræddi málefni tengd flúormengun sem vart hefur orðið frá álveri Alcoa-Fjarðaáls í Reyðarfirði.