Fara í efni

Bæjarráð

312. fundur
15. október 2012 kl. 08:30 - 11:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Fræðslu- og frístundanefnd
Málsnúmer 1208103
Þennan lið dagskrár sat fræðslustjóri ásamt formanni fræðslu- og frístundanefndar. 
Fræðslu- og frístundanefnd telur að fjárheimildir fyrir fræðslumál séu að minnsta kosti 5 milljónum of lágar m.a. vegna hærra menntunarstigs leikskólastarfsmanna og fleiri ungra barna í leikskólum. Jafnframt telur nefndin að 15 milljónir vanti í íþrótta- og tómstundamál m.a. vegna leiðréttingar á hitunarkostnaði og launaáætlun. Það er álit fræðslu- og frístundanefndar að fáist ekki þessar hækkanir á fjárheimildum þurfi að skerða þjónustu.
Fjárhagsáætlun fræðslu- og frístundamála 2013 ásamt starfsáætlun og gjaldskrá rædd.
Bæjarráð felur fræðslustjóra í samstarfi við formann fræðslu- og frístundanefndar að taka saman greinargerð byggða á umræðu í nefndinni og skila til bæjarráðs fyrir næsta fund ráðsins.
2.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Félagsmálanefnd
Málsnúmer 1208105
Þennan dagskrárlið fundar sat félagsmálastjóri ásamt formanni félagsmálanefndar.
Félagsmálanefnd telur að fjárheimildir til félagsþjónustu innan Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, dugi ekki til þess að sinna lögbundinni þjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Má það meðal annars rekja til ófyrirséðrar hækkunar á innri leigu, rafmagns- og kyndingarkostnaði og að endurgreiðslu ríkisins vegna húsaleigubóta ársins 2012 var rangt reiknuð í áætlun að upphæð 3.000.000 kr. Auk þess hefur beiðnum um þjónustu vegna liðveislu við fötluð börn og ungmenni aukist milli ára, sem og þjónustuþörf í félagslegri heimaþjónustu. Miðað við ofangreindar forsendur vantar 7.580.960 kr. í ramma félagsmálanefndar vegna ársins 2013.
Rætt um fjárhags- og starfsáætlun ársins og úthlutun ramma.
Bæjarráð vísar starfsáætlun og fjárhagsáætlun til félagsmálanefndar og hún fari yfir áætlanirnar og skili greinargerð til bæjarráðs að yfirferð lokinni.
3.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Barnaverndarnefnd
Málsnúmer 1208104
Þennan lið dagskrár sat félagsmálastjóri. Rætt um fjárheimildir og starfsáætlun barnaverndarnefndar 2013.
Bæjarráð vísar starfsáætlun og fjárhagsáætlun til barnaverndarnefndar og hún fari yfir áætlanirnar og skili greinargerð til bæjarráðs að yfirferð lokinni.
 
4.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013-Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Málsnúmer 1208102
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri. 

Lögð fram fjárhags- og starfsáætlun málaflokka sem undir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ásamt tillögu að forgangsröðun viðhaldsmála í eignarsjóði, ásamt tillögu að fjárfestingaráætlun fyrir árið 2013 og 3 ára fjárfestingaráætlun.

Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun til fjárhagsáætlunargerðar 2013.

 
5.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Atvinnu- og menningarnefnd
Málsnúmer 1208107
Bæjarstjóri ásamt formanni atvinnu- og menningarnefndar fóru yfir fjárhags- og starfsáætlun þeirra málaflokka sem eru á ábyrgð atvinnu- og menningarnefndar. Rætt um fjárhags- og starfsáætlun.

Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun til fjárhagsáætlunargerðar 2013.

6.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Bæjarráð
Málsnúmer 1208101
Lögð fram fjárhags- og starfsáætlun fyrir árið 2013 fyrir yfirstjórn og sameiginlegan kostnað.
Rætt um úthlutun fjárhagsramma og starfsáætlun.

Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun til fjárhagsáætlunargerðar 2013.

7.
Breyting á skipan í nefndir Fjarðalistans kjörtímabilið 2010-2014
Málsnúmer 1203050
Breyting á skipan í nefndir Fjarðalistans kjörtímabilið 2010-2014
Félagsmálanefnd.
Elvar Jónsson og  Anna Hlíf Árnadóttir taka sæti Sigríðar Margrétar  Guðjónsdóttur og Ástu Eggertsdóttur  sem aðalmenn í Félagsmálanefnd. Stefán Már Guðmundsson og Ásta Eggertsdóttir taka sæti Önnu Hlífar Árnadóttur og Dagbjartar Láru Ottósdóttur sem varamenn.
Barnavendarnefnd
Eydís Ásbjörnsdóttir tekur sæti  Dagbjartar Láru Ottósdóttur sem aðalmaður í barnavendarnefnd. Hulda Guðnadóttir tekur sæti Eydísar Ásbjörnsdóttur sem varamaður.
8.
Dekk á athafnasvæði Hringrásar
Málsnúmer 1209137
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.
Fram lagt minnisblað mannvirkjastjóra þar sem farið er yfir starfsleyfi fyrirtækisins og heimild til söfnunar úrgangs ásamt rýmingaráætlun vegna starfsemi Hringrásar á Reyðarfirði.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara bréfritara á grundvelli minnisblaðs.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við almannavarnarnefnd um rýmingaráætlun vegna starfsemi fyrirtækisins.  Jafnframt vísað til frekari umræðu og kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
9.
Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012
Málsnúmer 1201252
Fram lögð fundargerð aðalfundar SSA 2012 frá 14. og 15. september.
10.
Fyrirkomulag á refa- og minkaveiðum
Málsnúmer 1208083
Fram lagt erindi SSA um samræmingu á greiðslum og fyrirkomulagi refaveiða. Óskað er eftir þátttöku Fjarðabyggðar og tilnefningu fulltrúa í vinnuhóps sem móti tillögur.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri verði fulltrúi Fjarðabyggðar í vinnuhópnum.
11.
Háspennustrengur í Norðfjarðargöng
Málsnúmer 1209167
Til kynningar bréf bæjarstjóra til Landsnets þar sem vakin er athygli á nauðsyn þess að leggja háspennustreng í ný Norðfjarðargöng.
12.
Málefni Slökkviliðs Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1102004
Fram lögð drög að endurnýjuðum samningi við Alcoa Fjarðaál, vegna reksturs slökkviliðs.
Bæjarráð felur mannvirkjastjóra og bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
13.
Raforkuflutningskerfi - þróun og uppbygging
Málsnúmer 1210097
Fram lagt til kynningar bréf Línudans ehf þar sem fyrtækið kynnir þjónustu sína vegna enduruppbyggingu raforkuflutningskerfa.
Bæjarráð vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
14.
Rekstrarstyrkur við Sjónarhól 2012
Málsnúmer 1210098
Lögð fram styrkbeiðni frá Sjónarhól - ráðgjafamiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir.
Bæjarráð vísar máli til félagsmálanefndar.
15.
Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2012
Málsnúmer 1204010
Fundargerð stjórnar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar frá 3. október 2012 lögð fram til kynningar.
16.
Viðbragðsáætlun vegna hópslysa í umdæmi Lögreglustjórans á Eskifirði
Málsnúmer 1210006
Lögð fram drög að viðbragðsáætlun við hópslysum í umdæmi Sýslumanns á Eskifirði og athugasemdir fulltrúa Fjarðabyggðar við skýrsludrög.
Bæjarritara falið að fylgja málinu eftir.
17.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 20. október 2012 - tillögur stjórnlagaráðs
Málsnúmer 1209011

Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 8. október 2012 lögð fram.  Í henni er tillaga um kjörstaði í Fjarðabyggð vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs. 

Bæjarráð samþykkir að kjörstaðir í Fjarðabyggð vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs verði.
Mjóifjörður - Sólbrekka
Neskaupstaður - Nesskóli
Eskifjörður - Kirkju- og menningarmiðstöðin
Reyðarfjörður - Safnaðarheimili
Fáskrúðsfjörður - Grunnskólinn
Stöðvarfjörður - Grunnskólinn
Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl: 22:00 nema á Mjóafirði þar stendur hann til kl. 17:00.

 

18.
Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál
Málsnúmer 1210103
Fram lögð samstarfsyfirlýsing við Fljótsdalshérað um þjónustu við olíuleit á Drekasvæðinu.
Bæjarráð samþykkir samstarfsyfirlýsinguna og vísar henni til afgreiðslu og umfjöllunar í hafnarstjórnar og kynningar í atvinnu-og menningarnefnd.
19.
Bréf frá foreldrum barna á Sólvöllum - Saltkráku
Málsnúmer 1208080
Þennan dagskrárlið sat fræðslustjóri.
Fram lagt bréf frá foreldrum barna á leikskóladeildinni Saltkráku á Sólvöllum sem vísað er frá fræðslu- og frístundanefnd.  Foreldrar óska eftir að Fjarðabyggð taki þátt í að greiða ferðakostnað þeirra vegna barna sem flytjast á leikskóladeild á Kirkjumel en fræðslu- og frístundanefnd hefur hafnað beiðninni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara yfir málið.  Málið tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
20.
Málefni Lyfju í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1104026
Fram lagt bréf Lyfju þar sem tilkynnt er um lokun lyfjaútibúsins á Fáskrúðsfirði frá og með 15. nóvember n.k.
Bæjarráð mótmælir harðlega lokun lyfjaútibúsins og telur hana vera verulega þjónustuskerðingu við íbúa á Fáskrúðsfirði.  Bæjarstjóra falið að koma mótmælum á framfæri við forsvarsmenn fyrirtækisins.
21.
Talmeinafræðingar
Málsnúmer 1209070
Þennan dagskrárlið fundar sat fræðslustjóri.
Fyrirspurn frá foreldri, um þátttöku Fjarðabyggðar í talmeinakennslu barns, vísað frá fræðslu- og frístundanefnd.  Sjúkratryggingar Íslands greiða ekki kostnað vegna talmeinakennslu barna.
Bæjarráð telur greiðslu talmeinakennslu ekki vera hlutverk sveitarfélagsins en það sé hlutverk Sjúkratrygginga Íslands og getur því ekki orðið við beiðni.  Fyrir liggur að viðræður eru í gangi milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi ráðuneyta um greiðslur vegna talmeinakennslu barna og hvetur bæjarráð hlutaðeigandi aðila til að finna lausn þessara mála.
22.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Málsnúmer 1201124
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 27 frá 9. október sl. lögð fram til kynningar.
23.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 47
Málsnúmer 1209013F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 47 frá 24. september lögð fram til kynningar.
24.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 48
Málsnúmer 1210007F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 48 frá 10. október lögð fram til kynningar.
25.
Fræðslu- og frístundanefnd - 29
Málsnúmer 1209014F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 29 frá 3. október lögð fram til kynningar
26.
Fræðslu- og frístundanefnd - 30
Málsnúmer 1210005F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 30 frá 10. október lögð fram til kynningar.
27.
Atvinnu- og menningarnefnd - 35
Málsnúmer 1210004F
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 35 frá 11. október lögð fram til kynningar.
28.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Málsnúmer 1201123
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 35. frá 10. október s.l. lögð fram til kynningar.