Fara í efni

Bæjarráð

688. fundur
16. nóvember 2020 kl. 08:30 - 10:30
í fjarfundi vegna COVID19
Nefndarmenn
Sigurður Ólafsson formaður
Pálína Margeirsdóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnlaugur Sverrisson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024
Málsnúmer 2005017
Umræða um tilhögun vinnu milli umræðna við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024. Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu verkefnum og áherslumálum sem unnið er að á milli umræðna.
2.
Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Dalborg 2020
Málsnúmer 2010096
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði GG þjónustu ehf. í ræstingu við leikskólann Dalborg Eskifirði, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
3.
Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Lyngholt 2020
Málsnúmer 2010095
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði GG þjónustu ehf. í ræstingu við leikskólann Lyngholt Reyðarfirði, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
4.
Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Eyrarvelli 2020
Málsnúmer 2010094
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði GG þjónustu ehf. í ræstingu við leikskólann Eyrarvelli í Neskaupstað, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
5.
Verðfyrirspurn fyrir leikskólann Kærabæ 2020
Málsnúmer 2010092
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði GG þjónustu ehf. í ræstingu við leikskólann Kærabæ Fáskrúðsfirði, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
6.
Verðfyrirspurn fyrir bæjarskrifstofur Hafnargotu 2
Málsnúmer 2010093
Niðurstaða verðfyrirspurnar kynnt. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Heimili og þrifa - LMOJ ehf. í ræstingu á bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2 Reyðarfirði, sbr. tillögu í minnisblaði fjármálastjóra. Jafnframt verði gerður 3ja ára samningur um verkefnið í samræmi við verðfyrirspurnargögn.
7.
Gjaldskrá fasteignagjalda 2021
Málsnúmer 2009133
Endursamþykkja þarf gjaldskrá fasteinagjalda fyrir árið 2021 þar sem villa var í bókun bæjarstjórnar á fundi 5.nóvember sl., um upphæð sorphirðu- og sorpeyðingargjalda. Rétt upphæð sorphreinsunargjalds er 31.136 kr. og sorpeyðingargjalds er 14.777 kr. Gjaldskráin er að öðru leyti rétt. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar henni að nýju til staðfestingar í bæjarstjórn.
8.
Íþrótta -og tómstundastyrkur ríkið
Málsnúmer 2011009
Framlögð eru drög að reglum Fjarðabyggðar um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki. Um er að ræða úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja til barna frá tekjulágum heimilum til að auka jöfnuð til íþrótta- og tómstundastarf, sbr. fjáraukalög fyrir árið 2020, sbr. og lög nr. 26/2020, um afmarkaðar og tímabundnar ráðstafanir til að bregðast við áhrifum COVID-19 faraldursins. Félagsmálanefnd hefur samþykkt reglur um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir reglur og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
9.
Tendrun ljósa á jólatrjám 2020
Málsnúmer 2011089
Lagt fram minnisblað upplýsingafulltrúa varðandi tendrun ljósa á jólatrjám í Fjarðabyggð 2020. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði um framkvæmdina.
10.
Selnes 14 Breiðdalsvík
Málsnúmer 2011055
Lögð fram tillaga RARIK vegna kaupa fyrirtækisins á gamla rafstöðvarhúsinu við Selnes 14 í Breiðdal. Beiðnin er tilkomin vegna aukinnar notkunar á Selnesinu sem kallar á stækkun á spenni svæðisins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd setur sig ekki á móti sölu á áðurgreindri fasteign og hefur samþykkt fyrir sitt leyti að hún verði sett á söluskrá sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að selja RARIK húsið.
11.
Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur
Málsnúmer 2009173
Vísað frá félagsmálanefnd til bæjarráðs. Framlagðar eru reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur ásamt minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Félagsmálanefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs. Bæjarráð staðfestir reglur og vísar þeim til samþykkktar í bæjarstjórn.
12.
Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði
Málsnúmer 2004112
Fundargerð starfshóps frá 11.nóvember lögð fram til kynningar. Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að yfirfara kostnaðaráætlun fyrir næsta fund bæjarráðs. Bæjarstjóra er jafnframt falið að hefja undirbúning að framkvæmdum við grunn hússins.
13.
Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannsóknir á högun og líðan ungmenna 2021-2024
Málsnúmer 2011063
Fyrir liggja drög að samningi Fjarðabyggðar við Rannsóknir og greiningu um úrvinnslu úr rannsóknum á högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Samningurinn er í stórum dráttum sambærilegur þeim samningi sem gilt hefur undanfarin ár. Markmið úrvinnslunnar er að vinna hagnýtar upplýsingar í hendur forvarnarhópa og bæjaryfirvalda til stefnumótunar og áætlunargerðar í málefnum ungmenna í sveitarfélaginu, styrkja faglegan grundvöll stefnumótunar, auka virði samfélagsins gagnvart börnum og stuðla að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Bæjarráð staðfestir samning.

14.
735 Leirukrókur 4 - Umsókn um lóð
Málsnúmer 2010123
Lögð fram lóðarumsókn Eskju hf., dagsett 19. október 2020, þar sem sótt er um lóðina við Leirukrók 4 á Eskifirði. Lóðinni hefur áður verið úthlutað til Fjarðabyggðar undir móttökustöð á sorpi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að Fjarðabyggð skili inn lóðinni. Nefndin samþykkti jafnframt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að nýju og vísaði umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Jafnframt var sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að kanna möguleika á nýju iðnaðarsvæði á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóð.
15.
Austurland - Áfangastaður starfa án staðsetningar
Málsnúmer 2011097
Lagðar fram til kynningar upplýsingar um verkefnið Austurland - áfangastaður starfa án staðsetningar - sem er hluti af aðgerð C.1 til sértækra verkefna á sóknaráætlanasvæðum, í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024. Austurbrú er að vinna að umsókn í verkefnið fyrir hönd SSA.
16.
Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 28.október 2020
Málsnúmer 2010039
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 28.október sl., lögð fram til kynningar.
17.
Hafnarstjórn - 252
Málsnúmer 2011007F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 252 frá 10. nóvember lögð fram til umfjöllunar.
17.1 Húsnæði þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði
17.2 Framkvæmdir hafnarsjóðs 2020
17.3 Málefni Hafnargötu 31 á Fáskrúðsfirði
17.4 Erindi frá Eimskip - Gjaldskrá
17.5 Hafnasambandsþing 2020
17.6 Fundir með laxeldisfyrirtækjum í Fjarðabyggð
17.7 Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 9
17.8 Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003
18.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 275
Málsnúmer 2011005F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 275 frá 9.nóvember, lögð fram til umfjöllunar.
18.1 Framkvæmdasvið verkefni 2020
18.2 Fyrirspurn vegna Led götulýsinga í Farðabyggð
18.3 Selnes 14 Breiðdalsvík
18.4 Húsnæði þjónustusmiðstöðvar á Fáskrúðsfirði
18.5 Umbótagöngur í þemaviku Nesskóla
18.6 Kvíabólsstígur - ósk um viðgerðir á götu
18.7 Vatnsflaumur við Kvíabólsstíg í Neskaupstað
18.8 Steypuveggur við Kvíabólsstíg 4
18.9 740 - Horn Egilsbrautar og Kvíabólsstígs - Ósk um breytingu á deiliskipulagi
18.10 735 Leirukrókur 4 - Umsókn um lóð
18.11 735 Lambeyrarbraut - Umsókn um lóð
18.12 730 Austurvegur 4 - Umsókn byggingarleyfi, varmadælur
18.13 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
19.
Félagsmálanefnd - 138
Málsnúmer 2011006F
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 138 frá 10.nóvember, lögð fram til umfjöllunar.
19.1 Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur
19.2 Íþrótta -og tómstundastyrkur ríkið
19.3 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021
19.4 Viðbragðsáætlanir COVID
20.
Fræðslunefnd - 92
Málsnúmer 2011004F
Fundargerð fræðslunefndar nr. 92 frá 11.nóvember, lögð fram til umfjöllunar.
20.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2020-2021
20.2 Niðurstöður úr Skólavoginni
20.3 Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur
20.4 Ytra mat leikskóla 2021
20.5 Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannsóknir á högun og líðan ungmenna 2021-2024
21.
Barnaverndarfundargerðir 2020
Málsnúmer 2003129
Fundargerð barnarnverndarnefndar nr. 123 frá 12.nóvember 2020, lögð fram til umfjöllunar.
Snorri Styrkársson fjármálastjóri sat fyrstu tólf fundarliði fundarsins og vék af fundi kl. 10:08.