Fara í efni

Bæjarráð

756. fundur
27. júní 2022 kl. 08:30 - 09:30
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Stefán Þór Eysteinsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Aldurstakmark í líkamsræktir Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2206068
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um að ungmenni á þrettánda ári fá aðgeng að líkamsræktum Fjarðabyggðar. Gildir frá 1. júní ár hvert fyrir ungmenni sem eru á þrettánda ári.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar.
2.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026, skipan upplýsingaöryggisnefndar
Málsnúmer 2205172
Skipan í upplýsingaöryggisnefnd. Bæjarráð kýs fimm fulltrúa í upplýsingaöryggisnefnd. Upplýsingaöryggisnefnd er bæjarráði til ráðuneytis um persónuverndar- og upplýsingaöryggismál. Bæjarráð samþykkir að nefndina skipi bæjarritari, stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar, fræðslustjóri, forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála ásamt persónuverndarfulltrúa.
3.
Erindi til sveitarstjórnar vegna stefnumótunar í þremur málaflokkum
Málsnúmer 2206084
Framlagður tölvupóstur frá innviðaráðuneytinu vegna stefnumótunar. Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga 2019-2033 og Landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt því að móta nýja húsnæðisstefnu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjórum að svara umbeðnum upplýsingum.
4.
Endurskoðun samþykktar um bygginganefnd í Fjarðabyggð
Málsnúmer 2206094
Framlögð drög að uppfærðri samþykkt um bygginganefnd í Fjarðabyggð vegna breytinga á samþykktum sveitarfélagsins. Samþykktin var upphaflega samþykkt árið 2013, 820/2013.
Bæjarráð samþykkir uppfærðar samþykktir fyrir sitt leyti og vísar þeim til fyrri umræðu bæjarstjórnar og kynningar umhverfis- og skipulagsnefndar.
5.
735 Dalbraut 10 - umsókn um lóð
Málsnúmer 2201124
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn fyrir geymsluhúsnæði að Dalbraut 10 á Eskifirði en afgreiðslu umsóknar lóðar var frestað þar sem deiliskipulag var ekki tilbúið en nú hefur það verið staðfest.
Bæjarráð staðfestir úthlutun lóðarinnar.
7.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2022
Málsnúmer 2206097
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga er áformuð 13. til 14. október.
Bæjarráð samþykkir að gefa aðalfulltrúum bæjarstjórnar kost á að sitja fyrstu fjármálaráðstefnu kjörtímabilsins. Bæjarráð ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra sitja ráðstefnuna.
8.
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
Málsnúmer 2104136
Vísað frá hafnarsjóði til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2022.
Bæjarráð felur fjármálastjóra gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2022.
9.
Hafnarstjórn - 279
Málsnúmer 2206004F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 14. júní lögð fram til afgreiðslu
9.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
9.2 Fóðurprammi sekkur við Gripalda
9.3 World Hydrogen Summit 2022
9.4 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss
10.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 1
Málsnúmer 2206010F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. júní lögð fram til afgreiðslu
10.1 Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar
10.2 750 Hafnargata 23 - Framkvæmdaleyfi, fylling
10.3 750 Framkvæmdaleyfi - Strenglögn frá Fáskrúðsfirði að Kolfreyjustað
10.4 740 Ingunarveita að gatnamótum Leiruvegar og Hafnarnaust - Framkvæmdaleyfi vegna skurða í tengslum við stofnlögn
10.5 Umhverfismál 2022
10.6 Nytjamarkaður, Fjb.
10.7 730 Búðarmelur 27 - umsókn um lóð
10.8 730 Búðarmelur 29 - umsókn um lóð
10.9 730 Búðarmelur 31 - umsókn um lóð
10.10 740 Naustahvammur 20 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
10.11 735 Karlsstaðir - Umsókn um byggingarheimild, skálavarðarhús
10.12 760 Sólheimar 9 - Umsókn um byggingarleyfi, einbýlishús
10.13 740 Egilsbraut 26 - umsókn um stöðuleyfi
10.14 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
10.15 Frumvarp til laga um skipulagslög (uppbygging innviða), 573. mál.
10.16 735 Dalbraut 10 - umsókn um lóð
11.
Félagsmálanefnd - 154
Málsnúmer 2206008F
Fundargerð félagsmálanefndar frá 22. júní lögð fram til afgreiðslu
11.1 Félagsmálanefnd 2022
11.2 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2022
11.3 Sprettur
11.4 Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög
11.5 Húsnæðismál félags eldri borgara á Eskifirði
12.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 100
Málsnúmer 2206009F
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22. júní lögð fram til afgreiðslu
12.1 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vetur 2022
12.2 Notkun íþrótta- og tómstundastyrk barna fyrir líkamsræktir Fjarðabyggðar
12.3 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
12.4 Aldurstakmark í líkamsræktir Fjarðabyggðar
12.5 Umsókn um íþróttastyrk
12.6 Umsókn um íþróttastyrk
12.7 Umsókn um íþróttastyrk
12.8 Fjárhagsyfirlit íþrótta- og tómstundamála 2022
12.9 Talning þátttakenda vegna styrkveitinga meginfélaga
12.10 Efling á félagsstarfi fullorðinna á árinu 2022 í kjölfar Covid-19
12.11 Íþrótta- og tómstundasvið yfirlit 2022
13.
Barnaverndarnefnd 2022
Málsnúmer 2202112
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 21. júní lögð fram til afgreiðslu.
14.
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 1
Málsnúmer 2206012F
Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 24. júní lögð fram til afgreiðslu
14.1 Erindisbréf stjórnar menningarstofu og safnastofnunar
14.2 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 - fulltrúar í stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga
14.3 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 fulltrúar í stjórn Sjóminjasafns Austurlands
14.4 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026 - fulltrúar í stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands
14.5 Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
14.6 Verkefni menningarstofu 2022
14.7 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2022
14.8 Menningar- og listahátíðin innsævi