Fara í efni

Bæjarráð

958. fundur
7. september 2026 kl. 08:30 - 12:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Málsnúmer 2605021
Tillaga lögð fram um breytingu á kjörstjórn á Norðfirði.
Eyrún Eggertsdóttir er að flytjast búferlum af svæðinu en hún hefur verið varamaður í kjörstjórn á Norðfirði. Í stað hennar er Sigrún Víglundsdóttir skipuð í kjörstjórnina.
3.
Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2510108
Vísað frá stjórn menningarstofu til umfjöllunar bæjarráðs framvindu framkvæmda við fyrsta áfanga uppbyggingar safnsins og fjármögnun áfangans m.a. til innréttinga og sýninga.
Bæjarráð vísar fjármögnun áfangans til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins.
4.
Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði
Málsnúmer 2501185
Farið yfir hugmyndir að uppbyggingu miðbæjarkjarna á Reyðarfirði með fulltrúa R101 ehf.
5.
Haustþing SSA 2026
Málsnúmer 2609049
Framlögð dagskrá haustþings Sambands sveitarfélaga á Austurlandi ásamt upplýsingum um fyrirkomulag þingsins.
6.
Landsþings sambandsins 23.-25.09.26
Málsnúmer 2602019
Landsþing sveitarfélaga verður haldið dagana 23. til 25. september.
Drög að stefnumörkun Sambandsins lögð fram til kynningar.
7.
Fjármálaráðstefna 2026
Málsnúmer 2609074
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin 8. til 9. október nk. Farið yfir ferðaskipulag og þátttöku en bæjarfulltrúar ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra sækja ráðstefnuna.
8.
Loftslagsskyldur sveitarfélaga og loftslagsstefna Íslands
Málsnúmer 2609013
Glærur frá samtalsfundi vegna loftslagsstefnu Íslands lagðar fram til kynningar.
Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar til skoðunar.
9.
Breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga
Málsnúmer 2609085
Framlagt minnisblað til kynningar um breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga sem taka gildi frá 1. janúar 2027.
Vísað til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefnd.
10.
Samstarfssamningur um hugbúnaðarlausn
Málsnúmer 2608069
Farið yfir hugmyndir að hugbúnaðarlausn fyrir úrgangsmál.
11.
Stjórn menningarstofu - 41
Málsnúmer 2608024F
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 1. september lögð fram til afgreiðslu.
12.
Fjölskyldunefnd - 65
Málsnúmer 2608025F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. september lögð fram til afgreiðslu.
13.
Stjórnkerfisnefnd 2026
Málsnúmer 2608281
Farið yfir stöðu verkefna sem unnið var að í tengslum við úttekt Deloitte sem og síðustu breytingar.