Bæjarráð
962. fundur
29. september 2026
kl.
10:30
-
12:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Hrafn Bjarnason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson
sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs
Dagskrá
1.
Fjarðarbyggðarhöllin, hönnun og útboð loftræstingar
Niðurstaða útboðs á uppsetningu loftræstingar í Fjarðabyggðarhöllina. Sviðsstjóri mætir á fundinn og fór yfir niðustöðu útboðsins.
Tvö tilboð bárust í verkið:
Launafl EHF - 92.447.717
Borg byggingarlausnir - 126.410.466
Kostnaðaráæltun verksins er 100.000.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðenda, Launafls og felur bæjarstjóra undirritun samnings um verkið. Bæjarráð leggur áherslu á að tímaáætlanir verksins standist.

2.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Yfirferð á stöðu mála við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Bókun bæjarráðs:
Fjarðabyggð samþykkir að hækkanir almennra gjaldskráa í rekstri A-hluta sveitarfélagsins á árinu 2027 verði ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans, 2,5%. Forsenda þess er að gildandi kjarasamningar haldi. Til að ná sameiginlegum markmiðum um lægri verðbólgu og vexti og bæta hag heimilanna þurfa allir að taka höndum saman.
Skorað er á ríkisvaldið og stofnanir þess að fylgja góðu fordæmi sveitarfélaganna og takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álögur á heimilin. Sameiginlegt aðhald og ábyrgð ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins eru lykilforsendur þess að sá árangur náist og kjarasamningar haldi.

3.
Ályktun skólanefndar Verkmenntaskóla Austurlands - Viðbyggingin við verknámshús
Framlögð ályktun Skólanefndar Verkmenntaskóla Austurlands vegna stöðu mála við viðbyggingun við verknámshús skólans. Skólameistari VA og formaður Skólanefndar komu á fundinn kl. 11:00
Bókun bæjarráðs varðandi málið:
Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir ályktun skólanefndar Verkmenntaskóla Austurlands og lýsir yfir miklum vonbrigðum með framgöngu ríkisvaldsins vegna fyrirhugaðrar stækkunar verknámshúss skólans. Fjarðabyggð hefur á undanförnum árum lagt ríka áherslu á að stækkunin komi til framkvæmda hið fyrsta. Þrátt fyrir undirritun viljayfirlýsingar árið 2022 hafa framkvæmdir ekki hafist og enn skortir skýra, tímasetta áætlun um fjármögnun og framgang verkefnisins.
Bæjarráð kallar eftir sanngjarnri hlutdeild í opinberri fjárfestingu og krefst þess að fyrirheit um uppbyggingu innviða endurspeglist í raunverulegum fjárfestingum. Öflugt iðn- og verknám er grundvöllur fjölbreyttra námstækifæra á Austurlandi og forsenda þess að atvinnulíf á svæðinu hafi aðgang að menntuðu fagfólki til áframhaldandi verðmætasköpunar.
Bæjarráð telur óásættanlegt að brýnni uppbyggingu skólans sé áfram slegið á frest og tekur undir athugasemdir skólanefndar um skort á samráði og upplýsingagjöf af hálfu viðkomandi ráðuneyta. Langvarandi óvissa hamlar þróun náms og starfsemi skólans og samræmist ekki yfirlýstum markmiðum um eflingu iðn- og verknáms.

4.
Til umsagnar 66. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 66. mál "Leit að olíu og gasi".
Bókun Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Miðflokks:
"Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur heilshugar undir þingsályktunartillögu um leit að olíu og gasi.
Mikilvægt er að stjórnvöld beiti sér fyrir því að hafnar verði að nýju markvissar rannsóknir á olíu- og/eða gaslindum á landgrunni Íslands og tryggi með viðeigandi löggjöf að þjóðin öll njóti góðs af því ef slíkar auðlindir finnast í íslenskri lögsögu.
Hagsmunir Austurlands eru miklir í þessu sambandi. Af hálfu hagaðila hefur verið bent á
Fjarðabyggðarhafnir sem þjónustuhöfn vegna olíuleitar og mögulegrar vinnslu. Slík starfsemi gæti skapað mikilvæg tækifæri til atvinnuuppbyggingar og aukinnar verðmætasköpunar í landshlutanum."
Fulltrúi Samfylkingarinnar situr hjá við afgreiðslu bókunarinnar:
"Fulltrúi Samfylkingarinnar, og annars félagshyggjufólks telur mikilvægt að umræða um mögulegar olíu- og gaslindir á íslenska landgrunninu byggist á vandaðri rýni á fyrirliggjandi gögnum og mati á forsendum frekari rannsókna undir forystu stjórnvalda. Einnig er mikilvægt að tryggt sé með viðeigandi löggjöf að þjóðin öll njóti góðs af því ef slíkar auðlindir finnast í íslenskri lögsögu.
Hagsmunir Austurlands eru miklir í þessu sambandi. Af hálfu hagaðila hefur verið bent á Fjarðabyggðarhafnir sem mögulega þjónustuhöfn vegna olíuleitar og mögulegrar vinnslu. Slík starfsemi gæti skapað mikilvæg tækifæri til atvinnuuppbyggingar og aukinnar verðmætasköpunar í landshlutanum. Jafnframt þarf að meta umhverfisáhættu, áhrif á sjávarútveg og samræmi við loftslagsmarkmið áður en tekin er afstaða til nýrrar olíuleitar eða mögulegrar vinnslu."
Bæjarráð felur bæjarritara að semja og senda umsögn um tillöguna á grundvelli fyrri bókana.
Umsagnarfrestur vegna málsins er til 6. október.

5.
Svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur óskað eftir tilnefningi í svæðissráð um strandsvæðaskipulag Austfjarða.
Fjarðabyggð tilnefnir sem aðalmenn Hrafn Bjarnason og Helgu Rakel Arnardóttur, og Stefán Þór Eysteinsson og Þórdísi Mjöll Benediktsdóttur til vara.

6.
Atvinnumál
Lagt fram sem trúnaðarmál innra minnisblað bæjarstjóra vegna erindis um atvinnumál.
7.
Fyrirspurn um útboð sept 2026
Framlagt erindin ÍS - Travel vegna aksturs á vegum Fjarðabyggðar. Sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs falið að vinna minnisblað vegna erindisins og leggja fyrir bæjarráð að nýju í næstu viku.
8.
Forkaupsréttur að Bjarna Ólafssyni AK 70
Framlagt erindi Síldarvinnslunar þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til nýtingu forkaupsréttar á skipinu Bjarni Ólafsson AK - 70.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að skipiunu Bjarna Ólafssyni AK - 70

9.
Erindi frá Nestak - september 2026
Framlagt erindi frá Nestak varðandi hjúkrunarheimili í Neskaupstað.
Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnar áhuga Nestaks um uppbyggingu hjúkrunarrýma í Neskaupstað og styður þau heilshugar. Uppbygging hjúkrunarrýma í Fjarðabyggð er mikilvægt skref til að mæta þörfum íbúa og efla þjónustu við eldra fólk í Fjarðabyggð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hafa samband við forsvarsmenn Nestaks um áhugan og næstu skref við að kanna forsendur uppbyggingarinnar.

10.
Málaskrá og ábendingakerfi
Farið yfir stöðu mála í ábendingakerfi Fjarðabyggðar, ferli ábendinga og svörun. Frestað til næsta fundar.
11.
Kjördæmavika þingmanna - október 2026
Þingmenn Norðausturkjördæmis koma til fundar við bæjarráð fimmtudaginn 1. október 2026 kl. 12.
Farið yfir drög að samantekt bæjarstjóra sem lögð verður fram á fundinum.

12.
Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2026
Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Austurbrúar og stjórnar SSA frá 15. september 2026
13.
Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026
Framlagt fundarboð á aðalfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem fram fer miðvikudaginn 7. október 2026. Ragnar Sigurðsson mætir á fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.
14.
Ársfundur SSKS 2026
Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum fer fram miðvikudaginn 7. október. Jóna Árný Þórðardóttir, mætir á fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.
15.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 69
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefnar nr. 69 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu
15.1
2606170 - Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
15.2
2609190 - Byggingarleyfi Heiðarvegur 37 - Stríðsárasafn, annar áfangi 730 Reyðarfjörður
15.3
2609105 - Byggingarleyfi Mógerði 3, 730 Reyðarfjörður
15.4
2609162 - Byggingarleyfi Hafnargata 1, slönguhús, 750 Fáskrúðsfjörður
15.5
2609174 - Umsókn um stækkun á lóð Búðarmelur 27, 730 Reyðarfjörður
15.6
2609171 - Umsókn um stækkun lóðar Efstagerði 1, 730 Reyðarfjörður
15.7
2608008 - Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfjörður
15.8
2602149 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026
15.9
2609177 - Hætta móttöku lífúrgangs