Fara í efni

Bæjarráð

963. fundur
5. október 2026 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Kristinn Þór Jónasson varamaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson sviðsstjóri mannauðs- og umbótasviðs
Dagskrá
1.
Sjálfvirknivæðing móttöku og símsvörunar 2026
Málsnúmer 2609028
Framlagt að nýju minnisblað varðandi sjálfvirknivæðingu í móttöku og símsvörun. Upplýsingafulltrúi kom á fundinn og fór yfir minnisblaðið. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur sviðsstjóra varðandi sjálvirknivæðingu móttöku og símsvörunar, en um verði að ræða tilraunaverkefni til eins árs. Upplýsingafulltrúa falið að vinna málið áfram.
2.
Samráðsfundur um almenningssamgöngur á austurlandi
Málsnúmer 2603134
Framlögð til kynning Vegagerðinnar á drögum að nýju leiðakerfi landsbyggðarvagna Strætó, ásamt fundargerð kynningarfundar sem fram fór 30. september sl og minnisblaði sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs.

Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og felur bæjarstjóra að óska eftir því að fulltrúar Vegagerðinnar komi á fund bæjarráðs til að fara yfir málið.
3.
Málaskrá og ábendingakerfi
Málsnúmer 2510183
Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa vegna stöðu mála í ábendingakerfi Fjarðabyggða, og virkni kerfisins. Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að skerpa á verklagsreglum sem snúa að vinnslu ábendinga. Málið tekið fyrir að nýju á næsta bæjarráðsfundi, ásamt kynningu á nýju ábendingakerfi.
4.
Breytt skipulag lögreglunnar
Málsnúmer 2610020
Dómsmálaráðherra hefur kynnt fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Með breytingunum stendur til að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú auk þess sem skerpt verður á hlutverki ríkislögreglustjóra.

Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglu sem fela í sér sameiningu lögregluembættanna á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Bæjarráð hafnar því að sjálfstætt lögregluembætti á Austurlandi verði lagt niður og stjórnun löggæslu í landshlutanum verði færð í margra klukkustunda fjarlægð og út fyrir Norðausturkjördæmi.

Á Austurlandi er umfangsmikil atvinnustarfsemi, mikill innflutningur og útflutningur um hafnir og mikilvæg verkefni á sviði landamæraeftirlits. Þá hefur reynsla undanfarinna ára af náttúrvá sýnt með ótvíræðum hætti mikilvægi staðbundinnar þekkingar, skýrrar ábyrgðar og öflugrar stjórnunar almannavarna í heimabyggð.

Sveitarfélög á Austurlandi hafa lengi kallað eftir fjölgun lögreglumanna, bættum tækjabúnaði og auknu landamæraeftirliti. Bæjarráð telur ljóst að svar við þeim þörfum felist ekki í að færa yfirstjórn embættisins frá landshlutanum. Fækkun embætta og breyting á skipuriti jafngilda ekki eflingu löggæslu. Landfræðilegar fjarlægðir og verkefni lögreglunnar hverfa ekki við sameiningu.

Yfirlýsingar um óbreyttan fjölda starfsstöðva og aðstoðarlögreglustjóra í hverju umdæmi nægja ekki til að tryggja staðbundið ákvörðunarvald. Leggja þarf fram skýrar upplýsingar um valdheimildir, ráðstöfun mannafla, fjármögnun og stjórnun almannavarna. Án þeirra er enginn grundvöllur fyrir fullyrðingum um að breytingarnar styrki þjónustu og viðbragðsgetu á Austurlandi.

Bæjarráð telur fyrirhugaða tengingu Austurlands við Suðurland og Vestmannaeyjar illa samræmast landfræðilegum aðstæðum og þjónustutengslum. Komi til skoðunar breytingar á umdæmaskiptingu er mun eðlilegra að horfa til samstarfs við Norðurland. Slík skoðun verður þó að byggjast á raunverulegu samráði við sveitarfélög og viðbragðsaðila og mati á áhrifum á öryggi íbúa.

Bæjarráð gerir kröfu um að fallið verði frá þessum áformum og þess í stað ráðist í raunverulega eflingu lögreglunnar á Austurlandi með auknum mannafla, bættum búnaði og fjárveitingum sem endurspegla umfang verkefnanna. Austurland þarf öflugt lögregluembætti með stjórnun og ákvörðunarvald í landshlutanum."
5.
Kvíabólsstígur - ósk um viðgerðir á götu
Málsnúmer 2010182
Framlagt erindi Sigga Jensonar varðandi framkvæmdir við vegg sem reistur var við Kvíabólsstíg 4 í Neskaupstað. Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið vinna málið og svara erindinu í kjölfarið.
6.
Lækjarkanntavarnir vegna Kvíabólslækjar og Þiljuvallalækjar
Málsnúmer 2511191
Framlagt erindi Sigga Jenssonar sem varðar varnir við Kvíabóls- og Þiljuvallalækjar. Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að kalla eftir formlegu svari Ofanflóðasjóðs og svara erindinu í kjölfarið.
7.
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2601212
Fundargerð fundar stjórnar Sambands íslenskra Sveitarfélaga nr. 1002 frá 11. september lögð fram til kynningar.
8.
Fundargerðir - Samtaka SVF á köldum svæðum 2026
Málsnúmer 2609300
Fundargerð 92. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum frá 16. september 2026 lögð fram til kynningar.
9.
Fjölskyldunefnd - 67
Málsnúmer 2609021F
Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 67 tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
9.1 2311040 - Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu
9.2 2601102 - Skóladagatöl 2026-2027
9.3 2609290 - Skráningadagar og sumarlokun leikskóla
9.4 2602108 - Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2027
9.5 2609219 - Ferðaþjónusta fatlaðra
9.6 2609205 - Landssöfnun - Uppbygging Reykjalunds
9.7 2607169 - Umsókn um íþróttastyrk
10.
Stjórnkerfisnefnd 2026
Málsnúmer 2608281
Fundur í stjórnkerfisnefnd.