Fara í efni

Bæjarráð

964. fundur
12. október 2026 kl. 09:00 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson sviðsstjóri mannauðs- og umbótasviðs
Dagskrá
1.
Málaskrá og ábendingakerfi
Málsnúmer 2510183
Framhald af umræðum frá síðasta fundi um ábendingakerfi Fjarðabyggðar. Forsvarsmenn Markaðsdeildarinnar ehf mæta á fundinn kl. 09:00 og fara yfir nýja virkni sem unnið er að í Fjarðabyggðar appinu varðandi ábendingar. Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna.
2.
Sjálfvirknivæðing móttöku og símsvörunar 2026
Málsnúmer 2609028
Unnið hefur verið að undirbúningi sjálfsafgreiðslu í móttökum bæjarskrifstofunnar á Búðareyri og Hafnargötu og útvistunar símsvörunar og netspjalls. Fyrir liggja tilboð í símsvörun og móttökukerfi vegna afgreiðslu og einnig minnisblað upplýsingafulltrúa vegna þeirra.

Bæjarráð samþykkir að taka annarsvegar tilboði Halló vegna símsvörunar og Edico Visit vegna móttökukerfis.
3.
Innleiðing gervigreindar
Málsnúmer 2610063
Framlagt innra vinnuskjal bæjarstjóra og sviðsstjóra mannauðs- og umbótamál varðandi innleiðingu á gervigreind ásamt fyrstu drögum að reglum um notkun gervigreindar.

Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4.
Skólaakstur endurnýjun samninga 2026-2029
Málsnúmer 2607025
Framlagt minnisblað sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs vegna stöðu samninga um skólaakstur.

Í ljósi annmarka sem komið hafa fram í ferli varðandi framlengingu samninga um akstur skólabarna í Fjarðabyggð, og þeirrar niðurstöðu úr samtölum við núverandi akstursaðila að best fari á því að fella úr gildi núverandi samkomulag um aksturinn samþykkir bæjarráð að fela bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi um gagnkvæm samningslok við Tanna Ferðaþjónustu ehf. frá 31. desember 2026 sem tryggi órofna þjónustu fram að áramótum og feli jafnframt í sér fullt og endanlegt uppgjör á milli aðila.

Samhliða samþykkir bæjarráð að hefja þegar í stað formlegan undirbúning að nýju innkaupaferli skólaakstursþjónustu sveitarfélagsins í samræmi við meginreglur laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og innkaupareglur Fjarðabyggðar. Bæjarráð felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu ásamt fjármálastjóra að hefja vinnu við það þannig að nýir samningar geti tekið gildi frá og með 1. janúar 2027.
5.
Fyrirspurn um útboð sept 2026
Málsnúmer 2609227
Framlagt að nýju erindi frá ÍS - Travel vegna útboða á skólaakstri fyrir árið 2026. Bæjarstjóra falið að svara erindi bréfritara í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Viljayfirlýsing - Heima 60 ára og eldri
Málsnúmer 2610096
Framlögð kynning á uppbyggingu íbúða fyrir 60 ára og eldri. Bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn fyrirtækisins og málið verði tekið fyrir að nýju á næsta fundi.
7.
Atvinnumál
Málsnúmer 2609283
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála vegna ýmissa atvinnuþróunarverkefna.
8.
Fjárlög 2027
Málsnúmer 2610097
Umræða um áhrif fjárlaga 2027 á Fjarðabyggð. Sviðsstjóra fjármála- og greiningarsviðs falið að taka saman minnisblað um áhrif boðaðra fjárlaga í Fjarðabyggð og leggja fyrir bæjarráð.
9.
Fundur með leigufélaginu Bríet
Málsnúmer 2511118
Iða Marsibil Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Leigufélagsins Bríetar mætir á fund bæjarráðs kl. 10:00 og fór yfir samstarfsverkefni félagsins og Fjarðabyggðar.
10.
Náma í Björgum við Reyðarfjörð
Málsnúmer 2610064
Framlagt erindi GYG vegna námuvinnslu á Reyðarfirði. Sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs falið að svara erindinu á grundvelli fyrri svara sveitarfélagsins.
11.
Gjaldskrá félagsheimila 2027
Málsnúmer 2609186
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá félagsheimila samhliða fjárhagsáætlunargerð. Stjórn leggur til að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2027.
12.
Gjaldskrá safna 2028
Málsnúmer 2610001
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá safna 2028 samhliða fjárhagsáætlunargerð. Stjórn leggur til að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2028.
13.
Þjóðaróperan 2026 - samstarf
Málsnúmer 2610045
Vísað frá fundi stjórnar Menningarstofu tillögu að viljayfirlýsingu milli Menningarstofu Fjarðabyggðar og Þjóðaróperunnar um undirbúning samstarfs við óperuna um stærri sýningar og árlegt fræðsluverkefni í Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningnum, og felur bæjarstjóra undirritun hans.
14.
Boð á fund umhverfis- og samgöngunefndar
Málsnúmer 2610068
Óskað hefur verið eftir því að Fjarðabyggð sendi fulltrúa á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þriðjudaginn 13. október þar sem fjallað verður um 4. mál - Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.

Bæjarstjóri mun sækja fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.
15.
Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2602129
Fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 7. september 2026 lögð fram til kynningar
16.
Stjórn menningarstofu - 43
Málsnúmer 2610001F
Fundargerð 43. fundar stjórnar Menningarstofu lögð fram til staðfestingar
16.1 2603195 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
16.2 2609186 - Gjaldskrá félagsheimila 2027
16.3 2610001 - Gjaldskrá safna 2028
16.4 2608283 - Samningur um húsnæði Tónlistarmiðstöðvar Austurlands
16.5 2609282 - Ástandsskoðun Safnahússins í Neskaupstað
16.6 2609306 - Boð um gjöf á safngripum til stríðsárasafns
16.7 2610045 - Þjóðaróperan 2026 - samstarf
17.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 9
Málsnúmer 2610005F
Fundargerð 9. fundar starfshóps um íþróttahús á Eskifirði lögð fram til staðfestingar.