Bæjarráð
966. fundur
26. október 2026
kl.
08:30
-
12:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson
aðalmaður
Hrafn Bjarnason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Gunnar Jónsson
embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.

2.
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2027
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2026
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
5.
Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2027
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
6.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Framlögð frumdrög fjárhagsáætlunar 2027 til yfirferðar.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
7.
Gjaldskrá félagsheimila 2027
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá félagsheimila samhliða fjárhagsáætlunargerð. Stjórn leggur til að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2027.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að gjaldskrá og mun hún taka gildi 1. janúar
2027.

8.
Gjaldskrá safna 2028
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá safna 2028 samhliða fjárhagsáætlunargerð. Stjórn leggur til að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2028.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að gjaldskrá og mun hún taka gildi 1. janúar
2028.

9.
Breytingar á loftbrú
Framlögð til kynningar auglýsing innviðaráðuneytisins vegna áforma um breytingar á skilmálum loftbrúar um afsláttargreiðslur til einstaklinga vegna flugferða innanlands.
Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega boðaðri skerðingu á Loftbrúnni. Leita þarf leiða til að auka stuðninginn og tryggja að hann haldi verðgildi sínu. Há flugfargjöld eru verulega íþyngjandi fyrir íbúa á Austurlandi. Flugsamgöngur eru í mörgum tilvikum almenningssamgöngur íbúa og nauðsynlegar til að sækja heilbrigðisþjónustu sem fellur ekki undir endurgreiðslur Sjúkratrygging, nám, menningu og aðra þjónustu.
Bæjarráð hefur jafnframt þungar áhyggjur af því að mikill ferðakostnaður vegna æfinga-, keppnis- og æskulýðsferða leiði til aukins brottfalls barna og ungmenna úr íþrótta- og æskulýðsstarfi. Fjárhagur fjölskyldna og búseta eiga ekki að ráða möguleikum barna til þátttöku.
Skerðing á Loftbrúnni er óásættanleg aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni og gengur gegn markmiðum um jafnt aðgengi að þjónustu og tækifærum óháð búsetu. Austurland er í sókn. Fjárfestingar, húsnæðisuppbygging, lágt atvinnuleysi og öflugt atvinnulíf sýna styrk svæðisins og framtíðarmöguleika þess. Stjórnvöld þurfa að styðja við þessa þróun með því að tryggja hagkvæmar og áreiðanlegar samgöngur og góð búsetuskilyrði. Bæjarráð skorar á stjórnvöld að falla frá boðaðri skerðingu og vinna þess í stað að eflingu Loftbrúarinnar í samráði við sveitarfélög og íbúa landsbyggðarinnar.
Bókun fulltrúa Samfylkingar og annars félagshyggjufólks
Fulltrúi Samfylkingar og annars félagshyggjufólks telur mikilvægt að breytingar á Loftbrú skili sér í lægri ferðakostnaði fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Fyrir íbúa Austurlands er innanlandsflug mikilvæg samgönguleið, meðal annars þegar sækja þarf heilbrigðisþjónustu eða ferðast vegna fjölskylduaðstæðna.
Nú hefur verið ákveðið að hækka fjárveitingu til Loftbrúar úr 600 í 800 milljónir króna. Mikilvægt er að tryggja að fjárveitingin haldi verðgildi sínu til framtíðar.
Það er eðlilegt að breyta og bæta fyrirkomulag Loftbrúar. Það sem skiptir mestu máli er að stuðningurinn nýtist farþegunum og að flugfargjöld verði viðráðanleg. Sérstaklega þarf að huga að fólki sem þarf að kaupa dýra flugmiða með stuttum fyrirvara.
Ferðakostnaður skiptir líka máli fyrir börn og ungmenni. Keppnisferðir og aðrir viðburðir geta verið kostnaðarsamir fyrir fjölskyldur á landsbyggðinni. Búseta og fjárhagur fjölskyldna eiga ekki að takmarka möguleika barna til að taka þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Það er ekki nóg að ríkið greiði niður flugmiða ef flugfargjöldin sjálf halda áfram að hækka. Því þarf einnig að skoða hvernig hægt er að halda verði flugmiða í skefjum og tryggja áreiðanlegar flugsamgöngur.
Loftbrú er mikilvæg fyrir búsetu á landsbyggðinni. Stjórnvöld þurfa að tryggja nægilegt fjármagn til verkefnisins og að stuðningurinn skili sér í lægri ferðakostnaði fyrir íbúana.

10.
Gamla netagerðin í Neskaupstað
Framlagt erindi frá áhugahóp um nýtingu gömlu netagerðarinnra í Neskaupstað.
Bæjarráð þakkar erindið og felur bæjarstjóra að funda með bréfritara.

11.
Umsókn um styrki vegna fornleifarannsókna
Framlagt erindi félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði varðandi styrk til verkefnisins.
Bæjarráð vísar erindi til stjórnar menningarstofu og gerðar fjárhagsáætlunar 2027.

12.
Athugasemdir vegna úthlutun lóðarinnar Egilsbrautar 16 í Neskaupstað.
Hrafn Bjarnason vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Framlagt erindi frá Bærinn okkar, félagasamtökum vegna afgreiðslu erindis þeirra um úthlutun lóðar í Kvíabólsfjörunni. Óskað er eftir að afgreiðsla erindis verði endurskoðuðu.
Bæjarráð hefur fjallað um úthlutun lóðarinnar við Egilsbraut 16 og telur rétt að árétta að málið á sér nokkurn aðdraganda. Eftir að umsókn um lóðina barst var hópnum, sem áður hafði gert viljayfirlýsingu um verkefnið, gefinn kostur á að leggja fram gögn á grundvelli hennar. Að þeim gögnum fengnum taldi skipulags- og framkvæmdanefnd ekki ástæðu til annars en að leggja til að lóðinni yrði úthlutað til lóðaumsækjanda. Byggðist það meðal annars á því að gögn hópsins voru ekki talin fullnægjandi og að hvorki hefði verið staðið við áætlað upphaf framkvæmda né verklok samkvæmt viljayfirlýsingunni. Í kjölfarið lagði hópurinn ítarlegri gögn fyrir bæjarráð, meðal annars verkáætlun og óskaði eftir endurskoðun málsins. Bæjarráð varð við þeirri ósk og vísaði málinu að nýju til skipulags- og framkvæmdanefndar. Nefndin hefur nú farið yfir viðbótargögnin og ítrekað tillögu sína um að lóðinni verði úthlutað til lóðaumsækjanda.
Bæjarráð telur því að hópurinn hafi fengið tækifæri til að leggja fram gögn og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Bæjarráð telur miður að ágreiningur hafi skapast um verkefnið. Mikilvægt er að staðið sé saman að uppbyggingunni, samfélaginu til heilla og hvetur bæjarráð hlutaðeigandi aðila til að vinna saman að framgangi verkefnisins.

13.
Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfirði
Hrafn Bjarnason vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Framlögð að nýju til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Egilsbraut 16 í Neskaupstað en skipulags- og framkvæmdanefnd hefur lokið umfjöllun sinni um úthlutun lóðarinnar.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

14.
Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2026
Framlagt boð á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem haldinn verður 12. nóvember kl. 14:00 á fjarfundi.
Bæjarráð samþykkir að fela Jónu Árnýju Þórðardóttur að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

15.
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Sambandsins nr. 1003 og 1004.
16.
Fjölskyldunefnd - 69
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 21. október lögð fram til afgreiðslu.
17.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 71
Fundargerð 71. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. október lögð fram til staðfestingar
17.1
2610156 - Yfirlýsing til Bæjarráðs Fjarðabyggðar v. mögulegrar úthlutunar á lóð í Kvíabólsfjörunni
17.2
2606170 - Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
17.3
2507014 - Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
17.4
2610120 - Snjómokstur í Fjarðabyggð 2026-2027
17.5
2610160 - Framkvæmdaleyfi
17.6
2609304 - Umhverfisviðurkenning 2026
17.7
2610124 - Umsókn um stöðuleyfi
17.8
2610118 - Umsókn um stöðuleyfi
17.9
2602149 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026
17.10

18.
Stjórn menningarstofu - 44
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 21. október lögð fram til afgreiðslu.
18.1
2211009 - Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
18.2
2610167 - Pólsk kvikmyndahátíð í Fjarðabyggð - 2026 (6. skipti)
18.3
2610151 - Víkurvaki - Áhersluverkefni í tónlistaruppbyggingu 2026 með Frystihúsinu á Breiðdalsvík
18.4
2606221 - 2. áfangi Eftirlit safnaráðs með viðurkenndum söfnum - Sjóminjasafn Austurlands
18.5
2610045 - Þjóðaróperan 2026 - samstarf
19.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 9
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 6. október staðfest.
20.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 10
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 10. október staðfest.
21.
Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 11
Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 21. október staðfest.