Fara í efni

Bæjarráð

149. fundur
12. maí 2009 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Læknisþjónusta í Fjarðabyggð.
Málsnúmer 0903114
Þennan lið fundarins sátu Björn Grétar Sveinsson og Gunnar Hjaltason fulltrúar frá Hollvinasamtökum Heilsugæslu Fjarðabyggðar.  Rætt var um læknisþjónustu í Fjarðabyggð og málefni yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar. Hannes Sigmarsson yfirlæknir kom inn á fundinn eftir að fulltrúar hollvinasamtakanna höfðu vikið af fundi og ræddi læknisþjónustu og málefni Heilsugæslunnar í Fjarðabyggð. 
2.
Innköllun veiðiheimilda
Málsnúmer 0905048
Þennan lið fundarins sátu Gísli Jónatansson framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar, Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar og Þorsteinn Kristjánsson forstjóri Eskju. Rætt var samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um innköllun veiðiheimilda sem hefjast á 2010.  Ályktun bæjarráðs um málið verður lögð fram á næsta fundi.
3.
Umsókn um byggingarlóð fyrir hesthús
Málsnúmer 0905012
Umsókn Arnleifar Axelsdóttur um lóð fyrir hesthús og jákvæð umsögn byggingarfulltrúa frá 8.5. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóð.
4.
Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands og Vaxtarsamnings Austurlands
Málsnúmer 0905019
Aðalfundir Þróunarfélags Austurlands og Vaxtarsamnings Austurlands verða haldnir þriðjudaginn 19.maí á Breiðdalsvík.  Bæjarstýra verður fulltrúi Fjarðabyggðar á fundunum.
5.
Álit frá réttindanefnd BSRB
Málsnúmer 0905023
Lagt fram til kynningar bréf stjórnar Starfsmannafélags Fjarðabyggðar frá 6.5. er varðar álit réttindanefndar BSRB á uppsögn á föstum viðbótarkjörum starfsmanna.  Bæjarstýra mun óska eftir umsögn frá kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga.
6.
Drög að reglum Fjarðabyggðar um framlög til stjórnmálasamtaka
Málsnúmer 0904075
Framlögð tillaga að reglum.  Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
7.
Fundagerð 763. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 0905024
Fundargerð lögð fram til kynningar.
8.
Starfsmannahald á Fjarðabyggðarhöfnum
Málsnúmer 0905028
Minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna frá 8.5. vegna starfsmannamála á höfnunum.  Bæjarráð fellst á tillögu framkvæmdastjóra í minnisblaði og heimilar ráðningar.  
9.
Landupplýsingakerfi Fjarðabyggðar
Málsnúmer 0905027
Framlagður samningur vegna Infrapath og vinnu við að setja upp gögn í kerfinu.  Bæjarráð samþykkir að kaupa Infrapath 2009 landupplýsingakerfi fyrir Fjarðabyggð. Kostnaður við kaup kerfisins og uppsetningu á gögnum verður greiddur af sameiningarframlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. 
10.
Greiðslufyrirkomulag á styrkjum Fjarðabyggðar
Málsnúmer 0905030
Framlagðir minnispunktar vegna fundar sem haldinn var 7.5. með Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar.
11.
Sundurliðun eftir starfsgreinum vegna atvinnuleysis á Austurlandi
Málsnúmer 0905025
Framlagt yfirlit frá Vinnumálastofnun.
12.
Styrkbeiðni vegna kjördæmamóts Bridgesambands Íslands
Málsnúmer 0905043
Bréf Kristjáns Kristjánssonar frá 10.5. þar sem farið er fram á að Kjördæmamóti Bridgesambands Íslands verði veittur styrkur sem nemur kostnaði við notkun bíls félagsþjónustu helgina 22.5. - 25.5.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk sem takist af lið 21-69.   
13.
Fundargerð Félagsmálanefnd frá 16.mars 2009
Málsnúmer 0903149
Fundargerð lögð fram.
14.
Fundargerð hafnarstjórnar nr.57. frá 5.5.2009.
Málsnúmer 0904011F
Fundargerð lögð fram.
15.
Fundargerð fræðslunefndar nr.17. frá 6.5.2009.
Málsnúmer 0904013F
Fundargerð lögð fram.
16.
Fundargerð mannvirkjanefndar nr.19. frá 4.5.2009
Málsnúmer 0904014F
Fundargerð lögð fram.
17.
Gjaldskrárbreyting hjá Rafveitu Reyðarfjarðar á tvígildistaxta
Málsnúmer 0904096
Bæjarráð staðfestir gjaldskrárbreytingu hjá Rafveitu Reyðarfjarðar á grundvelli framlagðs minnisblaðs RARIK frá 28.4.