Bæjarráð
Forstöðukona fjármála sat þennan lið fundarins. Fram kom að endurskoðuð fjárhagsáætlun verður lögð fram á næstunni og unnið er að þriggja ára áætlun sem lögð verður fram í júní. Lagt fram bréf bæjarstýru til stjórnar Starfsmannafélags Fjarðabyggðar vegna bréfs stjórnar starfsmannafélagsins frá 6.5. er varðar álit réttindanefndar BSRB á uppsögn á föstum viðbótarkjörum starfsmanna.
Framlagðar reglur um framlög til stjórnmálasamtaka sem settar eru vegna 5.gr. laga nr. 162/2006 en í þeim segir að sveitarfélög með fleiri en 500 íbúa sé skylt, en öðrum sveitarfélögum heimilt, að veita stjórnmálasamtökum, sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn í sveitarstjórn eða hlotið a.m.k. 5% atkvæða í næstliðnum sveitarstjórnarkosningum, fjárframlög til starfsemi sinnar. Reglum vísað til bæjarstjórnar.