Fara í efni

Bæjarstjórn

103. fundur
1. desember 2011 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
730-Deiliskipulag Bakkagerði 1, breyting
Málsnúmer 1111058

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bakkagerðis 1 á Reyðarfirði. Breytingin fellst í að raðhúsalóðum er breytt í íbúðarhúsalóðir, lóðum er breytt og þær sameinaðar, númerum lóða er breytt, kvaðir eru settar á tvær lóðir, hæðum húsa er breytt og lóðum er fjölgað. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi Bakkagerðis 1 Reyðarfirði og vísar deiliskipulaginu til auglýsingar.

2.
730-Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Kollaleiru, breyting
Málsnúmer 1111041

Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingartillögu deiliskipulags iðnaðarsvæðisins á Kollaleiru á Reyðarfirði. Helstu breytingar felast í að vesturhluti iðnaðarsvæðisins er stækkaður til suðurs um 10.000m2 og deiliskipulag vöruflutningahafnar minnkar sem því nemur. Fyrirhuguð gata Tjarnarvogur, ásamt lóðum vestan hennar, er felld niður. Mörkum lóða við Leiruvog og Búðareyri 33,35 og 37 er breytt og lóðin nr. 39 við Búðareyri er felld niður. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins á Kollaleiru Reyðarfirði og vísar deiliskipulaginu til auglýsingar.
3.
730 - Deiliskipulag vöruflutningahafnar - breyting
Málsnúmer 1111042

Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingartillögu deiliskipulags vöruflutningahafnar á Reyðarfirði. Breyting fellst í að 10.000m2 hluti svæðisins er felldur út úr skipulaginu og er látinn tilheyra deiliskipulagi iðnaðarsvæðis á Kollaleiru. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi vöruflutningahafnar á Reyðarfirði og vísar deiliskipulaginu til auglýsingar. 

4.
Fjárhagsáætlun 2012
Málsnúmer 1108029








Seinni umræða um fjárhagsáætlun 2012, þriggja ára áætlun 2013 - 2015 og starfsáætlanir. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />


Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði með framlagðri greinargerð og gerði grein fyrir lítilsháttar breytingum sem gerðar hafa verið á fjárhagsáætluninni milli umræðna. Um er að ræða 680.000 kr. hækkun á kostnaðarlið fjárhagsáætlunar.


Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Elvar Jónsson, Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.



Sameiginleg bókun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir nú fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Þrátt fyrir þunga skuldastöðu sýnir hún vel hversu fjárhagslega sterkt sveitarfélagið er til að takast á við erfiða stöðu án þess að vega að grunnþjónustu og velferðarkerfi þess. Fagnefndir sveitarfélagsins, ásamt bæjarráði og starfsmönnum, unnu mikið starf í undirbúningi þessarar fjárhagsáætlunar og skoðuðu alla fjárhagslega þætti sem undir þær heyrðu og vógu og mátu ýmsa kosti til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins. Við það starf var haft að leiðarljósi að þjónustuskerðingar yrðu sem minnstar gagnvart íbúum sveitarfélagsins og kæmu fram þar sem notkun þjónustu væri minnst. Þá var horft til þess að hækkanir á gjaldskrám sveitarfélagsins væru hófstilltar og tækju fyrst og fremst mið af vísitöluhækkunum til að stilla álögum á íbúa sem mest í hóf.


Þrátt fyrir að aðhalds sé gætt þá munu sveitarsjóður og undirfyrirtæki fjárfesta á árinu 2012 fyrir 330 milljónir króna sem er afar mikilvægt fyrir samfélagið í heild sinni.


Þá telur bæjarstjórn Fjarðabyggðar það mikinn styrk að samstaða hefur ríkt í nefndum um gerð fjárhagsáætlunar ársins 2012.  Endurspeglast það svo í að öll bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir hana enda er hún afrakstur sameiginlegrar vinnu allra kjörinna fulltrúa óháð flokkslínum. Í því árferði sem enn ríkir í efnahagsmálum í íslensku samfélagi er mikill styrkur að slíkum vinnubrögðum við fjárhagsstjórn Fjarðabyggðar.


Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2012 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum eru eftirfarandi


Tölur í þús.kr.           Rekstrarniðurstaða   Fjárfesting   Afborganir langtímalána og leiguskulda


Samstæða A-hluta          - 62.475            106.577          354.387


Samstæða B-hluta           376.067            223.900          156.648


Samstæða A og B           313.592            330.477          511.035


 


Ekki er gert ráð fyrir sölu eigna eða töku langtímalána.


 


Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir fjárhagsáætlun 2012, þriggja ára áætlun 2013 - 2015 og starfsáætlanir samhljóða með 9 atkvæðum.


5.
Bæjarráð - 269
Málsnúmer 1111015F
Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Sævar Guðjónsson, Elvar Jónsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 269 frá 29.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
6.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 31
Málsnúmer 1111010F
Til máls tóku Esther Ösp Gunnarsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson, Óskar Þór Hallgrímsson og Sævar Guðjónsson.  
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 31 frá 21.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
7.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Málsnúmer 1101152
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð félagsmálanefndar nr.24 frá 28.nóvember 2011 samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.