Bæjarstjórn
Bæjarstjóri fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir vék af fundi 18:35
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Helgustaðarnámu með 7 atkvæðum.
Bæjarstjóri fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.
Enginn tók til máls:
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum minniháttar breytingar sem orðið hafa á deiliskipulaginu Högnastaðir, lóð nr. 1 og staðfestir deiliskipulagið.
Bæjarstjóri fylgdi frumathuguninni úr hlaði.
Til máls tók Sævar Guðjónsson.
Bæjarstjóri fylgdi úr hlaði tillögum að skilgreindum hundasvæðum í Fjarðabyggð sem eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur mótað. Samkvæmt 7.gr. samþykktar um hundahald kemur fram að sveitastjórn getur ákveðið að láta afmarka ákveðin svæði þar sem sleppa má hundum lausum. Svæði þessi skulu auglýst og kynnt sérstaklega fyrir hundaeigendum.
Til máls tóku: Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Eiður Ragnarsson.
Tillaga: Undirritaður leggur til að tillögu um skilgreind hundasvæði í Fjarðabyggð verði vísað til baka til endurskoðunar og vinnu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar á grunni þeirrar umræðu sem fram hefur farið í bæjarstjórn 29. mars 2012. Flutningsmaður Guðmundur Þorgrímsson.
Tillaga staðfest af bæjarstjórn með 6 atkvæðum, Valdimar O Hermannsson situr hjá.
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson, Valdimar O Hermannsson, Jens Garðar Helgason.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu með 7 atkvæðum og felur bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna fyrir hönd Fjarðabyggðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />