Fara í efni

Bæjarstjórn

112. fundur
12. apríl 2012 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson ritari bæjarstjórnar
Dagskrá
1.
Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2011, fyrri umræða.
Málsnúmer 1203156
Fyrri umræða um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2011. 
Þennan dagskrárlið fundar sátu jafnframt fjármálastjóri og endurskoðandi sveitarfélagsins.
Bæjarstjóri fylgdi ársreikningi úr hlaði með greinargerð sinni. 
Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson,  
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana til síðari umræðu í bæjarstjórn.
2.
Bæjarráð - 287
Málsnúmer 1203017F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  
Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Sævar Guðjónsson, Guðmundur Þorgrímsson.
Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.
3.
Bæjarráð - 288
Málsnúmer 1204001F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  
Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.
4.
Siðareglur
Málsnúmer 1201063
Fram lagðar til staðfestingar siðareglur kjörinna fulltrúa og stjórnenda hjá Fjarðabyggð.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði. 
Enginn tók til máls.
Siðareglur kjörinna fulltrúa staðfestar með 9 atkvæðum.  Siðareglur stjórnenda staðfestar með 9 atkvæðum.