Bæjarstjórn
Forseti bæjarstjórnar bar upp sameiginlega tillögu bæjarstjórnar um skipan í nefndir og embætti til eins árs sbr. samþykktir um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Forseti bæjarstjórnar: Jón Björn Hákonarson
1. varaforseti bæjarstjórnar: Jens Garðar Helgason
2. varaforseti bæjarstjórnar: Elvar Jónsson
Skrifarar bæjarstjórnar:
Aðalmenn: Guðmundur Þorgrímsson og Eydís Ásbjörnsdóttir.
Varamenn: Valdimar O. Hermannsson og Esther Gunnarsdóttir.
Bæjarráð aðalmenn: Jens Garðar Helgason formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Elvar Jónsson.
Fulltrúar á aðalfund SSA:
Aðalmenn: Jón Björn Hákonarson(B), Guðmundur Þorgrímsson(B), Eiður Ragnarsson (B), Snjólaug Guðmundsdóttir (B), Jens Garðar Helgason (D), Valdimar O. Hermannsson (D),Ásta Kristín Sigurjónsdóttir(D), Sævar Guðjónsson (D), Óskar Þór Hallgrímsson(D), Elvar Jónsson(L) Eydís Ásbjörnsdóttir(L),Esther Gunnarsdóttir(L),Stefán Már Guðmundsson(L),Ásta Eggertsdóttir(L)
Varamenn: Jósef Auðunn Friðriksson (B), Svanhvít Aradóttir (B), Gísli Þór Briem (B), Svanbjörg Pálsdóttir(B), Þórður Vilberg Guðmundsson (D), Guðlaug Dana Andrésdóttir(D),Borghildur Stefánsdóttir(D),Gunnar Á Karlsson(D), Benedikt Jóhannsson(D), Ævar Ármannsson(L), Heimir Arnfinnsson (L), Sigríður Margrét Guðjónsdóttir(L), Hanna Björk Birgisdóttir (L), Kamma Dögg Gísladóttir(L)
Tillaga samþykkt með 9 atkvæðum.
Málsmeðferð er í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Forseti fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.
Bæjarstjórn samþykkir, með 9 atkvæðum, að tillaga að deiliskipulagi Hlíðargötu 58 og nágrennis ásamt umhverfisskýrslu verði auglýst. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinagerð ásamt umhverfisskýrslu dags. 01.06.2012 og felur í sér að reist eru varnarmannvirki í Nýjabæjarlæk ofan Skólabrekku og Skólamiðstöðvarinnar á Fáskrúðsfirði. Tillagan er auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson.
Framlögð drög að kaupsamningi milli Fjarðabyggðar og Machinery ehf. vegna kaupa Fjarðabyggðar á fasteignum að Ægisgötu 6 Reyðarfirði, landnúmer194-840 og fastanúmer 217-7483 að frátalinni 2.600 fermetra lóð eignarinnar, auk draga að yfirlýsingu um kauprétt Fjarðabyggðar að Hafnargötu 6 Reyðarfirði, landnúmer 158-477 og fastanúmer 217-746.
Bæjarstjórn staðfestir, með 9 atkvæðum, kaup á eignunum að Ægisgötu 6 að upphæð 24.000.000 kr. auk 6.000.000 kr. kostnaðar við niðurrif og frágang á svæðinu, samtals að fjárhæð 30.000.000
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðan kjörskrárstofn fyrir Fjarðabyggð vegna forsetakosninga 30. júní n.k. Á kjörskrá eru alls 3.190; 1.709 karlar og 1.481 konur. Þá felur bæjarstjórn bæjarráði að afgreiða til fullnaðar og úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum, sem kunna að heyra undir verksvið bæjarstjórnar í tengslum við kosningarnar.
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Frá því að yfirkjörstjórn fundaði 9.júní hefur verið gerð breyting á kjörstað á Reyðarfirði en ákveðið hefur verið að kjördeild á Reyðarfirði verði í safnaðarheimilinu en ekki í Félagslundi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að kjörstaðir í Fjarðabyggð verði:
Sólbrekku Mjóafirði
Nesskóla Neskaupstað
Kirkju- og menningarmiðstöðinni Eskifirði
Safnaðarheimili á Reyðarfirði
Grunnskólanum á Fáskrúðsfirði.
Grunnskólanum á Stöðvarfirði
Kjörstaðir verða opnaðir kl. 09:00 og kjörfundur mun standa til kl. 22:00 nema í Mjóafirði en þar mun kjörfundur standa til kl. 17:00.
Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 9. júní samþykkt með 9 atkvæðum.
Tillaga forseta bæjarstjórnar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lagt er til að bæjarstjórn taki sumarfrí í júlí og ágúst og komi saman að nýju eftir sumarfrí, fimmtudaginn 6. september 2012.
Einnig er lagt til að bæjarráði verði falið ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála bæjarstjórnar meðan á sumarfríi hennar stendur.
Tillaga samþykkt með 9 atkvæðum.