Fara í efni

Bæjarstjórn

121. fundur
18. október 2012 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 311
Málsnúmer 1209016F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Elvar Jónsson, Jósef Auðunn Friðriksson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Óskar Þór Hallgrímsson, Sævar Guðjónsson.
 Fundargerð bæjarráðs frá 8. október samþykkt með 9 atkvæðum.
2.
Bæjarráð - 312
Málsnúmer 1210009F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  
Fundargerð bæjarráðs frá 15. október staðfest með 9 atkvæðum.
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 47
Málsnúmer 1209013F
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  
Enginn tók til máls.
Fundargerð frá 24. september staðfest með 9 atkvæðum.
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 48
Málsnúmer 1210007F
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  
Fundargerð frá 10. október staðfest með 9 atkvæðum.
5.
Fræðslu- og frístundanefnd - 29
Málsnúmer 1209014F
Fundargerðir fræðslu- og frístundanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  
Til máls tóku:  Elvar Jónsson, Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð frá 3. október staðfest með 9 atkvæðum.
6.
Fræðslu- og frístundanefnd - 30
Málsnúmer 1210005F
Fundargerðir fræðslu- og frístundanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  
Fundargerð frá 10. október staðfest með 9 atkvæðum.
7.
Hafnarstjórn - 104
Málsnúmer 1209015F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 2. október staðfest með 9 atkvæðum.
8.
Atvinnu- og menningarnefnd - 35
Málsnúmer 1210004F
Enginn tók til máls.
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 11. október staðfest með 9 atkvæðum.
9.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Málsnúmer 1201123
Fundargerðir félagsmálanefndar nr. 34 frá 24. september og nr. 35 frá 10. október.
Fundargerðir félagsmálanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. 
Til máls tók Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerðir staðfestar með 9 atkvæðum.
10.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Málsnúmer 1201124
Fundargerðir barnaverndarnefndar nr. 26 frá 25. september og nr. 27 frá 9. október teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerðir staðfestar með 9 atkvæðum. 
11.
740 Deiliskipulagið Hof II, Norðfirði
Málsnúmer 1207032

Bæjarstjóri fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Hofs II. með 9 atkvæðum.

Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinagerð dags. 24. ágúst 2012 og felur í sér að tjaldstæði, smáhýsi til gistingar, íbúðarhús og útihús verði reist á jörðinni. Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007 til 2027.

12.
755 - Umsókn um meðmæli Skipulagsstofnunar vegna byggingar gistihúss við Óseyri í Stöðvarfirði
Málsnúmer 1210093
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði. 
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að leitað verði meðmæla Skipulagsstofnunar sbr. ákvæði til bráðabirgða í skipulagslögum nr. 123/2010 vegna áforma landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði um byggingu gistihúss á jörðinni. Áformin eru í samræmi við Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027.
13.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 20. október 2012 - tillögur stjórnlagaráðs
Málsnúmer 1209011

Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

Tillaga:

Bæjarstjórn samþykkir framlagðan kjörskrárstofn fyrir Fjarðabyggð vegna ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012 um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga. 
Á kjörskrá eru alls 3.190;  1.715   karlar og 1.475 konur. 
Þá felur bæjarstjórn bæjarráði að afgreiða til fullnaðar og úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum, sem kunna að heyra undir verksvið bæjarstjórnar í tengslum við kosningarnar.
Tillaga staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.