Bæjarstjórn
122. fundur
1. nóvember 2012
kl.
16:00
-
18:00
í fjarfundarbúnaði í Neskaupstað og á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 313
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason, Sævar Guðjónsson,
Fundargerð bæjarráðs nr. 313 frá 23. október s.l. samþykkt með 9 atkvæðum.
2.
Bæjarráð - 314
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu og saman.
Fundargerð bæjarráðs nr. 314 frá 29.10. s.l. samþykkt með 9 atkvæðum.
3.
Hafnarstjórn - 105
Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 105 frá 16.10. s.l. samþykkt með 9 atkvæðum.
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 49
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Sævar Guðjónsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr 49. frá 22.10. s.l. samþykkt með 9 atkvæðum.
5.
Atvinnu- og menningarnefnd - 36
Til máls tóku: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason, Sævar Guðjónsson, Eiður Ragnarsson, Elvar Jónsson.
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 36 frá 25.10. s.l. samþykkt með 9 atkvæðum.
6.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 36. frá 17.10. s.l.
Enginn tók til máls.
Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
7.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 28. frá 16.10.2012.
Enginn tók til máls:
Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.
8.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013 - fyrri umræða
Fyrri umræða um frumvarp að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2013.
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætlun úr hlaði með greinargerð.
Til máls tók Elvar Jónsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2013 til síðari umræðu í bæjarstjórn 15. nóvember n.k.
9.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2014 - 2016 - fyrri umræða
Fyrri umræða um frumvarp að þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2014 til 2016.
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði með greinargerð.
Til máls tóku: Esther Ösp Gunnarsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Bókun fulltrúa Fjarðalistans Esther Ösp Gunnarsdóttir og Eydís Ásbjörnsdóttir.
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans taka undir þá afstöðu sem fram kom í bókun Elvars Jónssonar á bæjarráðsfundi nr. 314, þ.e. að gert verði ráð fyrir færslu Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Nokkur óvissa er um kostnað við færslu vegarins en óvissa er einnig um aðra kostnaðarliði, sem þó er gert ráð fyrir í fjarfestingaráætlunum, þ.e. kostnað við byggingu skólans og þær mótvægisaðgerðir sem þarf að ráðast í verði vegurinn ekki færður. Það er skoðun bæjarfulltrúa Fjarðalistans að endurskoða þurfi stærð skólans en sú endurskoðun gæti, eins og gefur að skilja, leitt til talsverðra breytinga á kostnaði."
Bæjarfulltrúar B og D lista vísa til bókunar sinnar frá 314 fundi bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2014 til 2016 til síðari umræðu í bæjarstjórn 15. nóvember n.k.
10.
Tíu ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013 til 2023 - fyrri umræða.
Fyrri umræða um frumvarp að tíu ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2013 til 2023.
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði með greinargerð.
Til máls tóku: Esther Ösp Gunnarsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Bókun fulltrúa Fjarðalistans Esther Ösp Gunnarsdóttir og Eydís Ásbjörnsdóttir.
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans taka undir þá afstöðu sem fram kom í bókun Elvars Jónssonar á bæjarráðsfundi nr. 314, þ.e. að gert verði ráð fyrir færslu Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Nokkur óvissa er um kostnað við færslu vegarins en óvissa er einnig um aðra kostnaðarliði, sem þó er gert ráð fyrir í fjarfestingaráætlunum, þ.e. kostnað við byggingu skólans og þær mótvægisaðgerðir sem þarf að ráðast í verði vegurinn ekki færður. Það er skoðun bæjarfulltrúa Fjarðalistans að endurskoða þurfi stærð skólans en sú endurskoðun gæti, eins og gefur að skilja, leitt til talsverðra breytinga á kostnaði."
Bæjarfulltrúar B og D lista vísa til bókunar sinnar frá 314 fundi bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2013 til 2023 til síðari umræðu í bæjarstjórn 15. nóvember n.k.