Bæjarstjórn
Bæjarstjóri fylgdi tillögu um álagningarstofna fasteignagjalda úr hlaði.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að fasteignagjöld ársins 2013 verði:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fasteignaskattur A: 0,45 % af húsmati og lóðarmati.
Fasteignaskattur B: 1,32 % af húsmati og lóðarmati
Fasteignaskattur C: 1,50 % af húsmati og lóðarmati
Lóðarleiga íbúðarhúsnæði: 0,53 % af lóðarhlutamat
Lóðarleiga atvinnuhúsnæði: 1,00% af lóðarhlutamat.
Vatnsskattur: 0,31% af húsmati.
Holræsagjald: 0,32 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald: 21.000 kr. á heimili
Sorpeyðingargjald: 10.000 kr á heimili.
Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.
Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.
Afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði:
Brúttótekjur allt að kr. 2.456.633 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir kr. 3.248.840 0 % afsláttur
b) Hjón og samskattað sambýlisfólk:
Brúttótekjur allt að kr. 3.731.312 100% afsláttur
Brúttótekjur yfir kr. 4.459.571 0 % afsláttur
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætlun ársins 2013 úr hlaði.
Frumvarp að fjárhagsáætlun 2013 ásamt starfsáætlunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.
Bókun fulltrúa Fjarðalistans.
Við bæjarfulltrúar Fjarðalistans, viljum taka á fjárhagslegri stöðu sveitarfélagsins af ábyrgð og raunsæi. Við erum því tilbúin að gera málamiðlanir eins og frekast er kostur, til að sátt megi ríkja um fjárhagsáætlanir, án þess þó að fórna okkar helstu áhersluatriðum. Í ljósi þess samþykkjum við bæjarfulltrúar Fjarðalistans, fjárhagsáætlun árið 2013 en vitnum að öðru leyti til málflutnings okkar í umræðum um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn. Sérstaklega vísum við til umræðna um fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - fræðslu- og frístundanefnd, á 121. fundi bæjarstjórnar þar sem fram koma áhyggjur okkar af ónógum fjárheimildum í fræðslumálum. Við treystum því þó að þær dugi til þess að lögbundinni grunnþjónustu sé hlíft og ekki þurfi að draga úr fjölbreytni þess glæsilega skólastarfs sem boðið er uppá í Fjarðabyggð.
Lögð fram tillaga bæjarstjóra um breytingu á áætluninni milli umræðna en bæjarráð samþykkti breytingar á fundi sínum 12. nóvember s.l. og vísaði þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2013 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum eru eftirfarandi
Tölur í þús.kr. Rekstrarniðurstaða Fjárfesting Afborganir langtímalána og leiguskulda
Samstæða A-hluta 17.636 131.000 505.604
Samstæða B-hluta 332.844 635.000 320.316
Samstæða A og B 350.480 766.000 825.920
Ekki er gert ráð fyrir sölu eigna eða töku langtímalána
Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2013 með 9 atkvæðum.
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði.
Þriggja ára fjárhagsáætlun áranna 2014 til 2016 til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson,
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans ítreka þá afstöðu sína, sem fram kom í bókunum á bæjarráðsfundi nr. 314 og bæjarstjórnarfundi nr. 122, að gert verði ráð fyrir færslu Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Bæjarfulltrúum Fjarðalistans hefur ekki orðið ágengt í því að fá færslu vegarins inn á áætlanir. Að mati bæjarfulltrúanna er hér á ferðinni mikið forgangsmál út frá öryggis-, skipulags- og fjárhagslegum sjónarmiðum. Að öðru leyti vísum við til þeirra bókana sem hér hefur verið vitnað til og málflutnings okkar í umræðum í bæjarstjórn.
Þrátt fyrir að íhuga alvarlega hjásetu, samþykkja bæjarfulltrúar Fjarðalistans fjárhagsáætlanir til þriggja og tíu ára að þessu sinni. Að öllu óbreyttu sjáum við okkur ekki fært að samþykkja sambærilegar áætlanir að ári en ítrekum mikilvægi þess að þá liggi fyrir nýtt kostnaðarmat á leikskólaframkvæminni í heild sinni, þ.e. byggingunni sjálfri, tilfærslu vegarins og öðrum kostnaðarliðum, og framkvæmdin hafi farið í gegnum skipulagsferli."
Bókun fulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
"Fulltrúar B og D lista í bæjarstjórn Fjarðabyggðar árétta að á vegum ESU verður unnin ítarleg greining á kostnaði við flutning Nesgötu, áhættumat vegna umferðar um hana miðað við núverandi legu og greining á stærð væntanlegs leikskóla áður en deiliskipulagsvinna hefst í tengslum við byggingu hans. Þegar þær greiningar liggja fyrir getur farið fram um þær umræða í bæjarráði og bæjarstjórn áður en ákvörðun um byggingu nýs leikskóla á Norðfirði og umhverfi hans verður endanlega tekinn."
Lögð fram tillaga bæjarstjóra um breytingu á áætluninni milli umræðna en bæjarráð samþykkti tillöguna og vísaði henni til bæjarstjórnar.
Þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2014 til 2016 staðfest með 9 atkvæðum.
Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði.
Tíu ára fjárhagsáætlun 2013 til 2023 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson.
Bókun bæjarfulltrúa Fjarðalistans.
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans ítreka þá afstöðu sína, sem fram kom í bókunum á bæjarráðsfundi nr. 314 og bæjarstjórnarfundi nr. 122, að gert verði ráð fyrir færslu Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Bæjarfulltrúum Fjarðalistans hefur ekki orðið ágengt í því að fá færslu vegarins inn á áætlanir. Að mati bæjarfulltrúanna er hér á ferðinni mikið forgangsmál út frá öryggis-, skipulags- og fjárhagslegum sjónarmiðum. Að öðru leyti vísum við til þeirra bókana sem hér hefur verið vitnað til og málflutnings okkar í umræðum í bæjarstjórn.
Þrátt fyrir að íhuga alvarlega hjásetu, samþykkja bæjarfulltrúar Fjarðalistans fjárhagsáætlanir til þriggja og tíu ára að þessu sinni. Að öllu óbreyttu sjáum við okkur ekki fært að samþykkja sambærilegar áætlanir að ári en ítrekum mikilvægi þess að þá liggi fyrir nýtt kostnaðarmat á leikskólaframkvæminni í heild sinni, þ.e. byggingunni sjálfri, tilfærslu vegarins og öðrum kostnaðarliðum, og framkvæmdin hafi farið í gegnum skipulagsferli."
Bókun Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
"Fulltrúar B og D lista í bæjarstjórn Fjarðabyggðar árétta að á vegum ESU verður unnin ítarleg greining á kostnaði við flutning Nesgötu, áhættumat vegna umferðar um hana miðað við núverandi legu og greining á stærð væntanlegs leikskóla áður en deiliskipulagsvinna hefst í tengslum við byggingu hans. Þegar þær greiningar liggja fyrir getur farið fram um þær umræða í bæjarráði og bæjarstjórn áður en ákvörðun um byggingu nýs leikskóla á Norðfirði og umhverfi hans verður endanlega tekinn."
Tíu ára fjárhagsáætlun hefur tekið samsvarandi breytingum og gerðar hafa verið á fjárhagsáætlunum Fjarðabyggðar og stofnana árið 2013 og 2014 til 2016.
Tíu ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana áranna 2013 til 2023 staðfest með 9 atkvæðum af bæjarstjórn.