Fara í efni

Bæjarstjórn

186. fundur
1. október 2015 kl. 16:00 - 00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Aðalmaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður
Kristín Gestsdóttir Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir Varamaður
Gunnar Jónsson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 443
Málsnúmer 1509010F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 21. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Atvinnulausir og sundstaðir
1.2 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016
1.3 Umhverfismál og skilti
1.4 Fundur með sveitarstjórnum haustið 2015
1.5 Islands.is og samstarf um rafræna upplýsingaveitu
1.6 Íbúaþróun
1.7 Afnot af íþróttahúsi á Neskaupstað v/árshátíðar Síldarvinnslunnar
1.8 Jafnlaunaúttekt
1.9 Skýrsla um áhrif innflutningsbanns Rússa
1.10 Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 25.september
1.11 Drög frumvarps um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga til umsagnar
1.12 Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
1.13 Boð á IX.Umhverfisþing 9.október 2015
1.14 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2015
2.
Bæjarráð - 444
Málsnúmer 1509014F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 28. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Áfangastaðurinn Austurland - kynning
2.2 Ályktun frá stjórn Skólastjórafélags Austurlands
2.3 Beiðni um styrk fyrir endurhæfingahópa á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
2.4 Launakjör hlutastarfandi sjúkraflutningamanna
2.5 Skíðasvæðið í Oddsskarði - útvistun rekstrar
2.6 Viðhaldsþörf íbúða Fjarðabyggðar
2.7 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2016 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar
2.8 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2016 - barnavernd
2.9 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2016 - félagsmálanefnd
2.10 101.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026
2.11 140.mál til umsagnar frumvarp til laga um náttúruvernd (varúðarregla, almannaréttur, sérstök vernd, framandi tegundir o.fl.)
2.12 133.mál til umsagnar frumvarp til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum
2.13 3.mál til umsagnar frumvarp til laga um almannatryggingar (hækkun lífeyris í 300 þús. kr.)
2.14 4.mál til umsagnar frumvarp til laga um byggingarsjóð Landspítala (heildarlög)
2.15 Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015
2.16 Fundargerðir félagsmálanefndar 2015
2.17 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 127
2.18 Fræðslunefnd - 20
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 127
Málsnúmer 1509009F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. september staðfest með 9 atkvæðum.
4.
Fræðslunefnd - 20
Málsnúmer 1509012F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 23. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Eftirfylgni með úttekt á Grunnskólanum á Eskifirði
4.2 Eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Lyngholti
4.3 Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum
4.4 Efling hinsegin fræðslu í grunnskólum Fjarðabyggð - Tillaga Fjarðalistans á fundi bæjarstjórnar nr. 183
5.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2015
Málsnúmer 1501132
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 74 frá 21. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
6.
750 Hafnarsvæði 5 - Breyting á deiliskipulagi, grenndarkynnt
Málsnúmer 1507069
Forseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á deiliskipulaginu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Grenndarkynningu er lokið. Engar athugasemdir bárust.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulaginu Hafnarsvæði 05, skipulagsuppdráttur með greinargerð dagsettur 10. júlí 2015. Málsmeðferð verði í samræmi við 43. gr. skipulagslaga.
7.
Beiðni um umsögn skv. 52.gr.jarðalaga 81/2004
Málsnúmer 1502165
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Lagt fram bréf frá Hilmari Gunnlaugssyni fyrir hönd Björns Þorsteinssonar um umsögn vegna lausnar jarðarinnar Þernuness úr óðalsböndum. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir fyrir sitt leyti við að jörðin Þernunes verði leyst úr óðalsböndum og vísaði málinu til bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að jörðin Þernunes verði leyst úr óðalsböndum.
8.
Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 5
Málsnúmer 1509194
Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.
Viðaukinn felur í sér að lagt er til að viðhaldskostnaður félagslegra íbúða í málaflokki 57 verði hækkaður um kr. 12.500.000 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 þannig að hann verði samtals kr. 25.000.000 og að leigutekjur félagslegra íbúða í sama málaflokki lækki um kr. 5.000.000 og verði eftir lækkun kr. 60.395.155.
Samtals eru áhrifin af auknum rekstrarkostnaði og lækkuðum tekjum á árinu 2015 kr. 17,500,000 og mun rekstrarniðurstaða málaflokksins lækka um sömu niðurstöðu og verða tap uppá kr. 15.291.000 í stað afgangs uppá kr. 2.209.000. Jafnframt er lagt til að fjármagna aukinn rekstrarkostnað og lækkaðar tekjur með lækkun á eigin fé Félagslegra íbúða og lántöku hjá aðalsjóði Fjarðabyggðar.
Eigið fé málaflokksins Félagslegar íbúðir mun lækka um kr. 17.500.000 og handbært fé aðalsjóðs mun lækka um sömu upphæð eða kr. 17.500.000 til samræmis við ofangreint og verða kr. 319.360.000 í árslok 2015
Viðaukinn staðfestur af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.