Fara í efni

Bæjarstjórn

286. fundur
20. febrúar 2020 kl. 16:00 - 18:15
í Molanum fundarherbergi 1 og 2
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Einar Már Sigurðarson aðalmaður
Sævar Guðjónsson varamaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Stefán Aspar Stefánsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 650
Málsnúmer 2002006F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Rúnar Már Gunnarsson, Ragnar Sigurðsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Pálína Margeirsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Sævar Guðjónsson, Sigurður Ólafsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 10. febrúar sl. utan liðar 8 staðfest með 9 atkvæðum. Dagskrárliður tekin til afgreiðslu sérstaklega.
1.1 Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar
1.2 Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar
1.3 Fjarðabyggðahöll - ástand og aðgerðir
1.4 Stefnumörkun lögreglunnar á Austurlandi 2020
1.5 Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
1.6 64.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld
1.7 Starfshópur um efnhagsþróun á norðuslóðum
1.8 Beiðni um að halda tónleika í Stefánslaug
1.9 Samstarf um heilsueflingu
1.10 Ósk um fund með ráðamönnum sveitarfélagsins
1.11 Dómsmál - Strand Green Freezer
1.12 Dómsmál - stefna TRÚNAÐARMÁL
1.13 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
1.14 Forúttekt jafnlaunavottunar
1.15 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020
1.16 Beiðni um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti 2020
1.17 Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2018 - 2022
1.18 Nefndaskipan Fjarðalista 2018 - 2022
1.19 Hafnarstjórn - 236
2.
Bæjarráð - 651
Málsnúmer 2002014F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 17. febrúar sl. að undanskyldum liðum 3, 4 og 5 staðfest með 9 atkvæðum. Dagskrárliðir 3, 4, og 5 teknir til afgreiðslu sérstaklega.
2.1 Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL
2.2 Innlausn lóða Melbrún 2 og 4 - endurgreiðsla gatnagerðargjalda
2.3 Samningar um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala við Sjúkratryggingar Íslands 2020-2021
2.4 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
2.5 Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2020
2.6 Vottun gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni
2.7 Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar
2.8 Sala á Búðarvegi 8 - Templarinn
2.9 740 Hjallaleira 25 og 27 - Umsókn um lóð
2.10 Lokun urðunarstaðar í landi Rima í Mjóafirði
2.11 Ósk um tímabundna undanþágu vegna sorpurðunarstaðar á Heydalamelum - Breiðdalshreppur
2.12 Opið bréf til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar
2.13 Starfshópur um sumaropnun leikskólanna
2.14 Trjákurl til húshitunar
2.15 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
2.16 Beiðni um styrk vegna Íslandsmót yngriflokka 16.- 17.nóvember
2.17 Fundur með sveitar- og hafnarstjórnum vegna kynningar á lýsingu fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum
2.19 Efling Egilsstaðaflugvallar og framtíð flugvallarverkefnisins
2.20 Samráðsfundur vegna kórónaveiru
2.21 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 252
2.22 Félagsmálanefnd - 130
2.23 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 15
2.24 Fræðslunefnd - 80
2.25 Íþrótta- og tómstundanefnd - 69
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 252
Málsnúmer 2002009F
Til máls tóku: Einar Már Sigurðarson, Sævar Guðjónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Rúnar Már Gunnarsson.
Fundargerð eigna-, skipulags-, og umhverfisnefndar frá 10. febrúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Ósk um tímabundna undanþágu vegna sorpurðunarstaðar á Heydalamelum - Breiðdalshreppur
3.2 Lokun urðunarstaðar í landi Rima í Mjóafirði
3.3 Friðlýsing Gerpissvæðisins - kynningarfundur
3.4 Clean up Iceland - Strandhreinsun leiðangursskipa
3.5 Aðgerðir 2020 númerslausir bíla
3.6 Aðgerðir 2020 - lausafjármunir
3.7 Lausaganga sauðfjár í Fjarðabyggð
3.8 740 Norðfjarðará - framkvæmdaleyfi, efnistaka
3.9 740 Norðfjarðará - framkvæmdaleyfi, efnistaka
3.10 735 - Deiliskipulag miðbæjar Eskifjarðar
3.11 755 Deiliskipulag Heyklif
3.12 740 Hjallaleira 25 og 27 - Umsókn um lóð
3.13 740 Hólar - Byggingarleyfi, gesta- og geymsluhús
3.14 Skólavegur 49 - Umsókn byggingarleyfi, endurbætur inni og úti
3.15 Vottun gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni
3.15 Fjarðabyggðahöll - ástand og aðgerðir
4.
Hafnarstjórn - 236
Málsnúmer 2002003F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. febrúar sl. utan liðar 2 staðfest með 9 atkvæðum. Dagskrárliður tekinn til afgreiðslu sérstaklega.
4.1 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
4.2 Skemmdir á bryggju við Egilsbraut 26
4.3 Clean up Iceland - Strandhreinsun leiðangursskipa
4.4 Seatrade Med sýningin í Málaga 2020
4.5 Fundargerðir Hafnarsambands Íslands 2020
4.6 Framkvæmdir hafnarsjóðs 2020
5.
Félagsmálanefnd - 130
Málsnúmer 2001024F
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 11. febrúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 457.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, með síðari breytingum (móttaka flóttafólks og innflytjendaráð)
5.2 Félagsmálanefnd 2020
5.3 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
5.4 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 15
6.
Fræðslunefnd - 80
Málsnúmer 2002010F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 12. febrúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár skólaárið 2019-2020
6.2 Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar
7.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 69
Málsnúmer 2002011F
Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 12. febrúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Heimsókn í íþrótta- og tómstundamannvirki á Fáskrúðsfirði
7.2 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
7.3 Austurland Freeride
7.4 Samstarf um heilsueflingu
7.5 Sumarfrístund 2020
7.6 Akstursstyrkir vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna
7.7 Reglur um Íþróttamann Fjarðabyggðar
8.
Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 15
Málsnúmer 2001027F
Ragnar Sigurðsson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu fundargerðar.
Enginn tók til máls.
Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna frá 11. febrúar sl. staðfest með 8 atkvæðum.
8.1 Rekstur Uppsala 2019
8.2 Rekstur Hulduhlíðar 2019
8.3 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
8.4 Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2020
8.5 Samningar um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala við Sjúkratryggingar Íslands 2020-2021
8.6 Þátttaka í norrænu verkefni um fjarheilbrigðisþjónustu
9.
Ósk um tímabundna undanþágu vegna sorpurðunarstaðar á Heydalamelum - Breiðdal.
Málsnúmer 1806123
Forseti mælti fyrir ábyrgðaryfirlýsingu.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar minnisblaði verkefnisstjóra á framkvæmdasviði um frágang og vöktun urðunarstaðar sveitarfélagsins á Heydalamelum í Breiðdal. Til að hægt sé að sækja um endanlega lokun svæðisins þarf að liggja fyrir ábyrgðaryfirlýsing um eftirlit og umsjón á urðunarstaðnum í 30 ár.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir ábyrgðaryfirlýsinguna með 9 atkvæðum.
10.
Lokun urðunarstaðar í landi Rima í Mjóafirði
Málsnúmer 1702136
Forseti mælti fyrir ábyrgðaryfirlýsingu.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar minnisblaði verkefnisstjóra á framkvæmdasviði um frágang og vöktun urðunarstaðar sveitarfélagsins að Rimum í Mjóafirði. Til að hægt sé að sækja um endanlega lokun svæðisins þarf að liggja fyrir ábyrgðaryfirlýsing um eftirlit og umsjón á urðunarstaðnum í 30 ár.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir ábyrgðaryfirlýsinguna með 9 atkvæðum.
11.
Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar
Málsnúmer 2001211
Forseti mælti fyrir staðfestingu endurgreiðsluhlutfalls.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu Brúar lífeyrissjóðs um að endurgreiðsluhlutfall á árinu 2020 vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar verði 71%.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu með 9 atkvæðum.
12.
755 Deiliskipulag Heyklif
Málsnúmer 1904069
Forseti mælti fyrir auglýsingu deiliskipulags.
Vísað frá eigna-, skipulags-, og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að auglýsingu deiliskipulags Heyklifs sem gerir ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu að Heyklifi á Kambanesi við Sunnanverðan Stöðvarfjörð. Gert er ráð fyrir hóteli, veitingaþjónustu, gistihúsum og smáhýsum á svæðinu til útleigu fyrir ferðamenn.
Tillagan auglýst sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa tillöguna sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með 9 atkvæðum.
13.
Yfirlýsing um forkaupsrétt á skipinu Gjafar SU090
Málsnúmer 2002111
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir máli.
Framlögð beiðni um yfirlýsingu þess efnis að sveitarfélagið hyggist ekki nýta forkaupsrétt á bátnum Gjafar SU090 sem er 19,47 br.tonna bátur á Stöðvarfirði í eign Þorskeldis ehf. Kaupandi bát er Tonan ehf í Suðurnesjabæ. Skipið er án aflahlutdeildar, án aflamarks og er án grásleppuleyfis.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum að nýta ekki forkaupsrétt að skipinu Gjafari SU090.