Fara í efni

Bæjarstjórn

346. fundur
2. febrúar 2023 kl. 16:15 - 17:15
í Fræðslumolanum Austurbrú
Nefndarmenn
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir forseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Heimir Snær Gylfason varamaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Birgir Jónsson aðalmaður
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Starfsmenn
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson Forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 781
Málsnúmer 2301016F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 781 og 782. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Heimir Snær Gylfason, Kristinn Þór Jónasson, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

Fundargerð bæjarráðs nr. 781 er samþykkt með 9 atkvæðum
1.1 Erindi um opnunartíma íþróttamiðstöðvarinnar á Reyðarfirði
1.2 Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 2023
1.3 Erindisbréf ungmennaráðs
1.4 Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023
1.5 Stjórnkerfisnefnd 2020-2023
1.6 Erindi frá Austurbrú og SSA um þátttöku í nýju verkefni
1.7 Akstur á skíðasvæði
2.
Bæjarráð - 782
Málsnúmer 2301021F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 781 og 782. teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Heimir Snær Gylfason, Kristinn Þór Jónasson, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

Fundargerð bæjarráðs nr. 782 er samþykkt með 9 atkvæðum
2.1 Veikindalaun 2022
2.2 Fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 5
2.3 Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu
2.4 Stytting vinnuvikunnar, betri vinnutími leikskólar
2.5 Bref til bæjarstjórnar varðand Kirkjuból í Neskaupstað
2.6 Vígsla íþróttahúss á Reyðarfirði 12. febrúar 2023
2.7 Erindi varðandi Búðaveg 8, Fáskrúðsfirði - Tempalarinn
2.8 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
2.9 Aðalskipulag breyting á skilmálum vegna skógrækt
2.10 Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur
2.11 Umsókn um lóð fyrir bílastæði Strandgata 58
2.12 Umsókn um lóð Búðareyri 10
2.13 Erindi frá grunnskóla börnum á Fáskrúðsfirði varðandi umferðaröryggi, gangbrautir og lýsingu
2.14 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
2.15 Hafnarstjórn - 290
2.16 Íþrótta- og tómstundanefnd - 112
2.17 Umhverfis- og skipulagsnefnd - 16
3.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 112
Málsnúmer 2301017F
Fundargerð 112. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 23. janúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu
Engin tók til máls

Fundgerð 112. fundar íþrótta- og tómstundanefndar er samþykkt með 9 atkvæðum
3.1 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vor 2023
3.2 Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 2022
3.3 Ungmennaráð - 5
4.
Hafnarstjórn - 290
Málsnúmer 2301018F
Fundargerð 290. fundar hafnarstjórnar frá 23. janúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

Engin tók til máls

Fundgerð 290. fundar hafnarstjórnar er samþykkt með 9 atkvæðum
4.1 Rex NS 3 endurgerð og ástandsmat
4.2 Hafnarstjórn erindi frá starfsmönnum
5.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 16
Málsnúmer 2301010F
Fundargerð 16. fundar umhverfis og skipulagsnefndar frá 24. janúar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

Til máls tók: Þuríður Lillý Sigurðardóttir

Fundargerð 16. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar er samþykkt með 9 atkvæðum
5.1 Hjallanes 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
5.2 Hraun 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
5.3 Umsókn um lóð Búðareyri 10
5.4 Deiliskipulagsvinna: Sjávargötureiturinn, Reyðarfirði
5.5 Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað
5.6 Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur kynning á stöðu verkefnis
5.7 Umsókn um lóð fyrir bílastæði Strandgata 58
5.8 Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
5.9 Aðalskipulag br. skógrækt
5.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólbakki 3
5.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðavegur 59
5.12 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðgarður 9
5.13 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hjallavegur 3
5.14 Lausar lóðir í Fjarðabyggð
5.15 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Ásvegur 28
5.16 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023
5.17 Selhella - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
5.18 Hljóðmælingar Búðaveg 24
6.
Fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 5
Málsnúmer 2301201
Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022 sem vísað var frá bæjarráði. Viðaukin er gerður til að millifæra af sérstökum liðum fjárhagsáætlunar þ.e. af óvissum útgjöldum sem bæjarráð hefur samþykkt á árinu, úthlutun námsstyrkja og vegna samþykktar um úthlutun veikindalauna

Hækkun á launaliðum vegna veikinda starfsmanna nemur 53,8. m.kr. í A-hluta sem skiptist á ýmsar deildir skv. sundurliðun. Aðrar breytingar í viðaukanum varða millifærslur og hafa engin áhrif á eigið fé eða sjóðsstöðu Fjarðabyggðar.
Saman dregið hafa þessar breytingar á fjárhagsáætlun þau áhrif að rekstrarniðurstaða A-hluta lækkar sem nemur 53,8 m.kr. en rekstrarniðurstaða B-hluta verður óbreytt. Heildaráhrfin eru til því til lækkunar á samstæðu um 53,8 m. kr.
Rekstrarniðurstaða A-hluta er nú áætluð neikvæð um 84,3 m.kr. en rekstrarniðurstaða samstæðunar í heild er nú áætluð jákvæð um 497.9 m.kr. fyrir árið 2022.

Saman dregið er nú áætlað að sjóðstaða Fjarðabyggðar í árslok 2022 verði neikvæð um 8.5 milljónir króna. Sjóðasstaða í reynd verði önnur vegna breytinga sem verða í rekstri og efnahag en ekki er fjallað um í viðaukum við fjárhagsáætlun.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka 5 við fjárhagsáætluna 2022 með 9 atkvæðum
7.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 2023
Málsnúmer 2205294
Framlagðar, til síðari umræðu, breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar vegna 12. gr., sbr. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með síðari breytingum ásamt breyttu ferli við endurnýjun lóðaleigusamninga.

Þar sem að ábendingar bárust frá ráðuneytinu varðandi breytingarnar sem ekki hefur verið hægt að bregðast við þarf að fresta fyrirtöku þeirra að sinni.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa breytingum á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar til bæjarráðs
8.
Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023
Málsnúmer 2301075
Bæjarstjóri mælti fyrir Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023 til síðari umræðu. Húsnæðisáætluninni var vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn frá bæjarráði.

Til máls tók: Stefán Þór Eysteinsson

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2023 með 9 atkvæðum
9.
Erindisbréf ungmennaráðs
Málsnúmer 2301116
Forseti bæjarstjórnar mæti fyrir erindsbréfi ungmennaráðs við síðari umræðu í bæjarstjórn.

Í erindsbréfinu eru hlutverk og skyldur ráðsins uppfærðar til samræmis við aðrar nefndir hjá sveitarfélaginu.

Engin tók til máls.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir erindisbréf ungmennaráðs með 9 atkvæðum
10.
Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu
Málsnúmer 2301026
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir samningi um sameiginlega barnverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Hornafjarðar á Austurlandi. Bæjarráð hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti og vísaði honum til endanlegrar afgreiðslu bæjarrstjórnar. Með samningunum munu Fjarðabyggð og sveitarfélagið Hornafjörður sameinast um rekstur barnaverndarþjónustu.

Engin tók til máls.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir samningin með 9 atkvæðum
11.
Aðalskipulag breyting á skilmálum vegna skógrækt
Málsnúmer 2301094
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á skilmálum vegna skógræktar í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 - 2040. Umhverfis- og skipulagsnefnd og bæjarráð hafa samþykkt breytinguna fyrir sitt leita og er þeim vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. Breytingin felur í sér að leyfileg stærð skógræktarsvæða undir landnotkunarflokknum landbúnaðarsvæði verði 50 hektarar í stað 200 hektara áður.

Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir breytingu á skilmálum í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 - 2040 með 9 atkvæðum.
12.
735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
Málsnúmer 2201189
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir auglýsingu á deilskipulaginu "Dalur Athafnasvæði". Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að auglýsa deiliskipulag Dalur - Athafnasvæði" sbr. 41. gr. skipulagslaga.

Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa deiliskipulagið Dalur athafnasvæði