Fara í efni

Bæjarstjórn

408. fundur
15. janúar 2026 kl. 16:00 - 16:50
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Birgir Jónsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 2. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 924
Málsnúmer 2512019F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 18. desember staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 2
1.2 Drangagili samningur um kaup stoðvirkja
1.3 Uppbygging padelvallar á Reyðarfirði
1.4 Reglur um styrki til stjórnmálaflokka
1.5 Samtarf skíðasvæðanna Oddskarðs og Stafdals 2024
1.6 Fasteignagjöld Víkin Fagra ehf, Frystihúsið Breiðdalsvík
1.7 Viljayfirlýsing
1.8 Umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um lagareldi
1.9 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
1.10 Stjórn menningarstofu - 28
2.
Bæjarráð - 925
Málsnúmer 2512022F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 29. desember staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Samningur um padelvöll á Reyðarfirði
2.2 Kæra vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 2029
2.3 Kæra III vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 2029
2.4 Úthlutun byggðakvóta 2025 og 2026
2.5 Frumvarp til laga um breytingu á lögum 48 2011, verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)
2.6 Frumvarp til laga um lagareldi mál 252
2.7 Frumvarp til laga um stjórn vatnamála
2.8 Frumvarp til laga um breytinga á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum
2.9 Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2025
2.10 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
2.11 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 48
3.
Bæjarráð - 926
Málsnúmer 2601001F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 8. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Kæra 4 vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 2029
3.2 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
3.3 Erindi vegna padel vallar
3.4 Samningur um padelvöll á Reyðarfirði
3.5 Rannsókn fyrir húsnæðisþörf íbúa 60
3.6 Samstarfssamningur við Akademias 2026
3.7 Forkaupsréttur sveitarfélags á bátnum Steini HU-45
3.8 Úrgangsmál
3.9 Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025
3.10 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2025
4.
Stjórn menningarstofu - 28
Málsnúmer 2512017F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. desember staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð
4.2 Söfnun til varðveislu Gunnfaxa TF-ISB
4.3 Umsókn um styrki til menningarmála
4.4 Reglulegur stuðningur við Sinfóníuhljómsveit Austurlands
4.5 Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 2025
5.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 48
Málsnúmer 2512018F
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. desember staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru
5.2 Umsókn um Stækkun lóðar Hraun 4
5.3 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Stekkjargata 3
5.4 Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggðm 2025
5.5 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina
5.6 Útboð úrgangsþjónustu 2026 til 2029
5.7 Erindi til skipulags- og framkvæmdanefndar
6.
Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 2
Málsnúmer 2512125
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir viðauka við fjárhagsáætlun.
Vísað frá bæjarráð til afgreiðslu bæjarstjórnar viðauka 2 við fjárhagsáætlun ársins 2025.
Viðaukinn felur í sér breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2025 sem hér segir.
a) Hækkun fjárfestinga að fjárhæð 140,6 m.kr. í eignasjóði vegna klæðningar Fjarðabyggðarhallarinnar
b) Hækkun fjárfestinga að fjárhæð 30 m.kr. í eignasjóði og auknar styrkveitingar að sömu fjárhæð vegna fyrsta áfanga endurgerðar Íslenska stríðsárasafnsins.
c) Hækkun fjárfestinga að fjárhæð 22,4 m.kr. í fráveitu og aukna styrkveitingar að sömu fjárhæð vegna fráveitu á Eskifirði.
d) Aukinn rekstrarkostnaður að fjárhæð 30 m.kr. í aðalsjóði og auknar styrkveitingar að fjárhæð 25. m.kr. vegna uppbyggingar áfangastaðar í Streytishvarfi.
e) Hækkun fjárfesting að fjárhæð 33 m.kr. í eignasjóði vegna búsetukjarnans Skála á Reyðarfirði.
f) Hækkun fjárfesting Hafnarsjóðs að fjárhæð 139 m.kr. vegna kaupa á Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
g) Aukinn rekstrarkostnaður að fjárhæð 13. m.kr. vegna niðurrifa á fasteignum að Mýrargötu 6 á Norðfirði og Öldugötu 6 á Reyðarfirði.
Áhrif viðaukans eru að fjárfestingar í A-hluta hækka um 173,6 m.kr. og 139 m.kr. í B-hluta eða alls 312,6 m.kr. Rekstrarniðurstaða A-hluta lækkar um 18 m.kr. og verður jákvæð um 190,4 m.kr. Rekstrarniðurstaða samstæðu lækkar samsvarandi og verður 628,4 m.kr. Sjóðsstaða samstæðunnar í árslok 2025 lækkar um 330,6 m.kr. og verður 159 m.kr.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum viðauka 2.
7.
Reglur um styrki til stjórnmálaflokka
Málsnúmer 2512122
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðum reglum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar uppfærðum reglum um framlög til stjórnmálasamtaka.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum uppfærðar reglur um framlög til stjórnmálaflokka.
8.
Handbók Oddsskarðs
Málsnúmer 2601075
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir staðfestingu handbókar.
Framlögð til staðfestingar handbók um eftirlit og viðbragð við snjóflóðum í skíðasvæðinu í Oddskarði.
Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum handbók skíðasvæðisins í Oddsskarði.
9.
Stækkun iðnaðarsvæðis og athafnasvæðis við Hjallaleiru
Málsnúmer 2507013
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu á vinnslustigi um breytingu á aðalskipulagi vegna iðnaðar- og athafnasvæðis á Hjallaleiru. Tillaga verður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Við mótun tillögunnar hafa verið felld niður áform um stækkun til austurs, sem allmargar athugasemdir voru gerðar við þegar skipulagslýsing var kynnt.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að kynna tillögu að breytingu á aðalskipulag vegna iðnaðar- og athafnasvæðis á Hjallaleiru.
10.
Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Málsnúmer 2205170
Lögð fram tillaga um breytingu á skipan fulltrúa Framsóknarflokks í fjölskyldunefnd og hafnarstjórn.
Lagt er til að Helga Rakel Arnardóttir taki sæti Tinnu Hrannar Smáradóttur í fjölskyldunefnd og Þuríður Lillý Sigurðardóttir taki sæti Helgu Rakelar sem varamanns í nefndinni. Þá er lagt til að Tinna Hrönn Smáradóttir taki sæti Þuríðar Lillýjar Sigurðardóttur í hafnarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.