Bæjarstjórn
Til máls tóku Helga Jónsdóttir, Jens Garðar Helgason, Valdimar O. Hermannsson og Smári Geirsson. <?xml:namespace prefix = st1 />Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála veitti upplýsingar um ársreikninginn.
Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks vegna afgreiðslu á ársreikningi 2008, endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 og þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2010 - 2012.
"Undirritaðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins samþykkjum hér í dag framlagðan ársreikning Fjarðabyggðar 2008, endurskoðaða fjárhagsáætlun 2009 og þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2010 - 2012. Vert er þó að vekja athygli á þeirri stöðu sem fram kemur í framangreindum gögnum og í endurskoðunarskýrslu KPMG frá maí 2009. Sérstaklega ber að vekja athygli á því sem lýtur að neikvæðri niðurstöðu og aukningu á skuldum þannig að handbært fé frá rekstri rétt nær að standa undir afborgunum. Það þarf því að passa vel upp á tekjur sveitarfélagsins og auka þær til muna, auk þess sem hafa þarf betri stjórn á framkvæmdum og kostnaði með auknum aga í stjórnun sveitarfélagsins. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu hér eftir sem hingað til, taka ábyrga afstöðu til einstakra mála, gagnrýna það sem þykir miður og betur mætti fara, og leggja þannig okkar lóð á vogarskálar að bættri stöðu og rekstri Fjarðabyggðar"
Þannig lagt fram 4.júní 2009
Valdimar O. Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir og Jens Garðar Helgason.
Ársreikningur 2008 samþykktur með 9 atkvæðum.<?xml:namespace prefix = o />
a) Forseti bæjarstjórnar Guðmundur Rafnkell Gíslason<?xml:namespace prefix = o />
b) 1. varaforseti bæjarstjórnar Guðmundur Þorgrímsson
c) 2. varaforseti bæjarstjórnar Smári Geirsson
d) Skrifarar bæjarstjórnar - Aðalmenn Jóhanna Hallgrímsdóttir og Þorbergur Hauksson. Varamenn Díana Mjöll Sveinsdóttir og Jens Garðar Helgason
e) Bæjarráð - Aðalmenn Guðmundur Þorgrímsson, Díana Mjöll Sveinsdóttir og Valdimar O Hermannsson
f) Formaður bæjarráðs Guðmundur Þorgrímsson
g) Varaformaður bæjarráðs Díana Mjöll Sveinsdóttir
h) Fulltrúar á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
Aðalmenn: Guðmundur R. Gíslason, Sigrún Birna Björnsdóttir, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Smári Geirsson, Íris Valsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Þorbergur Hauksson, Jón Björn Hákonarson, Eiður Ragnarsson, Valdimar O. Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Jens Garðar Helgason, Pétur Gauti Hreinsson, Kristín Ágústsdóttir og Ævar Ármannsson.
Varamenn: Ingólfur Sigfússon, Viðar Jónsson, Aðalsteinn Valdimarsson, Hrönn Grímsdóttir, Jóhanna Guðný Halldórsdóttir, Svanhvít Aradóttir, Gísli Þór Briem, Bjarney Hallgrímsdótttir, Þórður Vilberg Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Margeir Margeirsson, Gunnþór Björn Ingvason, Vilberg Marinó Jónasson, Margrét Þorvaldsdóttir og Þórhallur Árnason.
Tillaga forseta bæjarstjórnar til bæjarstjórnar um sumarfrí bæjarstjórnar og ákvörðunarvald til bæjarráðs á meðan á sumarfríi stendur. "Lagt er til að bæjarstjórn komi saman að nýju eftir sumarfrí fimmtudaginn 3. september 2009. Einnig er lagt til að bæjarráði verði falið ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála bæjarstjórnar meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. heimild í 15.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998" Samþykkt samhljóða með 8 atkvæðum.<?xml:namespace prefix = o />