Fara í efni

Bæjarstjórn

78. fundur
7. október 2010 kl. 16:00 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 213
Málsnúmer 1009016F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 213 og nr. 214 teknar fyrir saman.
Til máls tóku Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
 
2.
Bæjarráð - 214
Málsnúmer 1009023F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 213 og nr. 214 teknar fyrir saman.
Til máls tóku Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Jón Björn Hákonarson.
 
Ályktun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og stærstu fyrirtækja sveitarfélagsins gegn áformum um stórfelldan niðurskurð í helibrigðismálum á Austurlandi.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar og fyrirtæki innan sveitarfélagsins, Alcoa-Fjarðaál, Síldarvinnslan, Loðnuvinnslan, Eskja, Launafl og VHE mótmæla harðlega boðuðum niðurskurðaráformum stjórnvalda, er varða Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), eins og þau koma fram í framlögðu frumvarpi til fjárlaga 2011. Boðaður er 22,1 %  niðurskurður á heildarframlögum til HSA og þar af 52 % niðurskurður á sjúkrasviði stofnunarinnar sem koma mun mjög harkalega niður á starfsemi Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað (FSN) og lama starfsemi þess.  Í Fjarðabyggð verður til fjórðungur gjaldeyristekna þjóðarinnar innan hinna sterku fyrirtækja í iðnaði og sjávarútvegi  en  taka verður tillit til þessarar miklu starfsemi og öryggis starfsmanna þeirra. Eitt af lykilatriðum í þeirri ákvörðun Alcoa  að reisa álver sitt á Reyðarfirði var nálægð við sjúkrahúsið í Neskaupstað og öflug heilsugæsla í fjórðungnum.   Verði af þessum aðgerðum ber að hafa í huga þær vegalengdir sem íbúar Austurlands munu þurfa að leggja á sig til að sækja sjúkrahúsþjónustu til Akureyrar og Reykjavíkur en þær munu  veikja verulega öryggissjónarmið innan fjórðungsins að ótöldum þeim hundruðum sjómanna sem stunda veiðar út af Austurlandi.. Þá sé horft til náttúruhamfara sem, eins og dæmin sýna,  hafa skollið á byggðarlögum. Má í því sambandi nefna snjóflóðin í Neskaupstað 1974.  Niðurskurðaráform stjórnvalda munu án nokkurs vafa leiða til aukins atvinnuleysis á Austurlandi, meðal annars í kvennastörfum sem skortur er á hér um slóðir, og fýsileiki svæðisins til búsetu og atvinnurekstrar minnkar til muna.  

Því skora áðurnefndir aðilar á heilbrigðisráðherra að endurskoða boðuð niðurskurðaráform. Alþingismenn Norðausturkjördæmis eru hvattir til að beita sér fyrir endurskoðun á fjárheimildum til HSA eins og þau liggja nú fyrir.

 

Ályktun samþykkt með 9 atkvæðum.

 

Liður 2.17. - Ráðningarsamningur við bæjarstjóra - borinn upp sérstaklega og samþykktur með 9 atkvæðum.

<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Fundargerð samþykkt að öðru leyti af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 4
Málsnúmer 1009018F
Enginn tók til máls.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
4.
Atvinnu- og menningarnefnd - 3
Málsnúmer 1009015F
Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
5.
Félagsmálanefnd - 2
Málsnúmer 1009021F
Enginn tók til máls.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
6.
Hafnarstjórn - 74
Málsnúmer 1009020F
Enginn tók til máls.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
7.
Barnaverndarnefnd - fundur nr. 2
Málsnúmer 1010013
Enginn tók til máls.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.