Bæjarstjórn
Bókun Fjarðalistans varðandi 84. fundar bæjarstjórnar. Almenn mál 2, liður 15<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
"Eitt helsta eðli stjórnmála eru málamiðlanir. Við, bæjarfulltrúar Fjarðalistans, höfum verið með í ráðum allt fjárhagsáætlunarferlið og sjónarmið okkar verið tekin til greina. Við viljum taka þátt í því að taka á fjárhagslegri stöðu sveitarfélagsins af ábyrgð og raunsæi.
Það er oft þunn lína á milli þess að skera niður þjónustu og hagræða. Er það mat okkar að hér sé fyrst og fremst um hagræðingu að ræða þar sem lögbundinni grunnþjónustu er hlíft. Einnig viljum við sérstaklega geta þess að hluti af hagræðingarkröfunni í íþrótta-, tómstunda og fræðslumálum er sett inn í vinnuhóp sem á að koma með tillögur að einstaka aðgerðum. Þessar aðgerðir koma svo til afgreiðslu og þá munum við taka afstöðu til þeirra eins og aðrir bæjarfulltrúar.
Varðandi gjaldskrárhækkanir var m.a samstaða um að hækka ekki gjaldskrár leik- og grunnskóla og að b-hluta fyrirtækin séu ekki rekin með tapi.
Einnig viljum við minna á það að bæjarstjórn er fjölskipað stjórnvald og því hefur það litla þýðingu að sitja hjá þó það sé vissulega valmöguleiki. Í ljósi þessa þá samþykkja bæjarfulltrúar Fjarðalistans frumvarp að fjárhagsáætlun árið 2011 en vitnum að öðru leiti til málflutnings okkar í umræðum um fjárhagsáætlun hér á vettvangi bæjarstjórnar.
"
Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Stefán Már Guðmundsson (sign)
Bókun frá bæjarfulltrúum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
"Bæjarfulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks fagna þeirri samstöðu sem ríkt hefur á milli stjórnmálaflokkanna sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn Fjarðabyggðar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2011. Hafa flokkarnir unnið að því verki sem enginn væri meiri- eða minnihluti sem er mikill styrkur þegar unnið er að gerð fjárhagsáætlunar í því árferði sem nú ríkir í íslensku samfélagi. Þá er þessi samvinna í takt við þá kröfu samfélagsins til kjörinna fulltrúa í dag að menn leggi til hliðar átakastjórnmál og vinni að heilindum og samvinnu við stjórn sveitarfélagsins að kosningum loknum."
Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Sævar Guðjónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Guðmundur Þorgrímsson.
Samst.A-hluta 13.533 95.000 389.151 30.000 100.000
Samst.B-hluta 196.343 191.500 212.413 0 0