Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð að íbúð að Nesbakka 17, fastanúmer 216-9540, verði seld hæstbjóðanda. Tilboð hæstbjóðanda hljóðar upp á 8,9 milljónir.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir eftirfarandi breytingar á sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar, 8,0 % hækkun á forgangsorku og 5,0 % hækkun á ótryggðri orku. Nefndin vísar gjaldskrábreytingu til staðfestingar bæjarráðs.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu umhverfisfulltrúa um gjaldskrá sorpstöðvar og hvetur íbúa og fyrirtæki til þess að draga úr úrgangi til urðunar og lengja þar með líftíma urðunarstaða og stuðla að hagkvæmari meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vísar tillögu til samþykktar bæjarráðs.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Á 42. fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkti nefndin að senda tillögu um breytingar við smábátahöfnina á Reyðarfirði í grenndarkynningu með vísan í 7.mgr. 43.gr. skipulags- og byggingarlaga. Athugasemdafrestur rennur út 7. júlí og hafa allir hagsmunaaðilar samþykkt breytingartillögu nema einn sem þó hefur ekki gert athugasemdir. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að afgreiða deiliskipulagið til bæjarráðs.
Á 39. fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkti nefndin að senda tillögu um breytingar við Norðfjarðarsundlaug í grenndarkynningu með vísan í 7 mgr. 43 gr. skipulags- og byggingarlaga.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Grenndarkynningu er lokið og barst ein athugasemd frá Pétri Óskarssyni og Kristínu Brynjarsdóttur. Nefndin fellst ekki á framkomnar athugasemdir og felur skipulagsfulltrúa að svara þeim. Afgreiðslu deiliskipulagsins er vísað til bæjarráðs.Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á hafnarsvæði Norðfjarðar.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að vinna tillögu að deiliskipulagi í kringum Ósinn á Fáskrúðsfirði. Lagt er til að náið samstarf verði haft við hagsmunaraðila.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lagt fram erindi, dagsett 23. mars 2010 frá Einari Birgi Kristjánssyni vegna lóðarinnar að Fossgötu 3, 735 Fjarðabyggð. Erindið hefur áður fengið umfjöllun í bæjarráði þar sem eftirfarandi bókun var gerð "Erindi Einars Birgis Kristjánssonar frá 23.mars þar sem lóðin að Fossgötu 3 er boðin Fjarðabyggð til kaups. Framlagt minnisblað byggingarfulltrúa frá 29.mars. Bæjarráð vísar málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar með ósk um afstöðu og framtíðarsýn nefndarinnar vegna kaupa á eignarlóðum. " Nefndin telur ekki þörf á að kaupa umrædda lóð. Nefndin óskar eftir upplýsingum um fjölda eignarlóða í sveitarfélaginu.