Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra að hefja vinnu við gerð deiliskipulags fyrir svæðið sem afmarkar lóð Dalbrautar 1, 735 Fjarðabyggð. Lóðin afmarkast af Norðfjarðarvegi í vestur, Dalbraut í norður, Bleiksá í austur og leirunni í suður. Jafnframt er lagður fram samningur við hönnuði að nýju Hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð, Studio-Strik ehf. um gerð deiliskipulagsins. Nefndin samþykkir að hefja vinnu við gerð deiliskipulagsins og framlagðan samning og felur mannvirkjastjóra að klára málið. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Valur Sveinsson vék af fundi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tilboð í Nesbakka 19, íbúð 0202 frá Jarolaw Czesalaw Jucha og Eizbieta María Orlowska Jucha. Kauptilboðið er upp á 6,5 milljón sem er það sama og verðmat fasteignarsala. Nefndin samþykkti tilboð áður í tölvupósti þann 2. desember síðastliðin. Bæjarráð staðfesti samþykki nefndarinnar 6. desember síðastliðinn.
Lögð fram tillaga að breytingu á áður samþykktri gjaldskrá fyrir Sorpmiðstöð Fjarðabyggðar árið 2011. Við nánari skoðun og yfirferð á tillögu á gjaldskrá er þá lagt til við eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að álagningu sé breytt á eftirfarandi hátt. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
ü? Sorphreinsunargjald verði kr. 23.778 en gert var ráð fyrir að það væri kr. 26.858.- á hverja sorptunnu, þ.e. fyrir almenna tunnu.
ü? Sorpförgunargjald verði kr. 10.168 en gert var ráð fyrir að það væri kr. 7.087.- á hverja sorptunnu, þ.e. fyrir almenna tunnu.
Með breytingu er ekki verið að breyta heildargjaldinu, en það verður flutningur á milli hreinsunar- og förgunargjalda. Jafnframt er lögð fram umsögn, dagsett 12. desember, Heilbrigðiseftirlits Austurlands um gjaldskrá.
Nefndin samþykkir framlagða breytingu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.
Orkusjóður hefur auglýst styrki til jarðhitaleitar á köldum svæðum 2010. Heildarfjárveiting að þessu sinni eru 25 milljónir og er umsóknarfrestur 31. desember 2010.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin leggur til við bæjarráð að sótt verði um styrk til jarðhitaleitar.Lögð fram drög að samningi við landeiganda um heimild til jarðhitarannsókna og hagnýtingar á heitu vatni í landi Sléttu, 730 Fjaðrabyggð og kaup Fjarðabyggðar á vatnshitaréttindum Sléttu, landnúmer 158-204. Einnig lögð fram hagkvæmisathugun unnin af Mannviti, dagsett desember 2010 fyrir byggingu á nýrri Hitaveitu á Reyðarfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin er sammála því að sækja um að sameina alla styrki sem Fjarðabyggð á hjá Orkusjóði til ýtarlegri leitar í landi Sléttu, málinu vísað afgreiðslu bæjarráðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fella niður hundaleyfisgjald vegna minkaveiðihunda fyrir samningsbundna veiðimenn við Fjarðabyggð skv. 12 gr. samþykkt um hundahald í Fjarðabyggð. Samkvæmt 12. grein í nýrri samþykkt um hundahald í Fjarðabyggð getur Fjarðabyggð fellt niður eða ákveðið lægra gjald vegna hunda sem notaðir eru í löggæslu- eða björgunarstarfa og minkahunda. Ósk hefur komið frá veiðimönnum um að þetta gjald sé fellt niður og endurgreitt vegna þessa árs þar sem innheimta hefur þegar farið fram vegna 2010.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Um er að ræða 2 til 4 veiðimenn hvert ár sem eru samningsbundnir sveitarfélaginu. Hundaleyfisgjald vegna 2010 er 12.653 kr.