Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram bréf, dagsett 7. febrúar um aðstöðumál Eimskipafélags Íslands við Mjóeyrarhöfn. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi nefndarinnar þar sem nefndin óskaði eftir áætlun frá fyrirtækinu um varanlega lausn þess í húsnæðismálum á hafnarsvæði Mjóeyrarhafnar. Fram kemur í bréfinu að Eimskip ráðgerir að byggja upp aðstöðu við Mjóeyrarhöfn og að því verði lokið á árinu 2012. Þar af leiðandi óskar fyrirtækið eftir því að fá áframhaldandi stöðuleyfi til 30. júní 2012 fyrir gámahúsunum sem standa utan við lóð 9, á Hrauni.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fagnar því að fyrirtækið sé að fara í uppbyggingu á svæðinu og felst á framlengingu stöðuleyfis til 6 mánaða. Jafnframt óskar nefndin eftir því að á þeim tíma verði lagt fyrir hana tímasetta áætlun um framtíðaráætlanir fyrirtækisins.
Lagt fram bréf, dagsett 4. febrúar um aðstöðumál Gámaþjónustunnar við Mjóeyrarhöfn. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi nefndarinnar, þar sem nefndin óskaði eftir áætlun frá fyrirtækinu um varanlega lausn þess í húsnæðismálum á hafnarsvæði Mjóeyrarhafnar. Fram kemur í bréfinu að Gámaþjónustan er að skoða fjóra möguleika til að leysa aðstöðumál sín á hafnarsvæði Mjóeyrarhafnar. Óskar fyrirtækið eftir áframhaldandi stöðuleyfi til eins árs fyrir gámahúsunum sem standa á lóð 9, við Hraun.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin krefst þess að fyrirtækið leiti lausna á sínum málum og vill fá að sjá nánar hvaða úrræði fyrirtækið ætlar að fara í. Þar af leiðandi samþykkir nefndin stöðuleyfi aðeins til næstu 6 mánaða og óskar eftir því að á þeim tíma verði lagt fyrir nefndina tímasett áætlun um framtíðaráætlanir fyrirtækisins.
Lögð fram teikning frá Vegagerð ríkisins með breytta veglínu Suðurfjarðarvegar um botn Reyðarfjarðar. Vegagerðin er að vinna frumhönnun veglínu og óskar eftir afstöðu Fjarðabyggðar um það hvort veglína sé í samræmi við aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007 til 2027. Einnig snertir veglínan deiliskipulag iðnaðarsvæðisins að Nesi 1 í Reyðarfirði, þ.e. tengingar þess við Suðurfjarðarveg. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin telur að veglína sé í samræmi við aðalskipulag Fjarðabyggðar og felur eigna- og skipulagsfulltrúa að skoða breytingar á deiliskipulagi Nesi 1 og leggja fyrir nefndina.
Lögð fram fjárfestingaráætlun næstu þriggja ára, þ.e. 2012 til 2014. Þriggja ára áætlunin er búin að fara í eina umræðu í bæjarstjórn.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir áætlunina og leggur áherslu á að leitað verði allra leiða til að hægt verði að byrja framkvæmdir við nýjan leikskóla á Norðfirði á næsta ári.
Valur Sveinsson vék af fundi.
Á síðasta fundi nefndarinnar var fyrirspurn frá Stefáni Má um göngustíga í Fjarðabyggð og upplýsingakost um þá. Mannvirkjastjóri upplýsir nefndina um teikningar sem gerðar voru af nokkrum leiðum út frá sundlaugum og/eða íþróttahúsum Fjarðabyggðar. Teikningarnar voru hugsaðar sem upplýsingar til íbúa um fjarlægðir og mögulegar leiðir til hreyfingar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin leggur til að uppdrættir verði gerðir aðgengilegir íbúum og ferðamönnum.
Lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa, dagsett 12. febrúar um fræðsluáætlun vegna innleiðingar á "grænu tunnunni" sem nefndin óskaði eftir á síðasta fundi sínum. Það helsta sem gert verður á næstu mánuðum til að auka flokkun er eftirfarandi:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
- Vikuna 28.febrúar - 4.mars fara starfsmenn Íslenska Gámafélagsins í heimsókn í alla grunnskóla Fjarðabyggðar og verða með "umhverfisdag". Farið verður í alla bekki og verið með kynningar, fræðslu og kennslu í flokkun. Reynt verður að fá kennara í samstarf til þess að fylgja eftir verkefninu.
- Í mars- apríl mun Íslenska Gámafélagið skrifa grein í austfirska fjölmiðla s.s. Austurgluggann, agl.is um verkefnin sem þeir eru með hér á Austurlandi og kynna árangur af sínu starfi og einnig kynna skólaheimsóknirnar.
- Apríl/maí í kringum vorhreinsun Fjarðabyggðar stefnir Fjarðabyggð á að gefa út upplýsingablað um flokkun, úrgangsmál og önnur umhverfismál í Fjarðabyggð.
- Stefnt verður á að birta árangur flokkunar, þ.e. hlutfall, a.m.k. ársfjórðungslega á heimasíðu Fjarðabyggðar.
Nefndin lýsir yfir ánægju sinni með áætlunina.
Beiðni frá félags- og tryggingamálanefnd Alþingis um umsögn um frumvarp til laga um fjöleignarhús (leiðsöguhundar o.fl.), 377. mál.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.