Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lögð fram teikning frá Vegagerðinni með breyttri veglínu Suðurfjarðarvegar um botn Fáskrúðsfjarðar. Vegagerðin er að vinna frumhönnun veglínu og óskar eftir afstöðu Fjarðabyggðar um hvort að veglína sé í samræmi við aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007 til 2027. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin telur að veglínan sé í samræmi við aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007 til 2027.
Lagður fram tölvupóstur, frá 25. febrúar, frá Hildi Einarsdóttur og Sigrúnu Evu Grétarsdóttur með beiðni um að fá að stalla brekkurnar innan við Búðargrund á Fáskrúðsfirði, vegna hátíðarhalda í tengslum við Franska daga. Einnig hafa þær stöllur sótt um styrk til Alcoa vegna verkefnisins í sjóð sem kallast ?Leggjum hönd á plóg?<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að brekkan verði stölluð, en setur skilyrði um að það verði gert í samráði við mannvirkja- og umhverfissviðs.
Lögð fram tillaga eigna- og skipulagsfulltrúa, dagsett 25. febrúar 2011, um breytt leiguverð á íbúðum Fjarðabyggðar þ.e. íbúðum stærri en 100 fermetrar. Málið var á dagskrá á síðasta fundi nefndarinnar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin frestar afgreiðslu og mun taka málið aftur fyrir í maí.
Lögð fram ný umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir, dagsett 11. mars 2011, frá Alcoa Fjarðaáli. Sótt er um stöðuleyfi fyrir kennslustofur, starfsmannaaðstöðu, búningsklefa og tengibyggingu við 620-byggingu. Málið var áður tekið fyrir á síðasta fundi nefndarinnar og þá var afgreiðslu frestað og óskað eftir frekari gögnum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Meðfylgjandi umsókn er bréf frá Alcoa Fjarðaáli, undirritað af Jóhanni Helgasyni, framkvæmdastjóra fjárfestinga.
Nefndin fór yfir málið og samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir vinnubúðir til 6 mánaða, meðan að Alcoa Fjarðaál er að vinna áætlun um framtíðarplön fyrirtækisins.
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi frá Fjarðaveitingum ehf. fyrir einn frystigám við Austurveg 21, 730 Fjarðabyggð. Um er að ræða tímabundna lausn fyrirtækisins vegna flutnings þess frá Hafnargötu að Austurvegi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir stöðuleyfi til eins árs.
Lögð fram drög að áætlun um fyrirkomulag vinnuskóla Fjarðabyggðar fyrir árið 2011. Einnig farið yfir auglýsingu á sumarstöfum, þ.e. fyrir flokkstjóra og almenn sumarstörf.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir fyrirkomulagið og felur umhverfisfulltrúa að auglýsa sumarstörfin.
Lagður fram tölvupóstur frá Vinnumálastofnun, dagsettur 9. mars 2011, þar sem farið er yfir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um sérátak í atvinnumálum fyrir sumarið 2011. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
?Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur næsta sumar með líkum hætti og gera var sl. sumar. Áætlað er að verja allt að 370 milljónum króna til verkefnisins. Vinnumálastofnun mun stýra átakinu sem efnt er til í samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög.
Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs hefur samþykkt að verja allt að 250 milljónum króna til verkefnisins og ríkisstjórnin að veita 116 milljóna króna mótframlag úr ríkissjóði. Veittir verða styrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nema að hámarki fjárhæð atvinnuleysisbóta fyrir hvern einstakling en mótframlagi ríkisins er ætlað að mæta viðbótarkostnaði opinberra stofnana svo að þeim sé unnt að greiða laun samkvæmt kjarasamningum.
Viðbótarkostnaði sveitarfélaganna verða þau að mæta sjálf.
Af framlagi ríkisins eru 10 milljónir króna ætlaðar til verkefna sem hljóta styrki úr Nýsköpunarsjóði námsmanna og eru á vegum ráðuneyta eða opinberra stofnana. Mennta- og menningarmálaráðuneytið annast umsýslu og kynningu vegna þessara verkefna.
Vinnumálastofnun hvetur nú stofnanir ríkisins og sveitarfélög til að hefja undirbúning þessa átaks og móta störf og verkefni sem fallið geta að því. Vonir standa til að með átakinu verði til 850 - 900 tímabundin störf í sumar fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Stefnt er að því að ljúka undirbúningi átaksins tímanlega í vor þannig að unnt verði að auglýsa störfin í byrjun apríl svo að í seinni hluta apríl liggi fyrir fjöldi starfa hjá hverjum umsóknaraðila og að þeir geti þá gengið frá ráðningum. Störfin verða auglýst á heimasíðu Vinnumálastofnunar og etv. víðar og geta námsmenn og atvinnuleitendur sem eru á skrá hjá stofnuninni sótt um með rafrænum hætti líkt og í fyrra?
Bæjarstjórn fjallaði um umferðasamþykkt Fjarðabyggðar á 88. fundi sínum þann 17. febrúar síðastliðin og afgreiddi málið eftirfarandi:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
?Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa umferðarsamþykktinni til síðari umræðu í bæjarstjórn og frekari vinnslu í eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar vegna framkominna athugasemda á bæjarstjórnarfundi?
Í framhaldi af umræðu var umferðasamþykktin send Lögreglu og Vegagerð aftur til yfirferðar.
Lögð er fram umsögn Lögreglu og Vegagerðar.
Nefndin fjallaði um málið. Ákveðið að funda sérstaklega um málið 5.apríl næstkomandi.
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 1. mars frá Magnúsi Karel Hannessyni, sviðsstjóra rekstrar- og útgáfusviðs Sambands íslenskara sveitarfélaga. Fram kemur í póstinum að Orkustofnun og Orkusetur efna til fundaherferðar í rafhituðum sveitarfélögum í apríl nk. þar sem kynntar verða leiðir til þess að lækka orkureikninga íbúa á köldum svæðum. Iðnaðarráðuneytið hefur leitað eftir samstarfi við Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum um undirbúning fundanna og hefur stjórn SSKS samþykkt að leita eftir því við aðildarsveitarfélögin að þau aðstoði við þessa fundaherferð. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Orkusetur óskar jafnframt eftir því að sveitarfélögin útvegi fundaraðstöðu á hverjum stað og auglýsi fundina með viðeigandi hætti. Samkvæmt meðfylgjandi dagskrá þá er ráðgert að hafa fundi á Reyðarfirði og Norðfirði, hádegis- og kvöldfund.
Nefndin fagnar frumkvæði Orkustofnunar og Orkuseturs og felur mannvirkjastjóra að auglýsa fundina, þegar dagsetningar liggja fyrir, í samvinnu við Orkusetur.
Lagt fram ódagsett bréf frá Agnesi Klöru Jónsdóttur og Pétri Viðarssyni vegna hundahalds í Fjarðabyggð. Bréf kemur í framhaldi af höfnun nefndarinnar frá síðasta fundi á undanþágu frá samþykkt nr. 704/2010 um hundahald í Fjarðabyggð. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir bréfið og er staðföst í fyrri ákvörðun sinni og telur ekki forsendur fyrir að víkja frá samþykkt um hundahald í Fjarðabyggð nr. 704/2010 og felur mannvirkjastjóra að fylgja ákvörðuninni eftir.
Lagt fram bréf, dagsett 21. febrúar 2011 frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti þar sem ráðuneytið býðst til að selja Fjarðabyggð landsspildu 1,82 ha úr landi Grænanesi fyrir 520.000 kr.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir málið og lýsir yfir vilja til að kaupa landið. Kaup spildunnar rúmast ekki innan fjárheimilda nefndarinnar og vísar nefndin því málinu til bæjarráðs.