Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram bréf frá umhverfisráðherra Svandísi Svavarsdóttur, dagsett 14. mars 2011 vegna dags umhverfisins árið 2011, en hann er haldinn 25. apríl ár hvert. Þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn, en hann var fyrstur Íslendinga að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Með bréfinu er ráðherra að hvetja félög, skóla og sveitarfélög til að taka virkan þátt í degi umhverfisins, t.d. með uppákomum eða fræðslu um skóga eða önnur umhverfismál. Árið 2011 er ár skóga samkvæmt ákvörðun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna og er dagur umhverfisins að þessu sinni tileinkaður skógum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur umhverfisfulltrúa að tengja vorhreinsun sveitarfélagsins við daginn, einnig felur nefndin mannvirkjastjóra að senda bréf umhverfisráðherra til allra grunn- og leikskóla í Fjarðabyggð.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 24. mars 2011 frá Helgu Hreinsdóttur framkvæmdarstjóra Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem sendur var á alla forsvarsmenn sveitarfélaga á Austurlandi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Inn á borð heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga koma í vaxandi mæli klögumál og vandræði vegna búfjár sem fólk tekur og heldur sem gæludýr. Aðallega er um að ræða hænsn og aligæsir en einnig hafa menn verið með önnur dýr.
Í hollustuháttareglugerð sem var felld úr gildi 2002 var skýrt kveðið á um að ekki væri heimilt að halda fiðurfé í þéttbýli. Sambærilegt ákvæði fór ekki inn í nýjar reglur sem tóku við af hollustuháttareglugerðinni gömlu, þannig að af hálfu löggjafans er ekki tekið á þessu - enda kannski ástæðulaust.
Í Reykjavík hafa menn fundið fyrir þörf á reglum um þetta og fyrir alllöngu sett sér samþykkt til að geta tekið á ágreiningi og deilum um búfé í þéttbýli. Í samþykktinni er eftirfarandi skilgreining: Með búfé í samþykkt þessari er átt við alifugla, geitfé, hross, kanínur, loðdýr, nautgripi, sauðfé og svín.
Með þessum pósti vilja starfsmenn HAUST vekja athygli á málinu og óska eftir því að sveitarfélögin íhugi hvort þau vilja setja sér samþykkt, sambærilega þeirri sem Reykvíkingar hafa gert. Auðvitað þyrfti að gæta að því að takmarka gildi slíkrar samþykktar við þéttbýliskjarna.
Hafi sveitarfélög á starfssvæði HAUST áhuga á að vinna samþykkt býður HAUST hér með fram aðstoð, en bendir jafnframt á að slík samþykkt yrði sett á grunni laga 59/200 um vörslu búfjár, en ekki á hollustuháttalögum, þannig að HAUST myndi ekki fylgja eftir ákvæðum slíkrar samþykktar.
Nefndin sér ekki ástæðu til að gera samþykkt að svo stöddu.Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 23. mars frá nefndarsviði Alþingis. Þar kemur fram að Iðnaðarnefnd Alþingis óskar eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á vatnalögum, 561. mál. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Þar sem frumvarpið verður tekið á dagskrá á nefndafundum 4.-6. apríl nk. er óskað eftir því að umsögn berist fyrir 1. apríl nk.
Nefndin frestar afgreiðslu og átelur nefndarsvið Alþingis fyrir allt of knappan umsagnartíma.Lagt fram til kynningar fundarboð aðalfundar Samtaka atvinnulífsins sem verður 7. apríl nk. Fundurinn mun fara fram á Hilton Reykjavík Nordica, en Fjarðabyggð á rétt til setu á fundinum fyrir hönd Rafveitu Reyðarfjarðar og svo Orkuveitu Fjarðabyggðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
|
Lagt fram til kynningar bréf, ásamt fylgigögnum frá Landsneti, dagsett 21. mars 2011 um Kerfisáætlun ársins 2010, sem nær til næstu fimm ára. Kerfisáætlun er ætlað að veita markaðsaðilum yfirlit yfir eiginleika og þróun flutningskerfis á næstu árum. Jafnframt er hlutverk hennar að kynna þau verkefni sem Landsnet telur mikilvæg til að stuðla að öflugu og hagkvæmu raforkuflutningskerfi til framtíðar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Einnig er meðfylgjandi skýrslan Orkujöfnuður 2013 og afljöfnuður 2013/14. Hlutverk hennar er að spá fyrir um orkujöfnuð einstakra landsvæða og líkum á aflskorti í Raforkukerfinu.Lagt fram kauptilboð dagsett 21. mars 2011 frá Bjarka Sveinssyni í íbúð Fjarðabyggðar í Starmýri 17 til 19. Tilboð er upp á 5,5 milljónir en fasteignamat íbúðarinnar er 5.88 milljónir. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir tilboðið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.
Lagt fram kauptilboð dagsett 25. mars 2011 frá Marvini Ómarssyni í íbúð Fjarðabyggðar, Mjóafirði við Þinghólsveg 3 eða 5, en bæði húsin eru eins. Tilboðið er upp á 4,5 milljónir en fasteignamat íbúðarinnar er 5,42 milljónir. Verðmat frá fasteignasala liggur ekki fyrir.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir tilboðið í Þinghólsveg 3 og gerir kröfu um að gengið verði frá lóðinni í samráði við landeiganda. Vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Lögð fram til kynningar niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur frá 14. mars 2011 í máli Sigþórs Rögnvars Grétarssyni gegn Sjóvá-Almennum tryggingu hf og Fjarðabyggð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Niðurstaða dómsins var að Sjóvá-Almennar tryggingar hf og Fjarðabyggð voru sýknuð af öllum kröfum stefnanda.Lögð fram stefna Einrúm arkitekta ehf., dagsett 24. mars 2011 á hendur íslenska ríkinu, Framkvæmdarsýslu ríkisins, Fjarðabyggð og Studio Strik ehf. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Stefnandi krefst þess að úrskurður kærunefndar útboðsmála frá 14. október 2010 í máli nr. 20/2012: Studio Strik ehf. gegn Framkvæmdarsýslu ríkisins verði felldur úr gildi.
Þá krefst stefnandi þess aðallega að viðurkennt verði að ákvörðun Framkvæmdarsýslu ríkisins, dagsett 14. desember 2010, að svipta stefnanda fyrstu verðlaunum í hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð, sbr. útboð nr. 14838, sé markleysa en til vara að hún verði felld úr gildi.
Loks krefst stefnandi þess að viðurkennd verði skaða- og miskabótaskylda stefnda, íslenska ríkisins, gagnvart stefnanda.
Grenndarkynningu vegna göngustígs frá Árgötu upp á Tungumel er lokið. Allir þeir sem tengdust grenndarkynningunni hafa skrifað undir og samþykkt staðsetningu göngustígsins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur sviðinu að hefja framkvæmdir.
Lagt fram bréf frá Skipulagsstofnun, dagsett 23. mars 2011 vegna erindis Fjarðabyggðar um óverulega breytingu á deiliskipulaginu Nes 1, 730 Fjarðabyggð. Skipulagsstofnun leggst gegn því að breytingin verði auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þar sem stofnunin telur að grenndarkynna ætti breytinguna. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Í ljósi þess og þar sem tímamörk breytingar eru ekki eins aðkallandi og áður, leggur nefndin til að farið verði í heildarendurskoðun á deiliskipulaginu, með breytingum á lóðum og vegtengingum hverfisins við Ægisgötu og væntanlegan Suðurfjarðarveg verði lagfærðar.
Svæði fyrir matjurtagarða eru til í öllum hverfum sveitarfélagsins en hafa ekki verið nýtt allsstaðar. Matjurtagarðar hafa undanfarin ár verið plægðir og nýttir á Fáskrúðsfirði og á Eskifirði. Nýting svæðanna er þokkaleg á þessum stöðum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin leggur til að opnuð verði svæði á öllum stöðum og aðkoma Fjarðabyggðar að svæðunum verði að plægja þau. Einnig felur nefndin mannvirkja- og umhverfissviði að auglýsa garðana á heimasíðunni og að búa til einfaldar reglur um nýtingu þeirra, ekki er gert ráð fyrir gjaldtöku.
Lögð fram hugmynd af hólma í "Leirupolli" við innkomuna í Reyðarfjörð, en hugmyndin er að nýta afgangsefni sem fellur til við smábátahöfnina á Reyðarfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að gerður verði hólmi sambærilegur og sá sem er í andapollinum og felur mannvirkja- og umhverfissviðað fara í verkið.
Hákon Björnsson sækir um leyfi til að byggja geymslu og gestahús við sumarhús sitt á Hólum í Norðfjarðarsveit. Þegar sótt var um byggingarleyfi sumarhússins 2003 var leitað meðmæla Skipulagsstofnunar eftir að umsagnir Fornleifaverndar ríkisins og Umhverfisstofnunar lágu fyrir. Skipulagsstofnun gerði ekki athugasemd við að sumarhús yrði reist á jörðinni. Í samræmi við 1. mgr ákvæða til bráðabirgða í skipulagslögum nr. 123/2010 er óskað eftir meðmælum Skipulagsstofnunar vegna viðbyggingar við sumarhúsið í landi Hóla í Norðfjarðarsveit.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að óska meðmæla Skipulagsstofnunar vegna leyfisveitingarinnar líkt og gert var áður.
Erindi frá Mjóeyri ehf um leyfi fyrir heitan pott, sauna og hreinlætisaðstöðu samkvæmt teikningum. Staðsetning nýs húss er utan lóðar.
Nefndin frestar afgreiðslu og felur mannvirkja- og umhverfissviði að ræða við umsækjanda um útfærsluna.
Lögð fram umsókn frá Plastiðjunni Yl, dagsett 11. mars 2011 um stöðuleyfi fyrir aðstöðuhús á lóð Ægisgötu 6. Einnig lagt fram bréf fyrirtækisins, dagsett 25. mars 2011 um framtíðarsýn þess, en þar kemur fram að fyrirtækið ætli að flytja starfssemi sína inn á Hjallaleiru 23 næstkomandi haust. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að veita stöðuleyfi til ársloka 2011, enda liggur fyrir að fyrirtækið ætli að færa aðstöðu sína þangað fyrir þann tíma.
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lögð fram umsókn, dagsett 4. febrúar 2011 frá Ireneusz Aleksander Dowgier um viðbygging við Urðarteigur 28 á Norðfirði. Húsið er á snjóflóðahættusvæði C, en á svæðinu þar sem byggingin mun rísa er fyrirhugaður nýr varnargarður sem hefur áhrif á hættumatið. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin frestar afgreiðslu.