Fara í efni

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

18. fundur
5. apríl 2011 kl. 16:30 - 18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson Mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Endurskoðun á umferðasamþykkt
Málsnúmer 1009017

Farið var yfir athugasemdir og ábendingar lögreglunnar í Fjarðabyggð, ásamt umsögn Vegagerðarinnar. Varðandi ábendingar lögreglu um umferðarhraða þá er ákveðið að senda innanríkisráðuneytinu bréf þess efnis að refsiheimild fyrir umferðarhraða 40 km/klst verði bætt inn í reglugerð 930/2006 í samræmi við kröfur lögreglu. Umferðarsamþykkt er klár að öðru leiti, þ.e. fyrir utan endanlega útfærslu á umferðarhraða.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin frestar afgreiðslu þar til að afstaða ráðuneytisins liggur fyrir.