Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagður fram uppdráttur sem sýnir staðsetningu á fyrirhuguðu vallarhúsi og stúku við Eskifjarðarvöll. En nauðsynlegt er að grenndarkynna fyrirhugaðar staðsetningar þar sem til stendur að flytja vallarhúsið síðsumars eða með haustinu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að farið verði í grenndarkynningu, skal hún ná til Dalbrautar 2, 3, 3a og Ystadals 1 og 3.
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi, ásamt uppdráttum, dagsett 16. júní 2011, frá Mannviti hf. fyrir hönd Síldarvinnslunnar hf. Norðfirði. Um er að ræða umsókn um hækkun á hluta af þaki fiskimjölsverksmiðju samanber uppdrætti. Einnig er sótt um leyfi vegna uppsetningar á reykháf.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir framlagða umsókn og uppdrætti og felur byggingarfulltrúa afgreiðslu málsins þegar uppáskriftir meistara og byggingarstjóra liggur fyrir.
Lagðar fram teikningar unnar af Verkís hf. fyrir Yl ehf. vegna uppsetningar á steypustöð á Hjallaleiru 23, 730 Fjarðabyggð. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir uppdrætti fyrir sitt leyti og felur byggingarfulltrúa að afgreiða erindið þegar öll gögn liggja fyrir.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 9. júní 2011, frá Þorsteini Erlingssyni. En þar er sótt um leyfi til reynslu um gildruveiðar á mink innan þéttbýlis á Reyðarfirði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin tekur jákvætt í erindið, en gerir kröfu að gildrur séu útfærðar þannig að öruggt sé að börn geti ekki komist í gildrurnar og að þær séu teknar út af dýraeftirlitsmanni Fjarðabyggðar við niðursetningu.
Páll Björgvin bæjarstjóri sat þennan lið fundarins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lagt fram bréf, dagsett 16. júní 2011, frá Fljótsdalshéraði með beiðni um að fá að urða sorp í Þernunesi til næstu 2. ára, en áætlað magn á ári er 1800 tonn.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram og leggja tillögu fyrir bæjarráð.
Lagt fram bréf frá umhverfisráðuneytinu dagsett 3. júní 2011 þar sem óskað er eftir umsögn um vinnudrög að nýrri reglugerð um framkvæmdaleyfi.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin frestar málinu til næsta fundar.
Lagt fram bréf, dagsett 14. júní 2011, frá Vegagerðinni vegna vinnusvæðamerkinga í þéttbýli. Með bréfinu er vakin athygli sveitarfélagsins á útgáfu reglugerðar nr. 492/2009 um merkingar og aðar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg sem tók gildi 15. maí 2009. Einnig er farið yfir orðsendingu frá Vegamálastjóra nr. 02/2011 vegna sama máls, en þar kemur fram að aðlögunartími að reglugerð sé lokið. Frá og með 1 .mars 2011 skal farið að fullu eftir þeim reglum og fyrirmælum sem gilda um vinnustaðamerkingar. Farið er þess á leit við Fjarðabyggð að hún tilkynni verktökum formlega um ákvörðun þessa eins fljótt og verða má.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að tilkynna verktökum er vinna fyrir sveitarfélagið ákvörðun Vegamálastjóra.