Fara í efni

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

26. fundur
12. september 2011 kl. 16:30 - 18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson Mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2012 - Eigna-,skipulags,- og umhverfisnefnd
Málsnúmer 1108055

Páll Björgvin bæjarstjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir fylgi úthlutun bæjarráðs á fjárheimildum til nefndarinnar úr hlaði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Bæjarráð samþykkti á fundi 5. september fjárhagsramma til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar fyrir fjárhagsárið 2012. Fjárhagsrömmum er úthlutað á grunni fjárhagsáætlunar 2011 en tekið er tillit til áhrifa nýrra kjarasamninga á laun- og launatengd gjöld. Reynist endanleg launaáætlun (mannahaldsáætlanir stofnana) lægri en gert er ráð fyrir í fjárhagsramma nú, miðað við gefnar forsendur, mun fjárhagsramminn lækka í samræmi við það. Í forsendum er gert ráð fyrir 2,5% hækkun á vöru- og þjónustukaupum og 5% hækkun á þjónustugjaldskrám stofnana. Nefndir geta eðlilega komið með tillögur til bæjarráðs um að breyting á gjaldskrám verði önnur en miðað er við hér, sé það fest í stefnumið og svigrúm sé til staðar innan fjárhagsrammans. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að bregðast verði við kostnaðarhækkunum með sérstökum ákvörðunum og aðgerðum til að lækka útgjöld innan málaflokkanna. Haldið verður áfram að leita leiða til hagræðingar. Taki bæjarráð í fjárhagsáætlunarferlinu skýrt afmarkaða ákvörðun um að leggja af eða draga úr tilteknum rekstri eða þjónustu mun fjárhagsrammi lækka í samræmi við það. Fjárhagsáætlun sem skilað er af hálfu nefndar og sviðsstjóra til fjármálasviðs skal vera innan úthlutaðs ramma.

 

Samkvæmt fjárhagsáætlunarferlinu ber nefndum að fela sviðstjórum undirbúning starfs­áætlunar og tillagna í frumvarp að fjárhagsáætlun í samræmi við stefnukort og forgangsröðun. Til hliðsjónar eru meðfylgjandi reglur sveitarfélagsins um ferli og framsetningu fjárhagsáætlunar hjá Fjarðabyggð.

 

Fjárhagsrammar nefndarinnar eru eftirfarandi:

  • til hreinlætismála fyrir árið 2012 er 3.445 þús. kr.

  • til leik- og íþróttavalla fyrir árið 2012 er 7.982 þús. kr.

  • til vinnuskóla fyrir árið 2012 er 30.633 þús. kr.

  • til skipulags- og byggingarmála fyrir árið 2012 er 56.583 þús. kr.

  • til umferðar- og samgöngumála fyrir árið 2012 er 195.028 þús. kr.

  • til umhverfismála fyrir árið 2012 er 72.852 þús. kr.

  • til landbúnaðarmála og tjaldsvæða fyrir árið 2012 er 9.129 þús. kr.

Þeim tilmælum er beint til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar að leita allra leiða til frekari hagræðingar í málaflokki sínum og að ýtrasta aðhalds verði gætt eins og áður í rekstri á komandi ári. Við ákvörðun um hagræðingu skal ávallt meta áhrif á þjónustustig.

Gert er ráð fyrir að starfs-og fjárhagsáætlun einstakra málaflokka sé skilað til fjármálasviðs eigi síðar en 21. október nk.  Þá er gert ráð fyrir fundi formanns nefndar og sviðsstjóra með bæjarráði þann 10. október nk.

 

Nefndin felur sviðsstjóra undirbúning starfsáætlunar og tillagna í frumvarp að fjárhagsáætlun í samræmi við stefnukort og forgangsröðun til að leggja fyrir nefndina.
2.
Uppbygging á svæði Skotíþróttafélagi Dreka
Málsnúmer 1109010

Lagt fram bréf, dagsett 1. september 2011 frá Skotíþróttafélaginu Dreka í Fjarðabyggð. Málið var tekið fyrir á 258. fundi bæjarráðs og var þar vísað til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og fræðslu- og frístundanefnd.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Það sem félagið fer fram á er eftirfarandi:

  • Að Fjarðabyggð komi að skipulagsvinnu svæðisins, þ.e. deiliskipulagsvinnu.

  • Að aðkomuvegur að félagssvæði verði lagaður.

  • Að Fjarðabyggð komi að uppbyggingu á félagsaðstöðu, en félagið festi kaup á þremur gámaeiningum frá Alcoa.

  • Að félagið fái inniaðstöðu í gömlu sundlauginni á Eskifirði.

  • Að Fjarðabyggð sjái um rekstur á veðurmyndavél á félagssvæði.

Nefndin felur sviðinu að vinna deiliskipulag og ganga til samninga í samvinnu við fræðslu- og frístundasvið um afnot af  kjallara gömlu sundlaugar. Öðrum liðum er vísað til skoðunar, þó án skuldbindingar til næstu fjárhagsáætlunargerðar.
3.
Beiðni til bæjaryfirvalda að stækka eldhúsið í Melbæ
Málsnúmer 1109053

Bréf, dagsett 13. ágúst sl. frá Félagi eldriborgara á Eskifirð þar sem óskað er eftir því að eldhús í félagsaðstöðu félagsins í Melbæ verði stækkað þar sem stærð þess sé of lítil fyrir þá fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram. 

Nefndin vísar málinu til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012, þar sem það verður skoða í samhengi við aðrar framkvæmdir sem þarf að fara í. Jafnframt óskar nefndin eftir kostnaðarmati  á umbeðnum breytingum frá eigna- og skipulagsfulltrúa.

4.
735 Strandgata 64 - niðurrif húshluta
Málsnúmer 1109023

Lagður fram tölupóstur, dagsettur 5. september sl. frá húsfélagi Strandgötu 64, 735 Fjarðabyggð. En þar er farið yfir viðræður sem hafa verið á milli mannvirkja- og umhverfissviðs og húsfélagsins með frágang á innri enda húsnæðisins sem er í eigu Frjálsa fjárfestingarbankans. Sú hugmynd kom upp að Fjarðabyggð myndi eignast þann hluta og sjá um niðurrif hans og frágang svæðisins. Á móti þyrfti húsfélagið að ganga frá stafni hússins. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Niðurstaða fundarins var sú að eigendur íbúðanna/geymslna eru ekki sáttir við að taka á sig kostnað sem af því hlýst og telja að sá sem rífur húsið þyrfti að ganga þannig frá endaveggnum að ásættanlegt sé.  Einnig vilja íbúar gjarnan ljúka samningum um skipulag og frágang lóðarinnar og telja að framkvæmdir þessar gætu verið hluti af þeim.

 

Nefndin felur sviðstjóra að ræða útfærslu frekar við Frjálsa fjárfestingarbankann með kostnaðarhlutdeild í verkefninu til að ná viðunandi lausn á málinu.
5.
Tekjumörk Rafveitur Reyðarfjarðar á raforkudreifingu 2011 - 2015
Málsnúmer 1108132
Lagt fram bréf til kynningar, dagsett 23. ágúst sl. frá Orkustofnun vegna tekjumarka Rafveitu Reyðarfjarðar vegna raforkudreifingar fyrir árið 2011 til 2015.
6.
Könnun á leiguíbúðum sveitarfélaga
Málsnúmer 1108125

Lögð fram til kynningar skýrsla unnin af Varasjóði húsnæðismála á stöðu leiguíbúða sveitarfélaga árið 2010. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin fór yfir skýrsluna og bendir á eftirfarandi. Þar sem talað er um fjölda íbúða er verið að blanda saman leiguíbúðum og íbúðum fyrir aldraða. Rétt er að íbúðum í eigu Fjarðabyggðar er ekki að fjölga, heldur hefur þeim verið að fækkað. Stefna Fjarðabyggðar er að selja allar leiguíbúðir sínar.

 

Nefndin felur eigna- og skipulagsfulltrúa að senda Varasjóði húsnæðismála leiðréttingu á þeim upplýsingum er snúa að Fjarðabyggð.
7.
Ágangur vatns á lóð í Árdal.
Málsnúmer 1107061

Á 259. fundi bæjarráðs var málinu vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu. Lögð fram bréf frá Elsu Þórisdóttur og Jóni Birni Hlöðverssyni, dagsett 19. júlí 2011 og 3. september sl.. Einnig lögð fram umsögn mannvirkjastjóra, dagsett 4. ágúst 2011 og svarbréf, dagsett 25. ágúst 2011.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin frestar afgreiðslu til næsta fundar og nefndarmenn ætla að kynna sér aðstæður betur.
8.
Endurskoðun á umferðarsamþykkt
Málsnúmer 1009017
Málið rætt og ákveðið að taka til efnislegrar umræðu á næsta fundi nefndarinnar, en beðið er eftir skriflegu svari frá innanríkisráðuneytinu varðandi fyrirspurn nefndarinnar vegna skilgreiningar á umferðahraða.
9.
Starfshópur um almenningssamgöngur
Málsnúmer 1101197

Lögð fram tillaga til kynningar, dagsett 30. ágúst 2011 og bréf sem sent var Alcoa, dagsett 5. september sl..<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Mannvirkjastjóri gerði grein fyrir því hvernig málið stendur. Nefndin fagnar framkomnum hugmyndum og vonar að málið fái brautargengi núna um mánaðarmótin.
10.
730 Austurvegur 21 - hlaða vegg.
Málsnúmer 1108084

Lögð fram umsókn, dagsett 17. ágúst 2011, fyrir hönd Þórmundar ehf.. Þar er sótt um leyfi til að hlaða vegg frá húsinu, sem kallast Klambrar er stendur á lóð Austurvegur 21 að lóðarmörkum við Austurveg 23. Með þessari framkvæmd þá ætla lóðarhafar að loka innkeyrslu austast á lóðinni.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin samþykkir umsóknina fyrir sitt leiti og felur byggingarfulltrúa að klára málið.
11.
Beiðni um afnot af húsum á Hólmum
Málsnúmer 1108110

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 23. ágúst 2011, frá Elíasi Jónssyni vegna afnota af húsum á jörðinni Hólmar í Reyðarfirði. Þar spyr hann hvaða húsnæði það hafi verið sem faðir hans Jón Vigfússon hafi fengið til afnota með leyfi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar árið 2006. Það er hans skilningur að umrætt húsnæði séu vélageymsla og geymsla sem standa vestan við íbúðarhúsið á Hólmum. Einnig sækir hann um að fá til afnota sjóhús sem stendur niður við fjöruna, neðan við bæinn.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar tók fyrir erindi frá Jóni Vigfússyni, dagsett 30. ágúst 2006 á fyrir fundi sínum þann 7. september 2006. Þar tók bæjarstjórn jákvætt í erindið og ætlaði að taka málið aftur til skoðunar þegar Fjarðabyggð væri búinn að ganga frá samningum um kaup á jörðinni frá fjármálaráðuneytinu.

 

Nefndin felst á að fráfarandi ábúandi eða niðjar hans fái afnot af bílskúr til nota vegna æðavarps á jörðinni, en það er í samræmi við umsókn fráfarandi ábúanda frá árinu 2006 og bæjarstjórn tók jákvætt í. Jafnframt felst nefndin á að viðkomandi fái afnot af bátaskýli. Skilyrði er gert um að húsnæði verði snyrtileg og vel viðhaldið. Engan búnað eða tæki má geyma utan þess.
12.
Leyfi fyrir niðurríf á Hólma við Reyðarfirði
Málsnúmer 0911156

Fjarðabyggð sótti um leyfi til Húsafriðunarnefnd með bréfi, dagsett 17. febrúar 2010 um leyfi til að rífa íbúðarhúsið á jörðinni Hólmar í Reyðarfirði, landnúmer 158198.

Fyrir liggur afstaða Húsafriðunarnefndar með bréf, dagsett 31. ágúst sl., þar er bókað:

"Eftir yfirgripsmiklar og tillitslausar breytingar á íbúðarhúsinu að Hólmum um 1950 er gildi þess lítið auk þess sem ástand þess er mjög lélegt. Ekki er gerð athugasemd við niðurrif þess, en mælst til þess að kjallari undir því verði varðveittur og fylltur með möl svo að móti fyrir sökklum gamla prestsetursins. Jafnframt skal bent á að kirkjugarðurinn, með óvenju vegleg minningarmark, og grjótsökkull gömlu kirkjunnar , hefur mikið gildi á þessum stað."

Nefndin fellst á að íbúðarhúsið að Hólmum verði rifið og gengið frá því í samræmi við bókun Húsafriðunarnefndar. Einnig skal rífa aðrar þær byggingar en fráfaranda og niðja hans er heimilt að nýta samkvæmt samningi þar um.

13.
Smábátahöfn Reyðarfirði
Málsnúmer 1001100

Lagðar fram til kynningar teikningar af frágangi við smábátahöfnina á Reyðarfirði. Málið var áður tekið fyrir á fundi hafnarstjórnar og var vísað þar til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin líst vel á framkomnar tillögur og hvetur hafnarsjóð til að klára frágang eins fljótt og verða má.
14.
750-Deiliskipulag neðan Búðarvegar
Málsnúmer 1109016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að láta vinna breytingar á deiliskipulagi neðan Búðarvegar á Fáskrúðsfirði þannig að fallið verði frá landfyllingum undir veg og núverandi vegstæði notað.
15.
735-Deiliskipulag, Dalur 1, íþróttasvæði og leikskóli
Málsnúmer 1109006
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að láta vinna breytingar á deiliskipulaginu Dalur 1, íþróttasvæði og leikskóli á Eskifirði svo koma megi fyrir sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldneyti innan skipulagssvæðisins.
16.
Jarðgerð á sorpi
Málsnúmer 1108158

Málið rætt, en horfa verður til lausnar fyrir grunnskóla Fjarðabyggðar, þar sem mikið af efni fellur til jarðgerðar hjá þessum stórum stofnunum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Umhverfisfulltrúa falið að koma með tillögur að lausn fyrir næsta fund nefndarinnar.
17.
Ágengi búfjár í þéttbýli
Málsnúmer 1109036

Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, dagsett 27. mars 2008 eru skilgreind ákveðin svæði í aðalskipulagi Fjarðabyggðar fjárlaus. Fjarðabyggð hefur hvorki fjármagn né úrræði til að tryggja að svo sé. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Um rædd svæði sem skilgreind eru fjárlaus er Eskifjörður frá Mjóeyri og Reyðarfjörður allur norðan sauðfjárveikilínu. Stöðvarfjörður að Löndum er jafnframt friðaður fyrir sauðfjárbeit.

 

Skilgreind beitarhólf fyrir sauðfé eru Mjóifjörður, Norðfjörður og Gerpissvæðið að Eskifirði. Sunnanverður Reyðarfjörður og Fáskrúðsfjörður að Löndum.

 

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til umfjöllunar í landbúnaðarnefnd.
18.
Norðfjarðarrétt - viðgerð
Málsnúmer 1109005
Mál tekið fyrir á 4. fundi landbúnaðarnefnd. Nefndin vísar málinu til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.
19.
Afgreiðslur byggingafulltrúa - 22
Málsnúmer 1109005F
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa.
20.
Landbúnaðarnefnd - 4
Málsnúmer 1109001F
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðfestir fundargerð landbúnaðarnefndar.
20.1 Gangnaboð 2011
20.2 Norðfjarðarrétt - viðgerð