Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir frístundarbyggð í Skuggahlíðarhálsi í Norðfirði ásamt deiliskipulagsskilmálum, tillaga er unnin af landeigendum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Á svæðinu hefur verið strjál byggð sumarhúsa í 60 ár eða frá 1950. Landeigendur hafa úthlutað lóðum á leigu úr landi sínu án mikilla kvaða um hússtærðir, gerðir eða aðra þætti. Þar sem búið er að byggja um allt svæðið og úthluta lóðum er ekki sett fram tillaga að áfangaskiptingu á svæðinu. Einu kvaðir hafa verið að girða lóðir og planta ýmsum trjátegundum.
Þar sem aukin ásókn er í að byggja frístundahús á svæðinu ákvað landeigandi að ráðast í gerð deiliskipulags fyrir það. Markmið þess er að skipuleggja þar lóðir fyrir frístundahús þannig að svæðið nýtist sem best án þess þó að það verði of þéttbyggt. Alls gerir tillagan ráð fyrir 55 lóðum (22 ofan við veg og 33 neðan við veg) og er stærð þeirra frá 1.640 - 4.900 m2. Vegna þess að lóðum hefur þegar verið úthlutað fyrir allmörgum árum síðan og byggt á hluta af þeim fer landeigandi fram á að gerð sé undanþága vegna fjarlægða frá Seldalsá og Hengifossá annars vegar og Norðfjarðarvegi hins vegar. Að í stað 50 metra fjarlægðar frá Seldalsá og Hengifossá sé heimilt að byggja í allt að 30 metra fjarlægð frá árbakka. Einnig er farið fram á að fjarlægð lóða frá núverandi Norðfjarðarvegi verði ekki takmörkuð við 100 m, enda er á vegaáætlun að ráðist verður í nýjan Norðfjarðarveg um Fannardal. Landeigandi mun ekki úthlutað lóðum sem eru innan við 100 m fyrr en eftir að nýr Norðfjarðarvegur verður tekinn í notkun og sá gamli aflagður sem þjóðvegur.
Nefndin samþykkir að óskað verði eftir því við Umhverfisráðuneytið að veitt verði undanþága fyrir þær lóðir sem nú þegar er búið að úthluta og byggja á og jafnamt verði veitt undanþága gagnvart kröfunni gagnvart Norðfjarðarvegi. |
Lögð fram tillaga að grenndarkynningu sem send verður hagsmunaraðilum vegna frágangs á Gilsbakkalæk á Norðfirði. Gert er ráð fyrir að fara í framkvæmdir í haust eða um leið og samþykki allra aðila liggur fyrir. Nefndin samþykkir framlagða tillögu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> |
Tillaga lögð fram fyrir nefndina. Tillögu vísað til endurskoðunar umferðasamþykktar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> |