Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagðar fram tillögur að frágangi göngustíga og öðru skipulagi í friðlandinu í Hólmanesi unnum af Landmótun ehf.
Nefndinni lýst vel á framlagðar tillögur og samþykkir að láta deiliskipuleggja svæðið í samræmi við þær.
Umsókn frá Birni Magnússyni, dagsett 6. október 2011, um stækkun lóðar við Egilsbraut 9a á Norðfirði. Sótt var um að lóð stækki að lóðarmörkum Egilsbrautar 5 og 7 neðan húss og upp að nýjum kanti vegar, er liggur að sundlaug, ofan húss. Umsóknin var grenndarkynnt frá 31. október 2011 til 28. nóvember 2011. Ein athugasemd barst.
Nefndin frestar afgreiðslu.
Lagt fram til kynningar nýtt form lóðaleigusamnings þar sem meðal annars breytist leigutími lóða úr 50 árum í ótímabundinn.
Nefndin felur sviðinu að vinna málið áfram og koma með tillögu að breyttum samningum.
Lögð fram umsókn, ódagsett, frá Síldarvinnslunni hf. vegna breytinga á skemmu við Naustahvamm 19, Norðfirði. Sótt er um leyfi til niðurrifs klæðningar af öllu húsinu þannig að stálgrindin standi eftir. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi, en fer fram á að fyrirtækið skili inn áætlun um endurgerð skemmunnar innan 6 mánaða, frá útgáfu byggingarleyfis.
Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands, dagsett 25. nóvember 2011, vegna umsóknar Alcoa Fjarðaáls á starfsleyfi fyrir geymslu um raflausnar í landi Seljateigs í botni Reyðarfjarðar. Sótt er um framlengingu á starfsleyfi til ársloka 2012, meðan unnið er að öðrum lausnum á geymslum fyrir raflausn.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að gefa út leyfi til ársloka 2012, en setur skilyrði um að fyrirtækið finni þessu málum varanlega lausn innan skilgreindra iðnaðarsvæða í Fjarðabyggð.
Lagt fram drög að afsali og leigusamningi vegna Ljósárvirkjunar Eskifirði. Rarik gaf Ljósárvirkjun til Fjarðabyggðar þann 13. nóvember s.l.. Jafnframt skuldbatt Rarik sig til þess að leigja hluta af húsnæðinu til næstu ára.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.
Lögð fram drög að nýrri umferðasamþykkt Fjarðabyggðar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar umferðasamþykkt með breytingum, ásamt umsögn til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar. En bæjarstjórn tók umferðasamþykkt til fyrri umræðu á 88. fundi sínum.
Lagt fram bréf, dagsett 5. desember 2011, frá Ásmundi Ásmundssyni, vegna gáms er staðsettur er norðan við Hafnargötu 6 Reyðarfirði. Þar er formlega kvartað yfir staðsetningu gáms, þar sem bréfritari vill meina að gámur sé staðsettur utan lóðar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að ræða við húseiganda um að gámurinn standi ekki þarna í framtíðinni, heldur að fundin verði önnur lausn fyrir hleðslugáma fyrirtækisins.