Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Mannvirkjastjóri kynnti innleiðingu á skipulögðum samgöngum í Fjarðabyggð en undirbúningur hefur staðið yfir í nokkurn tíma. Reiknað er með að skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð taki gildi í byrjun árs 2012.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fagnar þessum áfanga.
Á 31. fundi eigna,- skipulags- og umhverfisnefndar var samþykkt breyting á deiliskipulaginu Dalur 1, íþróttasvæði og leikskóli.
Á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 er svæði íþróttavallar og sundlaugar á Eskifirði skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota . Með breytingu á deiliskipulagi Dals 1 er innan svæðisins fyrirhugað er að staðsetja sjálfsafgreiðslu á eldsneyti sunnan við bílastæði sundlaugar. Þessi breyting kallar því á breytingu á aðalskipulagi.
Nefndin samþykkir að breyta Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 þannig að landnotkun verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði á umræddu svæði. Jafnframt samþykkir nefndin framlagða skipulagslýsingu.
Erindi dagsett 6.desember 2011 frá Kristínu Svanhvíti Hávarðsdóttir sem sækir um að byggja við Blómsturvelli 5 á Norðfirði. Viðbygging er 22,1 m2 og 64,1 m3 að stærð, teiknuð af Vali Sveinssyni.
Byggingin verður staðsett norðan við húsið og verður mikið niðurgrafin.
Viðbyggingin verður á hættusvæði B og að hluta í C.
Samkvæmt reglugerð 505/2000 19 gr. er einungis heimilt að reisa ný mannvirki þar sem ekki er búist við stöðugri viðveru fólks til búsetu eða til vinnu. Heimilt er að breyta íbúðar- og atvinnuhúsnæði þó þannig að heildaráhætta á viðkomandi svæði aukist ekki, t.d. með fjölgun íbúða.
Viðbygging er ætlað sem þvottahús.
Nefndin samþykkir framlagða umsókn og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfið þegar öll gögn liggja fyrir.
Framlagt bréf með reglum fyrir Rafveitu Reyðarfjarðar um hvernig staðið skuli að skömmtun raforku á veitusvæði Rafveitu Reyðarfjarðar ef til þess kæmi.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir framlagðar reglur og vísar þeim til bæjarráðs til staðfestingar, en leggur til að bætt verði inn ákvæði um að slökkt verði á götulýsingu komi til skömmtunar.
Lagður fram tölvupóstur frá Þresti Bjarnasyni fyrir hönd Bjarnasonar ehf um skilgreiningu á landnotkun og nýtingarmöguleikum á skemmu í Seljateigslandi. Bréfritari bendir á að allt frá byggingu hafi skemman verið notuð sem vörugeymsla á iðnaðarsvæði og allar breytingar á þeim skilgreiningum geti haft veruleg áhrif á tekjumöguleika húseigenda.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vill benda húseiganda á að svæðið hafi ekki verið skilgreint sem iðnaðarsvæði í aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 til 2027 og hafi ekki verið skilgreint sem slíkt í fyrra aðalskipulagi fyrir Reyðarfjörð. Þar af leiðandi breytti nefndin ekki skilgreiningu á svæðinu og felur mannvirkjastjóra að svara bréfritara.
Erindi frá Golfklúbbi Fjarðabyggðar dagsett 29. september 2011 um vinnuframlag vinnuskóla Fjarðabyggðar við vallarumhirðu yfir sumartímann, vísað frá fræðslu- og frístundanefnd. Fræðslu- og frístundanefnd hafði áður hafnað beiðni klúbbsins um uppbyggingarstyrk.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að skoða hvort að hægt verði að koma á móts við Golfklúbbinn í formi vinnuframlags og leggja hugmyndir fyrir nefndina.
Lagðar fram tillögur unnar af Verkís ehf og Landmótun ehf af varnargörðum í Nýjabæjarlæk ofan byggðarinnar á Fáskrúðsfirði <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndinni lýst vel á framlagðar tillögur og samþykkir að láta deiliskipuleggja svæðið í samræmi við þær.
Fyrir liggur beiðni frá KFF um að sveitarfélagið skoði hvort að hægt sé að lána íbúðir til íþróttafélaga ef íbúðir standa lausar og eru ekki í notkun. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að skoða hvort að hægt sé að finna flöt á þessu fyrirkomulagi, þannig að það sé skýrt og gegnsætt og leggja fyrir nefndina.