Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Anna Katrín starfsmaður framkvæmdasviðs sat þennan lið.
Kynntar tillögur að endurbótum og dagskrá vegna 40 ára afmælis Fólkvangsins í Neskaupstað, dagsett 24. febrúar 2012, unnar af starfsmönnum Fjarðabyggðar og Náttúrustofu Austurlands. Helstu hugmyndir eru bætt aðgengi að Páskahelli og uppsetning á nýju upplýsingaskilti við aðkomuna að fólkvanginum.
Nefndin fór yfir tillögurnar og samþykkir að haldið verði upp á afmæli fólkvangsins 16. júní 2012 eins og lagt er til í tillögum. Nefndin lagði til að sótt væri um styrk til umhverfisbóta og aðgengismála í sjóð hjá Ferðamálastofu, til smærri verkefna, en umsóknartími er til 12. mars nk.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Hólmanes dagsett 13.febrúar 2012 ásamt skýringaruppdráttum. Tillagan er unnin af Landmótun sf. Deiliskipulagstillagan er fyrir verndarsvæðið í Hólmanesi milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Meginmarkmið með tillögunni er að skilgreina aðkomu að fólkvangi og friðlandi, skilgreina þjónustusvæði og áningarstaði og bæta aðstöðu til útivistar á svæðinu í heild.
Nefndin samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar í auglýsingu.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 2. desember 2011 að breyta deiliskipulagi vöruflutningahafnar á Reyðarfirði. Auglýsingartími vegna breytinga á deiliskipulaginu er nú liðinn. Breytingar fólust í að skipulagssvæðið minnkar og einni lóð var bætt við. Auglýsingartími var frá 22. desember 2011 til 16 janúar 2012. Athugasemdafrestur var til sama tíma. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin vísar endanlegri afgreiðslu á breytingum deiliskipulagsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 2. desember 2011 að breyta deiliskipulagi Bakkagerðis 1 á Reyðarfirði. Auglýsingatími vegna breytinga á deiliskipulaginu er nú liðinn. Breytingar fólust í að raðhúsa- og parhúsalóðum við Brekkugerði er breytt í einbýlishúsalóðir, lóð fyrir spennistöð við Brekkugerði 15 er breytt í einbýlishúsalóð ásamt breytingum á lóðamörkum, nokkrum lóðum þar sem gert var ráð fyrir einnar hæðar húsum er breytt þannig að gert er ráð fyrir tveggja hæða húsum. Auglýsingartími var frá 22. desember 2011 til 16 janúar 2012. Athugasemdafrestur var til sama tíma. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin vísar endanlegri afgreiðslu á breytingum deiliskipulagsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 2. desember 2011 að breyta deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins á Kollaleiru. Auglýsingartími vegna breytinga á deiliskipulaginu er nú liðinn. Breytingar fólust í að skipulagssvæðið stækkar, Tjarnarvogur fellur út ásamt lóðum, nýjar lóðir eru búnar til þar sem svæðið stækkar, nokkrar lóðir eru felldar út, aðrar lóðir stækka og enn aðrar minnka. Auglýsingartími var frá 22. desember 2011 til 16 janúar 2012. Athugasemdafrestur var til sama tíma. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin vísar endanlegri afgreiðslu á breytingum deiliskipulagsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 15. desember 2012 að breyta deiliskipulaginu Melur 1 á Reyðarfirði. Auglýsingartími vegna breytinga á deiliskipulaginu er nú liðinn. Breytingar fólust í að íbúðafjöldi eykst þannig að á svæðinu verða 10 einbýlishús, 20 íbúðir í 10 parhúsum og 57 íbúðir í 15 raðhúsum. Auglýsingartími var frá 22. desember 2011 til 16 janúar 2012. Athugasemdafrestur var til sama tíma. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin vísar endanlegri afgreiðslu á breytingum deiliskipulagsins til bæjarstjórnar.
Lagður fram uppdráttur, dagsettur 10. mars 2009, sem sýnir afmörkun á svæði undir golfvöll, fyrir Golfklúbb Fjarðabyggðar, Reyðarfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að klúbburinn fái landið til afnota og að gerður verði samningur um það til 50 ára. Einnig samþykkir nefndin að svæðið verði deiliskipulagt í samræmi við uppdrátt klúbbsins.
Lagt fram tilboð lóðarhafa, dagsett 21. febrúar 2012, að lausn málsins. Einnig lagt fram lögfræðiálit lóðarhafa, dagsett 11.janúar 2012, unnið af Ólafi G.Gústafssyni, hrl. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir framvindu málsins og felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram samkvæmt fyrri áherslum nefndarinnar.
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um atvinnuátakið vinnandi vegur og óskað er eftir að sveitarfélögin skapi störf eða starfstengd úrræði innan verkefnisins. Reiknað er með að sveitarfélög skapi um helming starfa í verkefnið. Málið var áður tekið fyrir á 280. fundi bæjarráðs og þar vísað til atvinnu- og menningarnefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir málið og felur mannvirkjastjóra að ræða við Runólf Ágústson, verefnistjóra verkefnisins með aðkomu Fjarðabyggðar. Gert er ráð fyrir að Fjarðabyggð útvegi 4 störf í verkefnið samkvæmt fyrirliggjandi drögum.
Lagður fram listi fyrir grunna í hverfum Fjarðabyggðar þar sem engar framkvæmdir hafa verið lengi. Byggingarfulltrúi leggur til að farið verði í að taka aftur til Fjarðabyggð þær lóðir sem eru á listanum og engar framkvæmdir hafa verið lengur en tvö ár. Það væri gert á grundvelli heimildar samkvæmt gr. 2.4.7 í byggingarreglugerð 112/2012.
Nefndin samþykkir tillöguna og felur byggingarfulltrúa að fylgja málinu eftir.
Lagðar fram til umsagnar tillögur til þingsályktunar um fjögurra ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2014, mál 343 og tillögur til þingsáætlunar um tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2022, mál 342. Málið var einnig tekið fyrir á 36. fundi nefndarinnar en var þá afgreiðslu frestað.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin skilar ekki umsögn.
Eigna- og skipulagsfulltrúi kynnti stöðu leiguíbúða í eigu sveitarfélagsins.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 13. febrúar 2012, frá Jens G. Helgasyni, fyrir hönd Eskju hf. Þar er farið fram á að Eskja fái forleigurétt á lóð neðan við fiskimjölsverksmiðjuna á Eskifirði, um er að ræða lóðina Leirukrókur 11.
Nefndin samþykkir að Eskja fái forleigurétt á lóðinni, þannig að ef sótt er um lóðina skuli Eskja annaðhvort að leigja hana eða ekki. Nefndin felur mannvirkjastjóra að ganga frá samningi þess efnis milli Fjarðabyggðar og Eskju.
Fyrirspurn vegna mögulegrar notkunar íþróttafélaga í Fjarðabyggð á lausum og ónotuðum leiguíbúðum Fjarðabyggðar. Framhald frá síðasta fundi nefndarinnar. Lagðar fram reglur vegna útleigu leiguíbúða Fjarðabyggðar til frjálsra félagasamtaka í Fjarðabyggð ásamt almennum reglum um úthlutun leiguíbúða Fjarðabyggðar.
Nefndin samþykkir framlagðar reglur með þeim breytingum sem ræddar voru og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Málið áður á dagskrá 36. fundar þann 13. febrúar 2012. Mannvirkjastjóri lagði fram drög að umsögn Fjarðabyggðar, þar sem koma fram megináherslur sem sveitarfélagið hefur lagt fram. Endanleg umsögn Fjarðabyggðar verður samþykkt í bæjarstjórn 1. mars næstkomandi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir framlögð gögn og felur mannvirkjastjóra að klára þau fyrir bæjarstjórn.
Lagður fram tölvupóstur frá Viðari J. Ingólfssyni dags. 20. febrúar 2012 þar sem óskað eftir að nýta fundarsalinn á efri hæð í Félagslundi undir hljómsveitaræfingar.
Nefndin frestar afgreiðslu meðan fyrirkomulag með umsjón félagsheimilanna verður tekið til skoðunar.
Lagt fram bréf, dagsett 24. febrúar 2012, frá Náttúrustofu Austurlands, vegna útbreiðslu ágengra gróðurtegunda í Fjarðabyggð. Nefndin hafði áður tekið fyrir bréf sama efnis á 31. fundi sínum og óskaði eftir athugasemdum og ábendingum Náttúrustofu Austurlands við drögum að verkáætlun nefndarinnar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin þakkar Náttúrustofunni fyrir athugasemdir við verkáætlun og framkomnar tillögur. Nefndin felur umhverfisstjóra að skoða tillögur Náttúrustofunnar og koma með tillögur að næstu skrefum fyrir nefndina.
Lagt fram kauptilboð, dagsett 23. febrúar 2012, frá Halldóri Friðriki Ágústssyni í eignina Nesbakki 5-7, íbúð merkt 02 0102, fastanúmer 216-9511. Kauptilboð bjóðanda er 7.5 milljónir króna, en fasteignarmat eignarhlutans er 6.870 þúsund og þar af lóðarmat 741 þúsund. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir tilboðið með fyrirvara um samþykki bæjarráðs og fyrirvara um afhendingartíma, en núverandi leigjandi hefur 6 mánaða uppsagnarfrest og hefur rétt á að vera í íbúðinni til loka ágústmánaðar 2012, nema um annað verði samið.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 27. febrúar, frá skiptastjóra HK-húseigna sem eru eigendur grunnanna við Skólaveg 98-112. Þar kemur fram að þrotabúið sé tilbúið að láta Fjarðabyggð fá umrædda grunna til eignar, einnig eru veðhafar tilbúnir að falla frá kröfum sínum í eignirnar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að Fjarðabyggð taki yfir umræddar eignir og felur mannvirkjastjóra að ganga frá samkomulagi þess efnis.
Framhald frá síðasta fundi nefndarinnar þar sem lagður var fram tölvupóstur frá Einari Birgi Kristjánssyni dags. 7. febrúar 2012 þar sem óskað er eftir lóð á Eskifirði til skemmri tíma til að geyma vinnuvélar o.fl. Lögð fram drög eigna- og skipulagsfulltrúa að lóðaleigusamningi um geymslulóð.
Nefndin samþykkir framlagðan samning með umræddum breytingum og felur eigna- og skipulagsfulltrúa að ganga frá samningi við umsækjanda.