Fara í efni

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

4. fundur
20. september 2010 kl. 16:30 - 18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Kynning á innleiðingu "grænu tunnunnar"
Málsnúmer 1009101
Formaður bauð þá  Auðunn Pálsson og Birgir Kristjánsson frá Íslenska Gámafélaginu velkomna á fundinn. Unnur Ása Atladóttir umhverfisfulltrúi sat þennan lið líka.  Þeir kynntu fyrir nefndarmönnum verkefnið ?Græna tunnan?, hvernig innleiðing verkefnisins hefur gengið í Fjarðabyggð og hver  árangur verkefnisins hefur verið fyrstu mánuðina.  Auðunn og Birgir svöruðu einnig fyrirspurnum nefndarmanna um verkefnið.
2.
Tillaga að breytingum á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 -2028
Málsnúmer 1009089
Lagðar fram tillögum að breytingum á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 til 2028 með beiðni um umsögn nefndarinnar. Nefndin gerir ekki athugasemdir við framlagðar tillögur og felur skipulagsfulltrúa að svara erindinu.
3.
Gerð deiliskipulags fyrir sumarbústaði.
Málsnúmer 2004-08-20-1043
Lagður fram deiliskipulagsuppdráttur ásamt skilmálum, málið áður tekið fyrir á 3. fundi nefndarinnar. Búið er að gera þær breytingar sem nefndin óskaði eftir á síðasta fundi. Nefndin samþykkir skipulagið og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa skipulagið eftir að undanþágur frá umhverfisráðuneytinu liggja fyrir.
4.
Aðgengismál við sundlaug Norðfjarðar
Málsnúmer 0906071
Lagt fram bréf, dagsett 9. september 2010 frá Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála. Óskar nefndin eftir því að fá send öll gögn er málið varðar vegna kæru fyrir 5. október 2010. En fyrirliggur kæra frá Pétri G. Óskarssyni vegna aðgengismála við sundlaugina á Norðfirði.  Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að svara úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.
5.
Gilsbakkalækur, grenndarkynning
Málsnúmer 1009014
Grenndarkynningu, dagsett  8. september 2010 er lokið með samþykki allra hagsmunaraðila. Nefndin felur mannvirkjastjóra að halda áfram með málið.
6.
750 Skólavegur 36a-Umsókn um breytingu á lóð
Málsnúmer 1007139
Lagt fram bréf, dagsett 5. júlí 2010 frá Óðinn Loga Þórissyni og Ástu k. Guðmundsdóttir. Fara þau fram á breytingu á aðrein að lóðinni við Skólaveg 36a, 750 Fjarðabyggð þannig að hægt verði að útbúa bílastæði við húsið. Nefndin felur mannvirkjastjóra að ræða við húseigendur um útfærslu á stæði neðan við húsið og koma með nánari útfærslu á fund nefndarinnar og þá verður tekið afstaða með svæðið ofan við húsið.
7.
Merking safnahússins í Norðfirði
Málsnúmer 1007086

Erindi frá forstöðumanni Safnastofnunar Fjarðabyggðar þar sem leitað er eftir heimild eigna-,skipulags- og umhverfisnefnd til að merkja safnahúsið í Norðfirði. Nefndin tók erindið fyrir á síðast fundi sínum og óskaði þá eftir fleiri tillögum og þá meira í samræmi við aðrar stofnanna merkingar í Fjarðabyggð. Lagðar fram nýjar tillögur af merkingum safnahússins. Nefndin samþykkir framlagða tillögu og felur mannvirkjastjóra að útfæra tillögu af austurgafli yfir á vesturgafl hússins líka. Þar sem merking er lóðrétt með merki Fjarðabyggðar inn í ? Safnahúsið?.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Gunnar Karlsson yfirgaf fundinn.Gunnar Karlsson yfirgaf fundinn.
8.
Ósk um uppsetingu á skilti
Málsnúmer 1009051
Erindi frá Andrési Elíssyni, dagsett 29. júlí 2010 þar sem sótt er um leyfi til að setja upp skilti vegna Hótelíbúða, Rafmagnsverkstæðis og Hafnarbúðar, auk annarrar þjónustu sem kynni að vera á svæðinu. Staðsetningarnar sem sótt er um, eru við Framnes ofan Mjóeyrarhafnar, við sundlaugina á Eskifirði vestan Norðfjarðarvegar og við Strandgötu 24 á Eskifirði. Nefndin hafnar erindinu en bendir umsækjanda á þann möguleika að koma skilti fyrir innan sinnar lóðar.
9.
Beiðni um framkvæmdir við hesthúsabyggð á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1009091

Lagt fram bréf. dagsett 9. september 2010 frá Hestamannafélaginu Goða, Fáskrúðsfirði. En í bréfinu er farið þess á leit við Fjarðabyggð að lagt verði nýtt rafmagn, vatnskerfi og lýsing í hverfið og að því. Nefndin bendir Hestamannafélaginu á að sækja þurfi um rafmagn til Rarik og bendir félaginu á að sækja um nýja vatnsheimtaug sem væri þá hægt að leggja um leið og rafmagnið færi í hverfið. Sveitarfélagið sér ekki um lýsingu í dreifbýli og mun þar afleiðandi ekki setja upp lýsingu að hesthúsahverfinu. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

10.
Verðkönnun á rifi og urðun SÚN-bryggjunnar á Norðfirði
Málsnúmer 1009007
Lögð fram umsókn frá Hafnarsjóð Fjarðabyggðar, dagsett 15. september 2010 þar sem óskað er eftir framkvæmdarleyfi til að rífa SÚN-bryggjuna á Norðfirði. Meðfylgjandi er loft mynd sem sýnir bryggjuna og staðsetningu á úrgangi úrbryggjunni sem notaður verður í landmótun, ásamt afriti af umsókn um starfsleyfi til HAUST. Nefndin samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfið.
11.
Samþykkt um katta-hunda- og annara gæludýra
Málsnúmer 1005016
Lagt fram afrit af bréfum, dagsett 13. september 2010 til Heilbrigðisnefndar Austurlands frá Umhverfisráðuneytinu. Í bréfunum kemur fram samþykkt ráðuneytisins annarsvegar á samþykkt um hundahald í Seyðisfjarðarkaupsstað, á Fljótsdalshéraði, í Fjarðabyggð og í Vopnafjarðarhreppi og hinsvegar á samþykkt um kattahald og annarra dýra en hunda í sömu sveitarfélögum.
12.
Endurnýjun á aðveitulögn Rafveitu Reyðarfjarðar
Málsnúmer 1009054
Vegna bilunar á stofnlögn Rafveitu Reyðarfjarðar, þá óskað eftir því við nefndina að nýta fjárheimildir í fjárfestingaráætlun í kaup á nýjum rörum í stofnæðina. Gert var ráð fyrir að nýta fjárheilmildir sem áætlað var að nota í viðgerðir á háspennukerfinu, en lagt er til að því verði frestað til næsta árs. Nefndin samþykkir tilfærsluna.
13.
Egilsbúð, klæðning utanhúss
Málsnúmer 1009129
Lagðar fram nýjar byggingarnefndarteikningar af Egilsbúð. En gert er ráð fyrir að álklæða húsnæðið í nokkrum áföngum. Jafnframt er sótt um framkvæmdarleyfi fyrir 1. áfanga, sem er að klæða salinn. Nefndin samþykkir erindið og vísar því til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.
14.
Franski spítalinn við Hafnarnes
Málsnúmer 0910066
Lagt fram kynningar minnisblað, dagsett 14. september 2010 vegna afsals gamla læknishússins Fáskrúðsfirði til Minjanefndar. Málið áður afgreitt í bæjarráði.
15.
Endurskoðun á umferðasamþykkt
Málsnúmer 1009017
Málið áður til umræðu á 3. fundi nefndarinnar, afgreiðslu frestað.
16.
Samningur um veghald þjóðvega í þéttbýli 2010
Málsnúmer 1009075
Lagðir fram til kynningar samningar við Vegagerðina vegna umsjónar með þjóðvegum í þéttbýli í Fjarðabyggð fyrir árið 2010.
17.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2011-Eigna-skipulags- og umhverfinefnd
Málsnúmer 1009131

Lagðir fram fjárhagsrammar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, en bæjarráð samþykkti á fundi sínum í 14. september 2010 fjárhagsramma nefndarinnar fyrir fjárhagsárið 2011. Eins og við gerð fjárhagsætlunar síðustu tveggja ára ber úthlutun ársins merki ríkjandi efnahagsástands. Áætlaðar skatttekjur fyrir árið 2011 veita ekki svigrúm til útgjaldahækkana. Fjárhagsrömmum er úthlutað á grunni fjárhagsáætlunar 2010.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Gerðar hafa verið leiðréttingar vegna launaþróunar og reiknaðrar húsaleigu. Breytingar á launakostnaði sem færðar hafa verið inn eru 2% hækkun launaliða í samræmi við spá fjármálasviðs um þróun þess kostnaðar milli ára. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að bregðast verði við kostnaðarhækkunum með sérstökum ákvörðunum og aðgerðum til að lækka útgjöld innan málaflokkanna. Haldið verður áfram að leita leiða til hagræðingar.Taki bæjarráð í fjárhagsáætlunarferlinu skýrt afmarkaða ákvörðun um að leggja af eða draga úr tilteknum rekstri eða þjónustu mun fjárhagsrammi lækka í samræmi við.

 

Samkvæmt fjárhagsáætlunarferlinu ber nefndum að fela  sviðstjórum undirbúning starfsáætlunar og tillagna í frumvarp að fjárhagsáætlun í samræmi við stefnukort og forgangsröðun. Til hliðsjónar er meðfylgjandi skýrsla starfshóps um endurskoðun á ferli og framsetningu fjárhagsáætlunar hjá Fjarðabyggð sem unnin var á árinu 2007 og uppfærð á yfirstandandi ári.

 

Fjárhagsrammar nefndarinnar eru eftirfarandi:

  • til hreinlætismála fyrir árið 2011 er 2.867 þús. kr.

  • til leik- og íþróttavalla fyrir árið 2011 er 11.553 þús. kr.

  • til vinnuskóla fyrir árið 2011 er 26.453 þús. kr.

  • til skipulags- og byggingarmála fyrir árið 2011 er 48.273 þús. kr.

  • til umferðar- og samgöngumála fyrir árið 2011 er 194.725 þús. kr.

  • til umhverfismála fyrir árið 2011 er 92.137 þús. kr.

  • til landbúnaðarmála og tjaldsvæða fyrir árið 2011 er 8.316 þús. kr.

Nefndin felur  sviðstjóra undirbúning starfsáætlunar og tillagna í frumvarp að fjárhagsáætlun í samræmi við stefnukort og forgangsröðun til að leggja fyrir nefndina.
18.
Fjárhagsáætlun 2011 - Fjárfestingaáætlun
Málsnúmer 1009105
Nefndin fór yfir fjárfestingaráætlun ársins og þær framkvæmdir sem frestað var við gerð síðustu áætlunar. Drög að áætlun verður lögð fram til umræðu fyrir næsta fund nefndarinnar.  
19.
Landbúnaðarnefnd - 2
Málsnúmer 1009013F

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðfestir fundargerð landbúnaðarnefndar.