Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 2. desember 2011 að breyta deiliskipulaginu Dalur 1 - íþróttasvæði og leikskóli á Eskifirði. Auglýsingatími vegna breytinga á deiliskipulaginu er liðinn. Breytingar felast í að áður grenndarkynntar breytingar á opnun lækjar innst á skipulagssvæðinu ásamt staðsetning á nýju vallarhúsi eru færðar inn á skipulagsuppdráttinn. Auk þessa er gert ráð fyrir sundlaug, eldsneytisafgreiðslu, stúku, stækkun æfingasvæðis og nýjum bílastæðum sunnan við aðkomu að sundlaug Eskifjarðar. Auglýsingartími var frá 21. mars 2012 til 2. maí 2012. Athugasemdafrestur var til sama tíma.
Engar athugasemdir bárust.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar endanlegri afgreiðslu á breytingum deiliskipulagsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 5. janúar 2012 að breyta Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna breyttrar landnotkunar á reit O1 á þéttbýlisuppdrætti fyrir Eskifjörð. Auglýsingatími vegna breytinga á aðalskipulaginu er liðinn. Hluta svæðisins var breytt úr opnu svæði til almennra nota, í svæði fyrir verslun og þjónustu. Auglýsingartími var frá 21. mars 2012 til 2. maí 2012. Athugasemdafrestur var til sama tíma. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin vísar endanlegri afgreiðslu á breytingum á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 til bæjarstjórnar.
Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra, dagsett 8. maí 2012, um aukafjárveitingu fyrir Vatnsveitu Fjarðabyggðar á Fáskrúðsfirði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.
Lagður fram uppdráttur með fyrirhugaðri lagnaleið stofnlagnar vatnsveitu Fjarðabyggðar á Fáskrúðsfirði ofan byggðarinnar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur framkvæmdasviði að vinna útfærslu frekar og leggja hana að því loknu fyrir nefndina til samþykktar.
Fundagerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 3.febrúar og 27.apríl s.l. lagðar fram til kynningar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin tekur undir með stjórn Náttúrustofu Austurlands að tekjum að hreindýraleyfum sé ekki skipt sanngjarnt á milli Umhverfisstofnunar og Náttúrustofu. Nefndin telur eðlilegt að öll umsýsla tengd veru hreindýra á Austurlandi sé sinnt af starfsmönnum staðsettum á Austurlandi og hvetur bæjarstjórn til að taka málið upp á sína arma og fylgja því fast eftir.
Lagður fram uppfærður forkaupslisti Fjarðabyggðar 2012, með áherslum frá fundi bæjarráðs. Listinn var áður tekinn fyrir á 41. fundi nefndarinnar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin fór yfir breytingar á listanum, samþykkir hann fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lagt fram minnisblað, dagsett 10. maí 2012, frá framkvæmdasviði vegna göngu og reiðleiða ásamt sameiginlegum göngu- og reiðleiðum í nágrenni hesthúsabyggðarinnar í Fáskrúðsfirði. Einnig lagðar fram aðrar tillögur til að efla aðstöðu hestamanna í Fáskrúðsfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin frestar afgreiðslu en felur framkvæmdasviði að koma með tillögu fyrir næsta fund nefndarinnar í samræmi við umræður á fundinum.
Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs, dagsett 14. maí 2012, um Nesskóla og Tónskóla Norðfjarðar þar sem farið er yfir viðhaldsáætlun fasteignarinnar ásamt þeim viðhaldsverkum sem þar hafa verið unnin að undanförnu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur framkvæmdasviði að vinna málið áfram í samræmi við minnisblað.
Lagt fram bréf frá Vegagerðinni, dagsett 4. maí 2012, vegna viðhalds girðinga meðfram vegum í sveitarfélaginu. Í bréfinu er óskað eftir að sveitarfélagið hlutist til um að viðhaldi girðinga meðfram vegum í sveitarfélaginu verið lokið fyrir 30. júní 2012.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin vísar bréfinu til afgreiðslu landbúnaðarnefndar.