Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lögð fram umsókn frá Eimskip Ísland ehf um breytingu breytingu á innri skipulagi Hrauns 4 á Reyðarfirði samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Nefndin líst vel á framlagða tillögu og felur byggingarfulltrúa að afgreiða leyfið.
Grenndarkynning vegna viðbyggingar við Öldugata 5 er lokið. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi.
Vegna fyrirhugaðra Norðfjarðarganga og nálægðar veglínu, brúar, undirganga og gangamuna við núverandi íbúðabyggð er nauðsynlegt að deiliskipuleggja svæðið í botni Eskifjarðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að láta vinna deiliskipulag í botni Eskifjarðar. Deiliskipulagið nái til svæðis umhverfis gangamunna fyrirhugaðra Norðfjarðarganga út að deiliskipulögðum svæðum Dals 1, Dals 2 og Dalbrautar 1.
Framlögð umsókn um stækkun á lóðinni nr. 3 við Fögruhlíð á Eskifirði, móttekin 31.ágúst 2012 frá Þorsteini Kristjánssyni. Sótt er um að stækka lóðina til norðurs vegna fyrirhugaðrar byggingar á geymsluhúsnæði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir stækkun lóðar og felur eigna- og skipulagsfulltrúa að útfæra ný lóðarmörk í samráði við umsækjanda. Jafnframt felur nefndin byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingarleyfi. Grenndarkynning nái til Fögruhlíðar 4 og 9.
Lögð fram umsókn frá Eskju hf um byggingu starfmannahús við Strandgötu 2 á Eskifirði. Stærð hússins verður 346,6 m2 og 1213,9 m3. Hönnuður er Sigurjón Hauksson frá Verkfræðistofu Austurlands.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og felur byggingarfulltrúa að klára málið.
Vegna fyrirhugaðrar stækkunar á Norðfjarðarhöfn er nauðsynlegt að fara í deiliskipulagsgerð á hafnar- og iðnaðarsvæðinu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að láta vinna deiliskipulag fiskihafnarsvæðisins á Norðfirði vegna fyrirhugaðrar stækkunar hafnarinnar. Deiliskipulagið nái til hafnarsvæðisins ásamt mannvirkjum við svæðið.
Deiliskipulag Hlíðargötu 58 og nágrennis. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti 21. júní 2012 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Hlíðargötu 58 og nágrenni á Fáskrúðsfirði ásamt umhverfisskýrslu. Deiliskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslunni var auglýst frá 5. júlí til og með 16. ágúst 2012. Athugsemdafrestur var til sama tíma. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin samþykkir deiliskipulagið ásamt umhverfisskýrslu fyrir sitt leyti og vísar því til endanlegrar afgreiðslu til bæjarstjórnar
Grenndarkynningu vegna lagnaleiðar fyrirhugaðrar vatnsveitu ásamt göngustíg ofan byggðarinnar á Fáskrúðsfirði er lokið. Athugasemdarfrestur var frá 18. júlí 2012 til 15. ágúst 2012. Tvær athugasemdir bárust frá þremur heimilum. Bréf Eyþórs Friðbergssonar, Hlíðargötu 4 og Óskars Þórs Guðmundssonar, Skólabrekku 9, ódagsett. Gerð er athugasemd við að lagnaleið mun liggja talsvert nærri húsum bréfritara og því verði breyting á því næði sem þeir hafi haft ofan við húsin. Eins er bent á að lagnaleið og göngustígur sé þvert í gegnum nokkra trjálundi. Tölvupóstur Harðar Sigmundssonar og Öldu A. Guðjónsdóttur, Hlíðargötu 2, dags. 29. júlí 2012. Gerð er athugasemd við að lagnaleið sé of neðarlega en það muni hafa í för með sér óþarfa rask og hættu á stíflu í læk ef yrði settur hólkur í hann vegna gönguleiðar. Bendir bréfritari á að nokkur krapaflóð hafi orðið í læknum á undanförnum 20 árum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin telur að fjarlægð frá húsum verði ekki vandamál, út frá fenginni reynslu í öðrum hverfum Fjarðabyggðar þar sem gerðir hafa verið sambærilegir göngustígar. Jafnframt felur nefndin sviðinu að skoða ábendingu varðandi hættu á krapaflóði í læk við endann á Hlíðargötu. Nefndin felur eigna- og skipulagsfulltrúa að svara bréfriturum.
Lögð fram frumhönnun áningar- og útsýnisstaðs við Söxu dags. 28. ágúst 2012, unnin af Landmótun ehf.
Nefndinni líst vel á framlögð gögn og er sammála um að láta vinna deiliskipulag af svæðinu í samræmi við þau. Jafnframt felur nefndin eigna- og skipulagsfulltrúa að kynna hugmyndina fyrir landeigendum og leita eftir samþykki þeirra.
Bæjarráð samþykkti á fundi 29. ágúst 2012 fjárhagsramma til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar fyrir fjárhagsárið 2013. Fjárhagsrömmum er úthlutað á grunni fjárhagsáætlunar 2012 en tekið er tillit til áhrifa nýrra kjarasamninga á laun- og launatengd gjöld. Reynist endanleg launaáætlun (mannahaldsáætlanir stofnana) lægri en gert er ráð fyrir í fjárhagsramma nú, miðað við gefnar forsendur, mun fjárhagsramminn lækka í samræmi við það. Í forsendum er gert ráð fyrir 2,5% hækkun á vöru- og þjónustukaupum og 5% hækkun á þjónustugjaldskrám stofnana. Nefndir geta eðlilega komið með tillögur til bæjarráðs um að breyting á gjaldskrám verði önnur en miðað er hér við, sé það fest í stefnumið og svigrúm sé til staðar innan fjárhagsrammans.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Skal nefndin sérstaklega greina yfirvinnu og kanna með hvaða hætti hægt er að lækka hana. Verði það niðurstaða að lækka eigi yfirvinnu leiðir það til lækkunar á fjárhagsramma.
Að öðru leyti er gert ráð fyrir að bregðast verði við kostnaðarhækkunum með sérstökum ákvörðunum og aðgerðum til að lækka útgjöld innan málaflokkanna. Haldið verður áfram að leita leiða til hagræðingar. Taki bæjarráð í fjárhagsáætlunarferlinu skýrt afmarkaða ákvörðun um að leggja af eða draga úr tilteknum rekstri eða þjónustu mun fjárhagsrammi lækka í samræmi við það. Fjárhagsáætlun sem skilað er af hálfu nefndar og sviðsstjóra til fjármálasviðs skal vera innan úthlutaðs ramma.
Samkvæmt fjárhagsáætlunarferlinu ber nefndum að fela sviðstjórum undirbúning starfsáætlunar og tillagna í frumvarp að fjárhagsáætlun í samræmi við stefnukort og forgangsröðun.
Fjárhagsrammar nefndarinnar fyrir árið 2013 eru eftirfarandi:
ü til leik- og íþróttavalla 10.359 þús. kr.
ü til vinnuskóla 31.358 þús. kr.
ü til bruna- og almannavarna 97.792 þús. kr.
ü til hreinlætismála 4.498 þús. kr.
ü til skipulags- og byggingarmála 60.884 þús. kr.
ü til umferðar- og samgöngumála 201.411 þús. kr.
ü til umhverfismála 72.709 þús. kr.
ü til landbúnaðarmála og tjaldsvæða 12.669 þús. kr.
Þeim tilmælum er beint til eigna, skipulags og umhverfisnefndar að leita allra leiða til frekari hagræðingar í málaflokki sínum og að ítrasta aðhalds verði gætt eins og áður í rekstri á komandi ári. Við ákvörðun um hagræðingu skal ávallt meta áhrif á þjónustustig.
Nefndin felur sviðsstjóra undirbúning starfs- og fjárhagsáætlunar í samræmi við stefnukort og forgangsröðun nefndarinnar.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 31. ágúst 2012, frá Guðjóni Bragasyni fyrir hönd Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna B-gatnagerðargjalda. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur sviðstjóra að skoða málið og senda þá athugasemdir þurfi þess.
Fyrirspurn frá Hrefnu Arnardóttur er varðar byggingarleyfi fyrir hús til gistingar á jörðinni Óseyri á Stöðvarfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða staðsetningu fyrir gistiheimili en gera þarf deiliskipulag fyrir svæðið eða sækja um meðmæli til skipulagsstofnunar. Til að fá byggingarleyfi þarf fyrirhuguð bygging að uppfylla kröfur byggingarreglugerð 112/2012 eins og aðrar nýbyggingar. Nefndin er tilbúin að veita stöðuleyfi á meðan deiliskipulag er í vinnslu en mest til eins árs.
Lögð fram umsókn frá Adrian Frey Rodriguez um úthlutun á svæði fyrir ofan Borgargerði á Stöðvarfirði. Svæðið er hugsað fyrir sjálfbært samkomuskýli sem er unnið í samvinnu við Nýsköpunarsjóð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur eigna- og skipulagsfulltrúa að finna svæði sem hentar. Ekki verði gefið út byggingarleyfi en tímabundið stöðuleyfi verði veitt á meðan á tilrauninni stendur.
Lögð fram til kynningar drög að umhverfisskýrslu dags. 20. ágúst 2012. Skipulagsstofnun hefur með aðstoð VSO Ráðgjafar tekið saman drög að umhverfisskýrslu í samræmi við lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Lagt fram bréf, dagsett 24. ágúst 2012, frá Hilmari Sigurjónssyni fyrir hönd Húsfélagsins Strandgötu 64, Eskifirði, vegna lóðarsamnings.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur eigna- og skipulagsfulltrúa að ganga frá lóðarleigusamningi við húsfélagið, sem byggður er á grunni aðaluppdráttar, dagsettur 14. febrúar 2005, unnin af Birni Kristleifssyni arkitekt. Tryggt verður aðgengi að Strandgötu 68, með kvöð á lóðarleigusamningi, eins og fram kemur á afstöðumynd aðaluppdráttar.
Lagt fram bréf Unnar Ásu Atladóttur fyrir hönd blakdeildar Þróttar dags. 19. ágúst 2012 þar sem þess er krafist að lýsingu í íþróttahúsinu á Norðfirði verði komið í viðunandi horf fyrir fyrsta heimaleik Þróttar í haust.
Nefndin felur sviðinu að fara í nauðsynlegar úrbætur með forstöðumanni íþróttamannvirkja á Norðfirði.
Lagt fram bréf, dagsett 21. ágúst 2012, frá Vegagerðinni vegna niðurfellingar vega af vegaskrá. Samkvæmt bréfinu þá falla hluti af núverandi þjóðvegum í Fjarðabyggð ekki undir þá skilgreiningu, en það eru hluti Helgustaðarvegar, Eskifirði, hluti Norðfjarðarvegar, Norðfirði og Búðargata, Reyðarfirði. Þá mun Norðfjarðarvegur um Reyðarfjörð færast á hafnarsvæðið (hjáleið). Samkvæmt þessu þá mun Vegagerðin hætta að greiða fyrir viðhald og þjónustu á umræddum vegum frá og með 1. janúar 2013. Er sveitarfélaginu gefinn kostur á að koma með athugasemdir við þessa ákvörðun fyrir 1. desember nk.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að fara yfir málið og koma með tillögu að svörum fyrir nefndina, en taka verður tillit til þessara breytinga við gerð fjárhagsáætlunar.