Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagður fram tölvupóstur Auðar Svanhvítar Sigurðardóttur og Sigríðar Hrundar Símonardóttur dags. 26 september 2012 þar sem BSc verkefni um franska bæinn Fáskrúðsfjörð, sem þær unnu í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, er kynnt.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin þakkar fyrir gott innlegg í umræðuna um franska bæinn og mun skoða mögulegt samstarf við bréfritara í framtíðinni.
Lögð fram umhverfisskýrsla landsskipulagsstefnu 2013-2024 dags. 24. september 2012 ásamt landsskipulagsstefnu 2013-2024 dags. 24. september 2012. Í samræmi við 6. mgr. 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 er óskað eftir umsögn um tillögu að landsskipulagsstefnu 2013 - 2024 og umhverfisskýrslu. Tillagan verður lögð fyrir Alþingi til þingsályktunar en hún varðar skipulagsmál á miðhálendi Íslands, búsetumynstur og dreifingu byggðar og skipulag á haf- og strandsvæðum.
Nefndin frestar afgreiðslu og mun taka þetta fyrir aftur á fundi sínum í nóvember.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.
Lagt fram bréf dags. 3. október 2012 frá Haraldi Þórarinssyni fyrir hönd Landssambands hestamannafélaga þar sem óskað er eftir 100.000 kr fjárstyrk á ári næstu fjögur árin til að fjármagna skráningu og til að koma öllum reiðleiðum í sveitarfélaginu.á aðgengilegt form <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin frestar afgreiðslu og vill fá upplýsingar um hvaða sveitarfélög eru í þessu samstarfi.
Lagður fram tölvupóstur dags. 12. október 2012 frá Umhverfisstofnun þar sem minnt er á ársfund Umhverfisstofnunar og Náttúrverndarnefnda sveitarfélaga 2012 sem haldinn verður í Miðgarði í Skagafirði þriðjudaginn 13. nóvember næstkomandi.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin leggur til að fulltrúi Fjarðabyggðar mæti á fundinn.
Lagt fram til kynningar bréf Ásmundar Ásmundssonar dags. 18. september 2012 þar sem spurst er fyrir um eftirlit með magni á dekkum á athafnarsvæði Hringrásar á Reyðarfirði og hvort rýmingaráætlun sé til fyrir Reyðarfjörð og hvort hún hafi þá verið kynnt íbúum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Erindinu vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá bæjarráði til frekari umfjöllunar og kynningar. Einnig lögð fram umsögn mannvirkjastjóra til bæjarráðs, dagsett 14. október 2012 um sama mál.
Nefndin tekur undir það sem kemur fram í umsögn og leggur til að Almannvarnarnefnd taki málið fyrir á næsta fundi sínum, þ.e. hvort að þörf sé á heildstæðri viðbragðsáætlun fyrir Fjarðabyggð.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dags. 17. október 2012 frá Hákoni Hanssyni hjá Heilbrigðiseftirliti Austurlands með samanburði á niðurstöðum úr sýnatökum úr Vatnsveitu Fjarðabyggðar á Fáskrúðsfirði við leyfileg hámörk, um er að ræða nýja borholu. Öll mæld gildi reyndust langt undir leyfilegum hámörkum, oft er sú eining sem mælist aðeins einn hundraðasti af því sem má vera að hámarki og eru gæði vatns Vatnsveitu Fjarðabyggðar á Fáskrúðsfirði því óaðfinnanleg og svo hefur raunar verið mjög lengi. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lögð fram umsókn frá Auðbirni Má Guðmundssyni, Lambeyrarbraut 10, 735 Eskifirði um byggingarlóð fyrir gripahús að Kolli, 730 Reyðarfirði dags. 18. október 2012.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.