Fara í efni

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

5. fundur
4. október 2010 kl. 16:30 - 18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Húsakönnun
Málsnúmer 0906087

Formaður bauð þær Guðlaug Erna Jónsdóttir og Steinunni Guðmundsdóttir frá Blátt áfram ehf. velkomna á fundinn. Guðlaug kynnti og lýsti verkefninu ?Bæjar- og húsakönnun í Fjarðabyggð? fyrir nefndarmönnum og gerði grein fyrir því hvar það væri statt. En verkefnið er kostað af húsafriðunarnefnd. Nefndin þakkaði fyrir góða kynningu og fagnar því að verkefnið sé komið vel á stað.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 
Árni Steinar umhverfisstjóri sat þennan lið.
2.
Almenningssamgöngur - Kynning á Evrópusambandsverkefni
Málsnúmer 1004103

Formaður bauð Ingigerði Erlingsdóttir verkefnisstjóra hjá Þróunarfélagi Austurlands velkomna á fundinn. Ingigerður fór yfir verkefnið ?RTS almenningssamgöngur? og dreifði til nefndarmanna áfanga skýrslu sem var að koma út. Málið rætt. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Nefndin leggur til við bæjarráð að farið verði í viðræður við Vegagerðina um að sveitarfélagið taki yfir sérleyfið, með það í huga að endurskipuleggja almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins. Jafnframt er lagt til að stofnaður verði samráðshópur hagsmunaraðila til að vinna að verkefninu með sveitarfélaginu og Þróunarfélagi Austurlands.

 

Árni Steinar umhverfisstjóri sat þennan lið.
3.
Aðalfundur HAUST bs. 2010
Málsnúmer 1009034
Lagt fram fundarboð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem fer fram á Djúpavogi 6. september næstkomandi. Mannvirkjastjóri verður fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum og fer með atkvæði sveitarfélagsins. 
4.
Fundagerð 93.fundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Málsnúmer 1009154

93. fundargerð Heilbrigðiseftirlits Austurlands lögð fram til kynningar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

5.
Ársfundur umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga
Málsnúmer 1009142
Lagt fram bréf, dagsett 15. september 2010 frá Umhverfisstofnun. Þar er boðað er til 3. lögbundna fundar Umhverfisstofnunar og náttaurverndarnefnda sveitarfélaga. Mun fundurinn fara fram í Borgarnesi þann 29. október næstkomandi. Afgreiðslu frestað til næsta fundar, þegar dagskrá fundarins liggur fyrir.
6.
Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Alcoa Fjarðaál
Málsnúmer 1008079

Lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra, dagsett 30. september 2010 vegna tillögu að starfsleyfi fyrir Alcoa Fjarðaál. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd felur mannvirkjastjóra að leita frekari skýringa frá Alcoa á tillögunni að starfsleyfinu.
7.
Ný skipulagsreglugerð
Málsnúmer 1009120

Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 10.september 2010, þar sem óskað er eftir ábendingum frá sveitarfélaginu vegna nýrrar reglugerðar. Málið áður farið fyrir bæjarráð og vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Nefndin felur skipulagsfulltrúa að senda inn ábendingar ef einhverjar eru, annars mun nefndin fara betur yfir reglugerðina þegar drögin verða send til umsagnar.
8.
Edduborgarreiturinn Eskifirði - umgengni
Málsnúmer 0909044

Lagt fram bréf, dagsett 22. september frá Frjálsa fjárfestingarbankanum hf. um málefni fasteigna á Útkaupstaðabraut 2, Strandgötu 39a og Grjótárgötu 2, 735 Fjarðabyggð. Jafnframt er lögð fram eftirfarandi tillaga. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tilboð Frjálsa fjárfestingarbankans hf. um yfirtöku allra eigna hans á áðurgreindum lóðum án nokkra kvaða. Jafnframt mun Fjarðabyggð afsala öllum kröfum á hendur Frjálsa fjárfestingarbankans. Um er að ræða allar eignir á lóðum Strandgötu 39a, Útkaupstaðabraut 2 og Grjótárgötu 2 sem almennt eru kallaðar Edduborgarreiturinn. Nefndin samþykkir tillöguna.
9.
Kaup og uppsetning á eftirlitsbúnaði
Málsnúmer 1009186

Lagt fram bréf frá skólastjóra Nesskóla, dagsett 16. september 2010 með beiðni um kaup og uppsetningu á eftirlitsbúnaði við Nesskóla. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir að fá afstöðu fræðslu- og frístundanefndar til málsins. Nefndin mun taka afstöðu til málsins þegar afstaða fræðslu- og frístundarnefndar liggur fyrir.
10.
735 Skólagönguleið við Lambeyrarbraut og Botnabraut á Eskifirði
Málsnúmer 1008137
Grenndarkynningu er lokið, tvær athugasemdir bárust. Nefndin felst ekki á þær athugasemdir sem bárust, en leggur til að leitað verði leiða í samvinnu við skólastjórnendur að draga úr umferð um Lambeyrarbraut.
11.
Umferðaröryggi við grunnskóla Stöðvarfjarðar
Málsnúmer 1009210
Lagt fram bréf frá skólastjóra Grunnskóla Stöðvafjarðar, dagsett 23. september 2010, vegna umferðaröryggismála í næsta nágrenni skólans. Nefndin fór yfir málið og vísar því til endurskoðunar umferðasamþykktar og jafnframt til gerðar fjárhagsáætlunar.
12.
Fjárhagsáætlun 2011 - Fjárfestingaáætlun
Málsnúmer 1009105

Farið yfir drög að fjárfestingaáætlun fyrir árið 2011, afgreiðslu frestað til næsta fundar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Valur Sveinsson, fasteigna- og framkvæmdafulltrúi sat þennan lið.
13.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2011-Eigna-skipulags- og umhverfinefnd
Málsnúmer 1009131

Nefndin ræddi hagræðingar hugmyndir og felur formanni og mannvirkjastjóra að fara á fund bæjarráðs.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Valur Sveinsson, fasteigna- og framkvæmdafulltrúi sat þennan lið.