Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra, dagsett 23. október 2012, varðandi flutning hestamanna- og frístundahúsdýrahaldara á Eskifirði, minnisblaði var einnig lagt fram á 313. fundi bæjarráðs. Jafnframt eru lögð fram drög að bréfi sem sent verður hestamönnum á Eskifirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin tekur undir afgreiðslu bæjarráðs, en leggur áherslu á að þær mótvægisaðgerðir sem farið verður í verði skilyrtar við uppbyggingu á Símonartúni og renni þannig til þeirra sem ætla í uppbyggingu þar, hvort sem er til frístundabænda eða hestamanna. Nefndin samþykkir einnig framlögð drög að bréfi og felur mannvirkjastjóra að senda hestamönnum bréfið.
Málið var áður á dagskrá nefndarinnar á 48. fundi, en var frestað og ákveðið að bíða með afgreiðslu þar til að málefni hestamanna á Eskifirði yrðu til umræðu og afgreiðslu. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fyrir liggur afgreiðsla bæjarstjórnar á málefnum hestamanna Eskifirði og annarra frístundahúsdýrahaldara, en þar var ákveðið að hesthús í landi Eskifjarðarbýlisins yrðu aflögð á næsta ári. Jafnframt að hestamenn eigi að flytja sig yfir á Símonartún, þar sem bæði aðalskipulag og deiliskipulag gerir ráð fyrir uppbyggingu á hesthúsasvæði á því svæði, ásamt möguleika fyrir þá sem vilja stunda frístundahúsdýrahald, s.s. með kindur.
Í ljósi afgreiðslu bæjarstjórnar og samþykkts aðalskipulags og deiliskipulags þá getur nefndin ekki samþykkt beiðni bréfritara um áframhaldandi frístundahúsdýrahald á Eskifjarðarbýlinu lengur en til júlí 2013.
Lagt fram bréf frá Jóni Ragnari Ólafssyni dags. 20. október 2012 vegna sjóhúss sem stendur við svokallaðan Krók í Eskifirði en sjóhús á þessu svæði þurfa að víkja vegna fyrirhugaðrar legu nýs Norðfjarðarvegar. Bréfritari óskar eftir að fá að flytja sjóhúsið á annan stað í nágrenni Eskifjarðar t.d. utan við bæinn svo hann geti haldið áfram að nýta það. Einnig lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags 6. nóvember 2012.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að ræða við bréfritara og fara yfir mögulegar staðsetningar og leggja aftur fyrir nefndina.
Lagður fram uppdráttur framkvæmdasviðs af snúningsstæði fyrir rútur á Strandgötu á Eskifirði vegna almenningssamgangna í Fjarðabyggð. Snúningsstæðið er neðan við Strandgötu 79b. Umsögn Vegagerðarinnar vegna snúningsstæðisins hefur borist sviðinu.
Nefndin samþykkir að grenndarkynna fyrirhugað snúningsstæði. Grenndarkynning nái til eftirfarandi húsa, Strandgötu 77c, 79b, 79a og Steinholtsvegar 12.
Lagt fram bréf, dagsett 15. október 2012, frá Þórarni Ívarssyni fyrir hönd Veraldravina, varðandi Gamla barnaskólann á Eskifirði. Þar er farið yfir áhuga Veraldarvina á standsetningu gamla barnaskólans á Eskifirði og áhuga samtakanna á húsnæðinu til framtíðar. Er óskað eftir viðræðum við sveitarfélagið varðandi þetta verkefni. Málið var áður tekið fyrir á 314. fundi bæjaráðs þar sem bæjarráð fól mannvirkjastjóra að ræða við samtökin um endurgerð hússins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndinni líst vel á hugmyndina og felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram og leggja svo fyrir nefndina.
Lögð fram umhverfisskýrsla landsskipulagsstefnu 2013-2024 dags. 24. september 2012 ásamt landsskipulagsstefnu 2013-2024 dags. 24. september 2012. Í samræmi við 6. mgr. 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 er óskað eftir umsögn um tillögu að landsskipulagsstefnu 2013 - 2024 og umhverfisskýrslu. Tillagan verður lögð fyrir Alþingi til þingsályktunar en hún varðar skipulagsmál á miðhálendi Íslands, búsetumynstur og dreifingu byggðar og skipulag á haf- og strandsvæðum. Einnig lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa, dagsett 7. nóvember 2012, varðandi málið.
Nefndin samþykkir það sem sett er fram í minnisblaðinu og felur skipulagsfulltrúa að senda umsögn byggða á því.
Lagt fram bréf, dagsett 29. október 2012, frá Lárusi Gauta Georgssyni lögfr. fyrir hönd N1, vegna lóðar sem er í eigu félagsins á Stöðvafirði, Bankastræti 2. Óskað er eftir því að Fjarðabyggð leysi til sín lóðina, þar sem N1 hyggst ekki nota hana frekar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að Fjarðabyggð leysi til sín lóðina án allra kvaða og veðbanda.
Lagt fram ódagsett bréf frá Grunnskóla Reyðarfjarðar þar sem óskað er eftir gróðurreit í nágrenni skólans. Skólinn hefur undanfarin tvö ár fengið úthlutað rúmlega 1000 skógarbirkiplöntum úr Yrkjusjóði. Skógræktarfélag Reyðarfjarðar mun verða starfsmönnum og nemendum innan handar við skipulag og gróðursetningu.
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að ræða við grunnskólann um möguleg svæði innan þéttbýlis á Reyðarfirði og gera um þau samning.
Lagt fram minnisblað, dagsett 23. október 2012, varðandi boð til samstarfssvæða um að fylgjast með reynslu Snæfellinga. Málið var áður á dagskrá 313. fundar bæjarráðs, þar sem bæjarráðið samþykkti boð Snæfellinga um samstarf.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að skipulagfulltrúi verði tengiliður Fjarðabyggðar við verkefnið.
Lögð fram til kynningar framvinduskýrsla fyrir Hjúkrunarheimili á Eskifirði, dagsett september 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin lýsir áhyggjum sínum á framvindu verksins og leggur áherslu á að verktaka verði gert að fjölga mannskap og vinna upp tapaðan tíma. Mannvirkjastjóra falið að koma áhyggjum nefndarinnar á framfæri við Framkvæmdasýslu ríkisins og verktaka.
Lagt fram bréf, dagsett 29. október sl., frá Sigmari Arnari Steingrímssyni fyrir hönd Skipulagsstofnunar með beiðni um umsögn, varðandi tilkynningu Laxar ehf. um fyrirhugað 4000 tonna eldi í Fáskrúðsfirði. Einnig lögð fram greinargerð Laxa vegna fyrirhugaðs eldis. Umsögnin óskast send Skipulagsstofnun fyrir 13. nóvember nk.. Bréfið var tekið fyrir á 315. fundi bæjarráðs, þar sem því var vísað til umsagnar hjá hafnarstjórn og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Lögð fram drög að umsögn mannvirkjastjóra og hafnarstjóra vegna málsins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir umsögnina fyrir sitt leiti og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.
Lagður fram tölvupóstur frá Guðjóni Bragasyni frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 1. nóvember 2012, varðandi umsögn um frumvarp til laga um almenningssamgöngur. Í tölvupóstinum kemur fram að sambandið muni senda umsögn, en jafnframt eru landshlutasambönd og sveitarfélög hvött til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Óskað er eftir að umsögn berist fyrir 15. nóvember nk..<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin felur mannvirkjastjóra að gera athugasemdir í samræmi við áherslur nefndarinnar.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 31. október sl., frá nefndarsviðið Alþingis, varðandi umsögn um frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun ( flokkun virkjunarkosta og gerð orkunýtingaráætlunar), 3. mál. Óskað er eftir umsögn fyrir 14. nóvember nk..<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin mun ekki skila inn umsögn.
Lagt fram bréf, dagsett 9. október sl., frá Orkustofnun vegna hugmyndar um Staðlaðan samning milli dreifiveitna og almenns notanda. Jafnframt er lagt fram umrætt samningsígildi og umsögn Samorku um sama mál. Óskað er eftir að umsögn berist fyrir 10. nóvember nk..<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin tekur undir umsögn Samorku og felur mannvirkjastjóra að koma því áfram til Orkustofnunnar.
Lagt fram bréf dags. 3. október 2012 frá Haraldi Þórarinssyni fyrir hönd Landssambands hestamannafélaga þar sem óskað er eftir 100.000 kr fjárstyrk á ári næstu fjögur árin til að fjármagna skráningu og til að koma öllum reiðleiðum í sveitarfélaginu á aðgengilegt form. Nefndin frestaði afgreiðslu erindisins á síðasta fundi sínum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin hefur ekki tök á því að veita umbeðinn styrk, en felur framkvæmdasviði að leita eftir samstarfi við hestamannafélögin í Fjarðabyggð með skráningar á reiðleiðum og fær inn í grunna sveitarfélagins. Grunnana væri svo hægt að afhenda Landsambandi hestamannafélaga til birtingar. Jafnframt yrði grunnur settur inn í kortasjá sveitarfélagsins.
Nefndin samþykkir að gera lagfæringar á deiliskipulagsuppdrætti í samræmi við umsögn Vegagerðarinnar og ábendingar Náttúrustofu Austurlands og vísar endanlegri afgreiðslu á deiliskipulaginu til bæjarstjórnar.
Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra vegna heimildar til útboðs og svo útgáfu framkvæmdaleyfis. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að veita Framkvæmasýslu ríkisins heimild til útboðs á snjóflóðavörnum við Nýabæjarlæk á Fáskrúðsfirði. Umrædd framkvæmd er inn á fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2013.
Nefndin vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.
Jafnframt samþykkir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fyrir sitt leiti að gefið verði út framkvæmdaleyfi fyrir umrædda framkvæmd, en fyrir liggur samþykkt deiliskipulag "Hlíðargata 58 og nágrenni", ásamt verklýsingu og verkteikningum. Umrædd framkvæmd hefur verið kynnt á tveimur auglýstum íbúafundum á Fáskrúðsfirði, ásamt því að undirritaður og hönnuður funduðu einu sinni með íbúum Skólabrekku, þ.e. þeim er liggja að framkvæmdasvæðinu. Búið er að taka tillit til allra athugasemda og ábendinga sem hægt var að bregðast við.
Nefndin vísar afgreiðslu framkvæmdaleyfis til bæjarstjórnar.