Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
6. fundur
18. október 2010
kl.
16:30
-
18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson
mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
730 Hraun 1 - Byggingarleyfi vegna byggingar 347
Alcoa Fjarðaál sækir um byggingarleyfi fyrir Kerbrotasmiðju, stærð 1.216 m2 og 18.676 m3. Lagt er fram minnisblað, dagsett 14. október 2010 frá Gísla Karel Halldórssyni fyrir hönd byggingarfulltrúa Fjarðabyggðar vegna umsóknar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingarleyfið á grundvelli upplýsinga er fram koma í minnisblaði.
2.
730 Hraun 1 - Byggingarleyfi vegna byggingar 443
Alcoa Fjarðaál sækir um stækkun af bakskautasmiðju. Stækkunin er 497 m2 og 3.884 m3. Lagt er fram minnisblað, dagsett 14. október 2010 frá Gísla Karel Halldórssyni fyrir hönd byggingarfulltrúa Fjarðabyggðar vegna umsóknar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingarleyfið á grundvelli upplýsinga er fram koma í minnisblaði.
3.
730 Hraun 1 - Byggingarleyfi vegna byggingu 346
Alcoa Fjarðaál sækir um að byggja kerfóðrunarverksmiðju, stærð 2594 m2 og 34239 m3. Lagt er fram minnisblað, dagsett 14. október 2010 frá Gísla Karel Halldórssyni fyrir hönd byggingarfulltrúa Fjarðabyggðar vegna umsóknar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingarleyfið á grundvelli upplýsinga er fram koma í minnisblaði.
4.
730 Hraun 1-Byggingarleyfi vegna byggingu 342
Alcoa Fjarðaál sækir um leyfi til að byggja kersmiðjuskrifstofu, stærð 194 m2 og 1010 m3. Lagt er fram minnisblað, dagsett 14. október 2010 frá Gísla Karel Halldórssyni fyrir hönd byggingarfulltrúa Fjarðabyggðar vegna umsóknar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingarleyfið á grundvelli upplýsinga er fram koma í minnisblaði.
5.
Kaup og uppsetning á eftirlitsbúnaði
Á 5. fundi eigna-, skipulags og umhverfisnefndar óskaði nefndin eftir afstöðu fræðslu og frístundanefndar til málsins. Fræðslu og frístundanefnd tók málið fyrir á 4. fundi sínum og var niðurstaða nefndarinnar eftirfarandi:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
?Fræðslu- og frístundanefnd setur sig ekki, að óathuguðu máli, upp á móti öryggismyndavélum til vöktunar utan hefðbundins skólatíma. Nefndin telur málið þarfnast frekari skoðunar svo sem varðandi afstöðu foreldra og starfsfólks og forgangsröðunar fjármuna. ?
Í ljósi afstöðu fræðslu- og frístundanefndar þá telur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ekki forsendur til að veita fjármagni í verkið að sinni. Hvetur nefndin fræðslu- og frístundarnefnd til að klára undirbúning og skoðun á verkefninu, þannig að hægt verði að taka afstöðu til þess fyrir gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012, verði þess óskað.6.
Ársfundur umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga
Lögð fram dagskrá að ársfundi Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefndar sveitarfélaga sem fram fer í Borgarnesi 29. október næstkomandi. Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd felur Líneik Önnu Sævarsdóttur að vera fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.
7.
Umsókn um niðurrif pramma á Reyðarfirði
Lögð fram umsókn frá Hringrás hf., dagsett 30. september 2010 um svæði til að rífa pramma á Reyðarfirði, pramminn er 18m x 40m að stærð. Sækir fyrirtækið um svæði fram við lóð fyrirtækisins á Reyðarfirði eða á leirunni. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur mannvirkjastjóra að halda áfram með málið og leggja aftur fyrir nefndina.
8.
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku á Hólmablokk í Reyðarfirði
Lögð fram umsókn frá HRV, dagsett 4. október 2010 fyrir hönd Alcoa Fjarðaáls, vegna efnistöku og efnisvinnslu í Hólmablokk í Reyðarfirði. Efnistakan er áætluð vegna lokafrágangs opinna svæða innan lóðar álversins. Gert er ráð fyrir að raskað svæði verði um 58.000 m2 og að magnið sem tekið verði sé um 30.000 m3. Áætlaður verktími er 2010 til 2013 og að loknum honum verði gengið frá svæðinu þannig það falli sem best að umhverfi svæðisins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsókn og felur umhverfisstjóra að gefa út leyfið.
9.
Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Alcoa Fjarðaál
Lögð fram svör Alcoa, dagsett 11. október við spurningum sem komu fram í minnisblaði er lagt var fyrir síðasta fund nefndarinnar. Mannvirkjastjóri hefur sent umsögn til Umhverfisstofnunar þar sem beðið er um skýringar á spurningum sem koma fram í minnisblaði og svo svörum Alcoa.
10.
Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð
Lögð fram drög að nýrri samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð. Helstu breytingar á samþykktinni er að bætt er við flokkum vegna þjónustugjalda bygginga- og skipulagsfulltrúa. Einnig er greiðslu fyrirkomulagi gatnagerðagjalda breytt, þannig að gjalddagar verða fjórir. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar samþykkt til bæjarráðs til staðfestingar.
11.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2011-Eigna-skipulags- og umhverfinefnd
Lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra og formanns nefndarinnar, dagsett 13. október, þar sem farið er fyrir helstu hagræðingar möguleika á málaflokkum sem undir nefndina heyra. Nefndin fór yfir málið.
12.
Fjárhagsáætlun 2011 - Fjárfestingaáætlun
Farið yfir fjárfestingaráætlun fyrir árið 2011 og henni vísað til bæjarráðs.