Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
Lagt fram til kynningar hættumat fyrir skíðasvæðið í Oddskarði, dagsett 28. október 2010. Helstu niðurstaða hættumatsins er sú að efri hluti barnalyftu í Sólskinsbrekku er á C-svæði og stenst því ekki viðmið reglugerðar 636/2009 um skíðasvæðahættumat. Snjóflóð hafa fallið yfir efsta hluta lyftunnar og tilheyrandi skíðaleiðir. Skíðaskálinn er á B-svæði en á slíkum svæðum er heimilt að reisa skíðaskála án næturgistingar. Diskalyfturnar tvær eru fremur vel staðsettar með tilliti til snjóflóðahættu og upphafsstöðvar þeirra beggja ásamt tilheyrandi raðasvæðum eru utan C-svæðis. Undir Magnúsartindi eru snjóflóð tíð niður á troðna skíðaleið. Einnig má búast við flóðum niður á skíðaleiðir undir Sellátrafjalli og Goðatindi við óvenjulegar aðstæður. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að hættumatið fari nú í nóvember í almenna kynningu og skuli liggja frami á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar og svo í öllum þjónustugáttum.Lagt fram bréf frá Hafþóri Eiríkssyni Norðfirði, dagsett 6. október, vegna möguleika á smávirkjunum innan bæjarmarka og hvaða reglur gildi um slíkt. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin sér ekki fyrir sér að leyfa smávirkjanir innan þéttbýliskjarna Fjarðabyggðar.Lagt fram bréf frá Alcoa Fjarðaáli, dagsett 1. nóvember 2010 vegna umsóknar um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir starfsmanna.þorpið á Haga. Sækir Alcoa um framlengingu fyrir árið 2011 í samræmi við núverandi samning. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Nefndin samþykkir að framlengja stöðuleyfið fyrir þorpið út árið 2011 en að það ár verði það síðast og það verði notað til að ganga frá svæðinu.Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar, Eskifirði hækki um 4,2 % frá og með 1.janúar 2011. Vatnsgjald verði 144 kr/m3 og fastagjald 23.500 kr á ári fyrir venjulegt íbúðarhúsnæði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu að hækkun á notkunargjaldi hjá Vatnsveitu Fjarðabyggðar og vísar henni jafnframt til staðfestingar bæjarráðs. Notkunargjaldið verður eftir breytingu 29 kr/m3.
Stefán Már vék af fundi eftir afgreiðslu.
Lögð fram fyrirspurn í tveimur liðum frá Hallgrími Axel Tulinius er varðar stækkunarmöguleika húsnæðis við Svínaskálahlíð 5.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
- er hægt að byggja við húsnæðið að Svínaskálahlíð 5, þá ofan við það.
- er möguleiki á að búa til auka lóð fyrir ofan Svínaskálahlíð 5.