Fara í efni

Fjallskilanefnd

8. fundur
28. ágúst 2026 kl. 10:00 - 11:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Marsibil Erlendsdóttir aðalmaður
Steinn Björnsson aðalmaður
Gróa Jóhannsdóttir varamaður
Starfsmenn
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Málsnúmer 2605021
Fjallskilastjórar. Bæjarstjórn kýs fjallskilastjóra eftir tilnefningu fjallskilanefndar, samanber ákvæði fjallskilasamþykktar fyrir Múlasýslur. Fjallskilanefnd tilnefnir Þuríði Lillý Sigurðardóttir sem fjallskilastjóra.
2.
Fjallskil og gangnaboð 2026
Málsnúmer 2608175
3.
Fjárréttir í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1808042
Fjárréttir í Fjarðabyggð. Formaður nefndar fór yfir stöðu fjárrétta í Fjarðabyggð, fyrirhuguð er lagfæring á rétt við Þorgrímsstaði fyrir göngur 2026. Fjallskilanefnd felur stjórnenda bygginar-, skipulags- og umhverfisdeildar að gera úttekt á ástandi fjárrétta í Fjarðabyggð og leggja fyrir nefnd að nýju.
4.
Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði 2026
Málsnúmer 2607045
Framlög gjaldskrá landeiganda Óseyrar vegna ágangs búfjár á landi þeirra. Erindið lagt fyrir.