Fara í efni

Fjölskyldunefnd

65. fundur
2. september 2026 kl. 16:15 - 16:45
í Búðareyri 2 fundarherbergi 2
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Helga Rakel Arnardóttir varaformaður
Sigrún Eva Grétarsdóttir aðalmaður
Valborg Ösp Árnadóttir Warén aðalmaður
Anna Guðný Gunnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir embættismaður
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir embættismaður
Líneik Anna Sævarsdóttir embættismaður
Bergey Stefánsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir Stjórnandi félagsþjónustu
Dagskrá
1.
Íþróttavika Evrópu 23.-30. september 2026
Málsnúmer 2606072
Stjórnandi íþrótta- og frístundamála fór yfir dagskrá íþróttavikunnar sem er fjölbreytt og á vegum íþróttafélaganna sem hafa flest boðað þátttöku. Jafnframt var farið yfir verkefnið ,,Allir með" sem íþróttafélög hafa verið hvött til þátttöku í. Ungmennafélagið Valur á Reyðarfirði hefur þegar riðið á vaðið.
2.
Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Málsnúmer 2602108
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir rammaúthlutun fjölskyldusviðs fyrir árið 2027. Nefndin samþykkir rammaúthlutun og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.