Fjölskyldunefnd
67. fundur
30. september 2026
kl.
16:15
-
18:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Helga Rakel Arnardóttir
varaformaður
Sigrún Eva Grétarsdóttir
aðalmaður
Anna Guðný Gunnarsdóttir
aðalmaður
Salóme Rut Harðardóttir
varamaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir
embættismaður
Líneik Anna Sævarsdóttir
embættismaður
Bergey Stefánsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Laufey Þórðardóttir
sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
1.
Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu
Stjórnandi fræðslummála og skólaþjónustu fór yfir stöðu framkvæmda við skólahúsnæði Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla á Breiðdalsvík og áhrif framkvæmda á skólastarfið.
2.
Skóladagatöl 2026-2027
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingu á skóladagatölum fyrir skólaárið 2026-2027. Sigrún Eva vék af fundi vegna setu í skólaráði
3.
Skráningadagar og sumarlokun leikskóla
Sviðstjóra mannauðs og umbótasviðs falið að taka saman mönnun leikskóla og tækifæri til að skapa aukinn sveigjanleika með fækkun skráningadaga og breytingu á skipulagi sumarfría. Tekið fyrir að nýju að þeirri vinnu lokinni.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Lögð fram tillaga að launaáætlun 2027 og fjallað um áherslur á áframhaldandi vinnu í fjárhagsáætlunargerð. Fjölskyldunefnd felur sviðstjóra að skila launaáætlun til fjármálastjóra.
5.
Ferðaþjónusta fatlaðra
Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar leggur fyrir minnisblað varðandi endurskoðun á rekstri ferðaþjónustu fatlaðra. Fjölskyldunefnd leggur til að aflað verði verðtilboða í samræmi við tillögu 2.
6.
Landssöfnun - Uppbygging Reykjalunds
Fjölskyldunefnd fjallaði um styrkbeiðni um uppbyggingu Reykjalunds. Fjölskyldunefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni.
7.
Umsókn um íþróttastyrk
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til Knattspyrnufélags Austfjarða fyrir árið 2026, í samræmi við reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrki til barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi, sem og úthlutunarreglur um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs. Nánari upplýsingar um úthlutun styrkja og fjárhæðir til einstakra félaga má finna í máli nr. 2606219 „Umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki 2026“.
Helga Rakel vék af fundinum vegna stjórnarsetu í KFA
Helga Rakel vék af fundinum vegna stjórnarsetu í KFA