Fara í efni

Fjölskyldunefnd

71. fundur
11. nóvember 2026 kl. 16:15 - 18:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Helga Rakel Arnardóttir varaformaður
Alma Eiðsdóttir varamaður
Þórunn Ólafsdóttir varamaður
Salóme Rut Harðardóttir varamaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir embættismaður
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir embættismaður
Líneik Anna Sævarsdóttir embættismaður
Bergey Stefánsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar
Dagskrá
1.
Starfsáætlanir og skólanámskrár 2026-27
Málsnúmer 2611060
Starfsáætlun Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram og henni fylgt eftir með stuttri kynningu skólastjórnenda.
2.
Endurskoðun fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar frá 2019
Málsnúmer 2611059
Fjölskyldunefnd samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leiti og vísar því til samþykktar í bæjarráði.
3.
Beiðni um upplýsingar varðandi húsverði
Málsnúmer 2611056
Fjölskyldunefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og sviðsstjóra framkvæmdasviðs.
4.
Kynningar fyrir fjölskyldunefnd
Málsnúmer 2609096
Forstöðumenn frístundaþjónustu kynntu starf sumar- og vetrarfrístundar í Fjarðabyggð. Fjölskyldunefnd þakkar fyrir kynninguna.
5.
Erindi um rekstrarstyrk
Málsnúmer 2610062
Samtök um Kvennaathvarf leita til Fjarðabyggðar um styrk til að geta veitt konum og börnum skjól sem flýja þurfa heimili sín sökum ofbeldis. Fjölskyldunefnd samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið um 300.000 kr á árinu 2027.
6.
Framtíðarsýn um stafræna þróun og gagnamál í félagsþjónustu sveitarfélaga
Málsnúmer 2611045
Farið yfir aðgerðaráætlun um stafræna þróun og gagnamál í félagsþjónustu sveitarfélaga.