Hafnarstjórn
58. fundur
12. maí 2009
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson
framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Siglingamerki við Mjóeyrarhöfn
Kynntur tölvupóstur frá Alcoa dags. 5. maí 2009 vegna erindis til Siglingastofnunar um innsiglingarmerki við Mjóeyrarhöfn og svar stofnunarinnnar við því.
2.
Grjótvörn utan við Tangabryggju á Fáskrúðsfirði
Erindi frá Loðnuvinnslunni hf. dags. 29. apríl 2009 þar sem óskað er eftir leyfi til að grjótverja fyllingu utan við Tangabryggju á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti en vísar málinu til umhverfis- og skipulagssviðs til umfjöllunar og afgreiðslu.
3.
Skólphreinsistöð
Umsókn frá Bólholti ehf. dags. 5. maí 2009 um lóð nr. 3 á Mjóeyrarhöfn fyrir skólphreinsistöð. Hafnarstjórn samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti en vísar málinu til umhverfis og skipulagssviðs til umfjöllunar og afgreiðslu.
4.
Um hafnaraðstöðu og viðlegukant fyrir Skrúð við gömlu bæjarbryggjuna
Bréf frá Fjarðaferðum dags. 21. apríl 2009 þar sem skorað er á hafnarstjórn að fara í endurbætur á bæjarbryggjunni á Norðfirði. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að funda með Fjarðaferðum um málið.
5.
Upptökumannvirki fyrir smábáta á Eskifirði
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ræða við lóðareigenda og leggja niðurstöðu fyrir hafnarstjórn.
6.
Endurbygging Barksins
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu mála. Búið er að leita tilboða í timbur í bryggjuna og er verið að vinna úr þeim og yfirfara efnismagn sem þarf í bryggjuna. Hafnarstjórn samþykkir að keypt verði fura í bryggjuna og leitað tilboða í vinnu við endurbætur hennar.
7.
Framkvæmd við stálþil við Egersund á Eskifirði
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu og fór yfir stöðu þess miðað við fjárhagsáætlun. Fyrir liggur að steypa verður kant og setja á hann þybbur til að hægt sé að fara að nýta hann. Hafnarstjórn samþykkir að ráðast í verkið.
8.
Starfsmannahald á Fjarðabyggðarhöfnum
Fjallað var um starfsmannahald á Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna í málinu.
9.
Aðalfundarboð, fimmtudaginn 21. maí
<DIV><DIV>Bréf frá Fiskmarkaði Austurlands dags. 7. maí 2009 þar sem boðað er til aðalfundar Fiskmarkaðar Austurlands fimmtudaginn 21. maí 2009 kl. 12:00 á Eskifirði. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vera  fulltrúi hafnarstjórnar á fundinum. </DIV></DIV>